Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Agnar Már Másson skrifar 5. febrúar 2026 18:49 Jón Þór Dagbjartsson (til hægri) ásamt Hlyni Jónssyni verjanda sínum. Landsréttur hefur þyngt dóm yfir Jóni Þór Dagbjartssyni og gert honum að sæta fangelsi í sjö ár, frekar en sex, fyrir grófa líkamsárás og tilraun til manndráps. Landsréttur taldi það hafið yfir skynsamlegan vafa að Jón hefði ætlað sér að svipta fyrrverandi sambýliskonu sína lífi.
Í júní 2025 dæmdi héraðsdómur Austurlands Jón Þór í sex ára fangelsi í Vopnafjarðarmálinu svokallaða, fyrir grófa árás á fyrrverandi sambýliskonu sína á Vopnafirði í október í 2024. Þar hafði hann verið ákærður fyrir tilraun til manndráps með því að hafa veist að konunni, Hafdísi Báru Óskarsdóttur, með litlum járnkarli, reynt að stinga hana og síðan kyrkja. Hann var jafnframt ákærður fyrir húsbrot og kynferðislega áreitni á sama heimili fáeinum dögum fyrir árásina. Ríkissaksóknari skaut málinu til Landsréttar í samræmi við yfirlýsingu Jóns Þórs um áfrýjun. Fyrir Landsrétti voru gögn málsins endurflutt, svo sem upptökur af vitnaframburði en einnig upptökur af símtölum við Neyðarlínuna. Í símtalsupptöku frá Neyðarlínunni mátti heyra Jón segjast hafa ætlað sér að „kála henni“. Nú hefur Landsréttur þyngt fangelsisdóminn yfir Jóni um eitt ár, þar sem rétturinn komst að þeirri niðurstöðu að það væri hafið yfir skynsamlegan vafa að Jón hefði haft beinan ásetning til að svipta Hafdísi lífi. Í héraði var Jón Þór dæmdur til að greiða fyrrverandi sambýliskonu sinni 3,1 milljón króna í miskabætur og rúmlega 15 milljónir í sakarkostnað.
Ofbeldi á Vopnafirði Vopnafjörður Kynbundið ofbeldi Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ Sjá meira