Konur í Framsókn sjá að sér Eiður Þór Árnason skrifar 5. febrúar 2026 17:28 Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður og Lilja Alfreðsdóttir varaformaður sækjast báðar eftir því að leiða Framsóknarflokkinn. Vísir Stjórn landssambandsins Konur í Framsókn segir að viðburður með Lilju Alfreðsdóttur hafi verið skipulagður áður en hún tilkynnti framboð sitt til formanns flokksins. Þá hafi Halla Hrund Logadóttir þingmaður upphaflega átt að vera frummælandi fundarins.
Framsóknarfélag Akureyrar og nágrennis kærði viðburðinn með Lilju til siðanefndar flokksins í gær á grundvelli þess að óleyfilegt væri fyrir landssamband að halda viðburð svo skömmu fyrir flokksþing þar sem einungis einn formannsframbjóðandi kæmi fram. Konur í Framsókn segja að Ingibjörgu Isaksen, sem sækist einnig eftir formannsembættinu, hafi verið boðið að taka þátt í viðburðinum með Lilju í gær „til að leiðrétta þá skekkju sem gæti túlkast út á við varðandi formannsefnin og stöðu þeirra.“ Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá sérsambandinu. Ingibjörg hafi ekki getað þegið boð um þátttöku en stjórn sambandsins hafi áhuga á því að skipuleggja annan fund á tíma sem henti henni betur. Næsti formaður Framsóknarflokksins verður valinn á flokksþingi þann 15. febrúar en viðburðurinn með Lilju, sem er jafnframt varaformaður Framsóknar, er boðaður 10. febrúar. „Ábendingar um slagsíðu vegna formannsslags hafa borist okkur til eyrna og voru sannarlega teknar til greina. Sér stjórnin að það að bjóða öðrum frambjóðanda af tveimur að vera með erindi geti skilist sem ádeila á hinn,“ segir í yfirlýsingu sem Konur í Framsókn birtu á Facebook. Upphaflega hafi bæði Halla og Lilja átt að koma fram á viðburðinum. Halla hafi síðar verið óviss um það hvort hún yrði stödd á landinu og því að lokum ákveðið að auglýsa viðburðinn einungis með Lilju. Hefð fyrir því að efna til viðburðar „Haft var samband við Ingibjörgu strax í dag vegna mögulegrar þátttöku hennar á fundinum til að leiðrétta þá skekkju sem gæti túlkast út á við varðandi formannsefnin og stöðu þeirra. Ingibjörg þurfti því miður að afþakka boð um þátttöku,“ segir í yfirlýsingu Kvenna í Framsókn sem birt var í gærkvöldi. Ingibjörg sé innilega velkomin ef hún sjái sér fært að mæta á fundinn með Lilju. Stjórn Kvenna í Framsókn segir að hefð sé fyrir því að þetta sérsamband kvenna efni til viðburðar í aðdraganda flokksþings eða á þinginu sjálfu. „Við vonumst til þess að við eigum gleðilega stund saman á Vinnustofu Kjarval og mætum ögn hressari og samstígari til flokksþings, hvar sem við stöndum varðandi formannskjörið.“ Þar stendur til að ræða stöðuna í alþjóðamálum og á norðurslóðum. Að sögn Kvenna í Framsókn verður viðburðurinn með Lilju mögulega sá fyrsti í röð funda sem sérsambandið haldi um stöðu Íslands í hinu alþjóðlega samhengi. Fréttin hefur verið uppfærð.
Framsóknarflokkurinn Flokksþing Framsóknar 2026 Tengdar fréttir Framsóknarmenn takast hart á að tjaldabaki Þegar hafa tvær konur lýst yfir áhuga á formennsku í Framsóknarflokknum. Lilja Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknar og fyrrverandi ráðherra, falast eftir formannsstólnum líkt og Ingibjörg Ísaksen, þingmaður flokksins. Samkvæmt heimildum Vísis gengur mikið á að tjaldabaki. 5. febrúar 2026 15:04 Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Framsóknarfélag Akureyrar og nágrennis kærði í dag viðburð sem kvennahreyfing Framsóknar hefur boðað með Lilju Alfreðsdóttur formannsframbjóðanda til siðanefndar flokksins. Fundurinn fer fram nokkrum dögum fyrir flokksþing þar sem næsti formaður verður valinn. 4. febrúar 2026 21:09 Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri fréttir Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Sjá meira
Framsóknarmenn takast hart á að tjaldabaki Þegar hafa tvær konur lýst yfir áhuga á formennsku í Framsóknarflokknum. Lilja Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknar og fyrrverandi ráðherra, falast eftir formannsstólnum líkt og Ingibjörg Ísaksen, þingmaður flokksins. Samkvæmt heimildum Vísis gengur mikið á að tjaldabaki. 5. febrúar 2026 15:04
Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Framsóknarfélag Akureyrar og nágrennis kærði í dag viðburð sem kvennahreyfing Framsóknar hefur boðað með Lilju Alfreðsdóttur formannsframbjóðanda til siðanefndar flokksins. Fundurinn fer fram nokkrum dögum fyrir flokksþing þar sem næsti formaður verður valinn. 4. febrúar 2026 21:09