Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Árni Sæberg skrifar 2. febrúar 2026 14:40 Frá og með 1. mars verður mun dýrara að nýta hina ýmsu þjónustu Póstsins. Vísir/Vilhelm Pósturinn hefur birt nýja verðskrá sem tekur gildi þann 1. mars næstkomandi. Mesta verðhækkunin er á sendingum eins til tveggja kílóa smápakka til Evrópulanda annarra en Norðurlanda, sem hækka um 120 prósent.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Póstsins. Þann 1. mars 2026 taki gildi verðbreytingar fyrir viðbótarþjónustu fyrir pakka innanlands, tollatengd gjöld, rúmfrek bréf og smápakka og bréf til útlanda. Nýja verðskrá má sjá hér. Meðal mestu verðskrárhækkana er á verði pakka sem sendir eru innanlands og afhendast eingöngu skráðum viðtakanda. Verðið fer úr 275 krónum í 385 krónur, sem gerir hækkun upp á fjörutíu prósent. Af annarri viðbótarþjónustu pakka innanlands má nefna pakka sem viðtakandi greiðir burðargjald fyrir en sú þjónusta hækkar úr 300 í 400 krónur, eða um 33 prósent. Léttustu bréfin hækka í verði Útflutningsskýrsla hækkar um 7,8 prósent, tollskýrslugerð um 3,8 prósent og viðbótarlína í tollskýrslu um 5,9 prósent. Sending rúmfrekra bréfa á milli núll gramma og tveggja kílóa hækkar úr 1.690 krónum í 1.940 krónur, sem gerir hækkun upp á 14,8 prósent. Verðskrá sendinga bréfa til útlanda er að mestu óbreytt en sending léttustu bréfa hækkar í verði. Sending bréfa sem eru núll til fimmtíu grömm innan Evrópu hækkar um sléttan þriðjung og utan Evrópu um 28 prósent. Sending bréfa á bilinu 51 til 100 grömm innan Evrópu hækkar um 34 prósent og utan Evrópu um 57 prósent. Smápakkar til Evrópu hækka langmest Sú þjónusta sem hækkar langmest er sending smápakka innan Evrópu. Héðan í frá verður sama verð á sendingum til allra landa innan Evrópu en áður var örlítið dýrara að senda smápakka til hinna Norðurlandanna, að því er segir á vef Póstsins. Sending pakka á bilinu eitt til tvö kíló til annarra Evrópulanda hækkar mest eða um 120 prósent. Sending pakka á milli 501 og 1000 gramma hækkar um 100 prósent og sending pakka að 500 grömmum hækkar um 88 prósent.
Pósturinn Verðlag Neytendur Mest lesið Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Viðskipti innlent Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Viðskipti innlent Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Neytendur Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Viðskipti innlent Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Samstarf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Viðskipti innlent Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Viðskipti innlent Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Bensínlítrinn hefur hækkað á ný „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Vara við skordýrum í chia-fræjum Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Ástandið minni á 2007 Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Kalla inn pylsur vegna prentvillu Breytingar á fyrsta farrými Innkalla te sem innihélt ál Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Sjá meira