Kvartanir mannsins um ómannúðlega meðferð áður til skoðunar hjá NEL Lovísa Arnardóttir skrifar 27. október 2025 14:37 Páley Bergþórsdóttir er lögreglustjóri á Norðurlandi eystra. Vísir/Vilhelm Lögreglan á Norðurlandi eystra segir kvartanir manns til Nefndar um eftirlit með lögreglu, NEL, áður hafa verið til meðferðar hjá nefndinni án athugasemda hennar. Fjallað var um mál mannsins í kvöldfréttum Sýnar í gær. Ekki er fjallað um það í yfirlýsingu embættisins hvort kvartanir mannsins séu á rökum reistar en þó tekið fram að embættið hafi ekki skilað sínum athugasemdum til NEL.
Lögreglan segir manninn hafa verið úrskurðaðan í síbrotagæslu. Dómstóll eigi eftir að taka til meðferðar 12 ákærur sem gefnar hafa verið út á hendur manninum. Í yfirlýsingu segir að embættið telji það vandkvæðum bundið að fjalla um kvartanir til NEL í fjölmiðlum án þess að nefndin hafi lokið athugun sinni. Í yfirlýsingu embættis lögreglunnar segir að embættinu hafi ekki enn verið gefinn kostur á að koma á framfæri athugasemdum varðandi kvartanir mannsins en að embættið muni afhenda nefndinni öll þau gögn sem hún mun óska eftir. Fram kom í frétt Sýnar í gær að maðurinn telji sig í þrígang hafa verið beittan ómannúðlegri meðferð í haldi lögreglunnar. Fyrst í október 2024 þegar hann hafi sparkað í hurð fangaklefans, þá hafi lúgan á klefanum verið opnuð og rafbyssu miðað inn og honum hótað. Í mars hafi svo piparúðu verið sprautað á hann inn um lúgu, hann hafi svo verið látinn dúsa í klefanum í klukkutíma með nærbuxur sínar einar fyrir vitum. Þriðja kvörtun mannsins snýr að því að hann hafi í júlí hvorki fengið vatn né mat í fjórtán klukkustundir í haldi lögreglu. Hreiðar Eiríksson, lögmaður hans, segir slíka meðferð ekki eiga að líðast. Í síbrotagæslu vegna tuga mála Í yfirlýsingu embættisins segir að í samhengi við þessa umfjöllun sé þó óhjákvæmilegt að nefna að maðurinn hafi, eftir handtökuna í júlí 2025, verið úrskurðaður í síbrotagæslu vegna tuga mála sem voru til rannsóknar hjá lögreglunni. „Gefnar hafa verið út 12 ákærur á hendur viðkomandi vegna 24 mála. Allar ákærurnar hafa verið þingfestar í Héraðsdómi Norðurlands eystra. Embættið mun afhenda NEL öll gögn málsins vegna kvartana sakborningsins um leið og óskað verður eftir því,“ segir að lokum.
Lögreglan Lögreglumál Dómsmál Akureyri Mannréttindi Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Sjá meira