Handbolti

Bein út­sending: Ís­lensku strákarnir mæta Fær­eyjum í nágrannaslag á HM

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Íslensku strákarnir verða að vinna leikinn í dag.
Íslensku strákarnir verða að vinna leikinn í dag. IHF

Íslenska 21 árs landsliðið í handbolta spilar í dag sinn annan leik sinn á heimsmeistaramótinu í Póllandi og mótherjinn eru nágrannar okkar frá Færeyjum.

Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir íslenska liðið ekki síst eftir óvænt tap á móti Rúmenum í fyrsta leiknum í gær.

Færeyjar unnu á sama tíma 33-28 sigur á Norður-Makedóníu þar sem Óli Mittún skoraði fimmtán mörk.

Tvö lið komast upp úr riðlinum og því mega íslensku strákarnir helst ekki tapa öðrum leik.

Leikurinn hefst klukkan 9.45 að íslenskum tíma og má horfa á hann í beinni hér fyrir neðan.

  • Íslenski hópurinn:
  • Markverðir:
  • 12 - Ísak Steinsson, Drammen
  • 16 - Breki Hrafn Árnason, Fram
  • Aðrir leikmenn:
  • 3 - Sigurður Snær Sigurjónsson, Haukar
  • 5 - Hans Jörgen Ólafsson, Stjarnan
  • 6 - Sigurður Páll Matthíasson, Víkingur
  • 8 - Andri Fannar Elísson , Haukum
  • 9 - Haukur Ingi Hauksson, HK
  • 10 - Elmar Erlingsson, HSG Nordhorn-Lingen
  • 11 - Birkir Snær Steinsson, Haukum
  • 13 - Eiður Rafn Valsson, Fram
  • 14 - Össur Haraldsson, Haukar
  • 17 - Skarphéðinn Ívar Einarsson, Haukar
  • 18 - Þorvaldur Örn Þorvaldsson, Valur
  • 19 - Hinrik Hugi Heiðarsson, Haukar
  • 22 - Ívar Bessi Viðarsson, ÍBV
  • 32 - Bjarki Jóhannsson, Aalborg Handbold
  • Þjálfarar: Einar Andri Einarsson og Halldór Jóhann Sigfússon.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×