Innlent

Krefjast á­fram­haldandi gæsluvarðhalds yfir leiðbeinandanum

Árni Sæberg skrifar
Maðurinn hafði starfað á Múlaborg í tvö ár þegar hann var handtekinn.
Maðurinn hafði starfað á Múlaborg í tvö ár þegar hann var handtekinn. Vísir/Anton Brink

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun krefjast áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir manni sem grunaður er um kynferðisbrot í starfi sínu sem leiðbeinandi á leikskólanum Múlaborg. Lögregla rannsakar nú ábendingar um brot gegn fleiri börnum á leikskólanum og segir rannsókn miða vel.

Þetta segir Bylgja Hrönn Baldursdóttur, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá kynferðisbrotadeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Ríkisútvarpið.

Maðurinn var handtekinn þann 12. ágúst vegna gruns um kynferðisbrot gegn barni á leikskólanum og hefur tvívegis verið úrskurðaður í gæsluvarðhald. Gæsluvarðhald yfir honum rennur að óbreyttu út í dag. 

Vísir greindi frá því á dögunum á foreldi annars barns á leikskólanum hafi tilkynnt grun um kynferðisbrot gegn barni sínu til lögreglu.

Lögregla hefur hingað til ekki viljað staðfesta fregnir af því en Ríkisútvarpið hefur nú eftir Bylgju Hrönn að lögreglan skoði aðrað ábendingar tengdar Múlaborg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×