Innlent

Bíll valt eftir aftanákeyrslu

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Mynd af vettvangi, tekin á áttunda tímanum í morgun. 
Mynd af vettvangi, tekin á áttunda tímanum í morgun.  Aðsend

Tveir voru fluttir á sjúkrahús eftir aftanákeyrslu sem olli því að bíll valt á Reykjanesbraut í morgun. 

Sölvi Rafn Rafnsson lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á Suðurnesjum staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. Að sögn hans fór betur en á horfðist. 

Hann segir einn hafa verið inni í hvorum bílnum en báðir hafi sloppið með minni háttar áverka. Þá sé annar ökumaðurinn grunaður um akstur undir áhrifum áfengis. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×