Taldi ekki sérstaka nauðsyn á að hneppa Helga Bjart í varðhald Árni Sæberg skrifar 16. janúar 2026 15:14 Landsréttur kvað upp úrskurð að kvöldi miðvikudags. Vísir/Vilhelm Héraðsdómari taldi ekki sérstaka nauðsyn á því að Helgi Bjartur Þorvarðarson, sem ákærður er fyrir að nauðga tíu ára dreng í Hafnarfirði, yrði hnepptur í varðhald, þrátt fyrir að hann lægi undir sterkum grun. Hann er ákærður fyrir að nauðga drengnum með því að hafa við hann önnur kynferðismök en samræði og að reyna að hafa við hann samræði.
Þetta kemur fram í úrskurði Landsréttar, sem kveðinn var upp að kvöldi miðvikudags og birtur í dag. Með úrskurðinum sneri Landsréttur úrskurði Héraðsdóms Reykjaness og hneppti Helga Bjart í gæsluvarðhald til 6. febrúar á grundvelli almannahagsmuna. Mikla athygli vakti þegar greint var frá því að Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefði ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir Helga Bjarti, fyrir utan stutt varðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Ákærður með hraði Héraðssaksóknari fékk málið á sitt borð þann 9. janúar og gaf út ákæru strax daginn eftir. Samhliða útgáfu ákæru fór Héraðssaksóknari fram á gæsluvarðhald yfir honum á grundvelli almannahagsmuna. Héraðsdómur hafnaði þeirri kröfu og olli foreldrum drengsins miklum vonbrigðum. 12. janúar kærði Héraðssaksóknari úrskurð héraðsdóms til Landsréttar, sem úrskurðaði Helga Bjart í gæsluvarðhald á miðvikudagskvöld. Í úrskurðinum er ákæru Héraðssaksóknara að finna og nánari lýsingu á málavöxtum en birst hefur í fjölmiðlum hingað til. Úrskurðinn má lesa hér. Í honum segir að í samræmi við réttarframkvæmd standi ríkir almannahagsmunir til þess að menn sem sterklega eru grunaðir um alvarleg brot gegn ungum börnum gangi ekki lausir. Því væru skilyrðum gæsluvarðhalds yfir Helga Bjarti fullnægt. Engin sérstök ástæða Í úrskurði Héraðsdóms Reykjaness segir aftur á móti að að mati dómsins yrði, í ljósi atvika málsins, ekki séð að sérstök nauðsyn væri til þess, með tilliti til almannahagsmuna, að hneppa Helga Bjart í gæsluvarðhald. „Í því efni nægir ekki að mati dómsins að vísa almennt til þess að það misbjóði réttlætiskennd almennings og væri til þess fallið að valda hneykslun og óróa í samfélaginu ef varnaraðili gangi laus áður en máli hans er lokið með dómi. Getur sú staðreynd að gefin hafi verið út ákæra á hendur varnaraðila engu breytt um það mat dómsins.“
Dómsmál Lögreglumál Hafnarfjörður Grunaður um kynferðisbrot gegn barni í Hafnarfirði Tengdar fréttir Enn til skoðunar hvort úrskurðurinn verði kærður Embætti héraðssaksóknara ákveður í dag hvort úrskurði héraðsdóms um að hafna gæsluvarðhaldskröfu yfir manni sem grunaður er um kynferðisbrot gegn barni í Hafnarfirði verði áfrýjað til Landsréttar eða ekki. 12. janúar 2026 10:37 „Martröð sem ég mun bera með mér alla ævi“ Helgi Bjartur Þorvarðarson, maðurinn sem ákærður er fyrir að hafa nauðgað tíu ára dreng í Hafnarfirði um miðjan september síðastliðinn, segist ekki sekur um þau brot sem hann er sakaður um. Hann segist hafa fallið á bindindi sínu umrætt kvöld, verið í „blackout-ástandi“ en að hann hafi það ekki í sér að vera fær um að gera það sem hann er sakaður um. 12. janúar 2026 08:41 Gæsluvarðhaldskröfu yfir grunuðum barnaníðingi hafnað Héraðsdómur Reykjaness féllst ekki á gæsluvarðhaldskröfu héraðssaksóknara yfir manni sem hefur verið ákærður fyrir að nauðga tíu ára dreng í Hafnarfirði um miðjan september síðastliðinn. 9. janúar 2026 21:46 Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fleiri fréttir Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Sjá meira
Enn til skoðunar hvort úrskurðurinn verði kærður Embætti héraðssaksóknara ákveður í dag hvort úrskurði héraðsdóms um að hafna gæsluvarðhaldskröfu yfir manni sem grunaður er um kynferðisbrot gegn barni í Hafnarfirði verði áfrýjað til Landsréttar eða ekki. 12. janúar 2026 10:37
„Martröð sem ég mun bera með mér alla ævi“ Helgi Bjartur Þorvarðarson, maðurinn sem ákærður er fyrir að hafa nauðgað tíu ára dreng í Hafnarfirði um miðjan september síðastliðinn, segist ekki sekur um þau brot sem hann er sakaður um. Hann segist hafa fallið á bindindi sínu umrætt kvöld, verið í „blackout-ástandi“ en að hann hafi það ekki í sér að vera fær um að gera það sem hann er sakaður um. 12. janúar 2026 08:41
Gæsluvarðhaldskröfu yfir grunuðum barnaníðingi hafnað Héraðsdómur Reykjaness féllst ekki á gæsluvarðhaldskröfu héraðssaksóknara yfir manni sem hefur verið ákærður fyrir að nauðga tíu ára dreng í Hafnarfirði um miðjan september síðastliðinn. 9. janúar 2026 21:46