Meðal möguleika að greiða Grænlendingum milljónir Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 10. janúar 2026 14:25 Meðal þeirra sem eiga að hafa rætt möguleikann eru aðstoðarmenn í Hvíta húsinu. EPA Bandarískir embættismenn hafa rætt að greiða Grænlendingum eingreiðslur í von um að sannfæra þá um að segja skilið við Danmörku og verða þess í stað hluti af Bandaríkjunum.
Útfærsla og nákvæm upphæð liggja ekki fyrir en embættismennirnir, þeirra á meðal aðstoðarmenn í Hvíta húsinu, hafa nefnt tölur frá tíu þúsund dollurum upp í hundrað þúsund dollara fyrir hvern einstakling. Það samsvarar rúmum 1,2 milljónum íslenskra króna í rúmar 12,6 milljónir króna. Íbúar á Grænlandi eru um 57 þúsund. Þetta herma heimildir Reuters, sem hefur rætt við fjóra heimildarmenn sem þekkja til málsins. Undanfarnar vikur hefur Donald Trump Bandaríkjaforseti ítrekað sagt að mikilvægt sé að Bandaríkin eignist Grænland. Það gerir hann þrátt fyrir að bæði Danir og Grænlendir hafi neitað honum og segja landið ekki til sölu. Í svari frá Hvíta húsinu sem greint var frá fyrr í vikunni sagði að ýmsir möguleikar væru til skoðunar, þar á meðal að beita hervaldi til að taka yfir landið. Sjá nánar: Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði að áherslan væri lögð á að festa kaup á landinu. Ráðamenn halda samt sem áður áfram að ítreka ósk sína og nú síðast sagði Trump að Bandaríkin þurfi að eiga Grænland til að koma í veg fyrir að Rússland og Kína geri það. Lars Lokke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, og Rubio munu funda um Grænland í næstu viku. Vivian Motzfeldt, utanríkisráðherra Grænlands, verður einnig viðstödd fundinn.
Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Bandaríkin Grænland Danmörk Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira