Viðskipti erlent

Hætta við að reka OpenAI í hagnaðar­skyni

Samúel Karl Ólason skrifar
OpenAI rekur ChatGPT, þekktustu gervigreind heimsins.
OpenAI rekur ChatGPT, þekktustu gervigreind heimsins. AP/Peter Morgan

Forsvarsmenn gervigreindarfyrirtækisins OpenAI, sem þróar mállíkanið ChatGPT, hafa hætt við ætlanir um umfangsmiklar breytingar á rekstri fyrirtækisins. Til stóð að reka fyrirtækið í hagnaðarskyni í framtíðinni en nú hefur verið tekin sú ákvörðun að breyta ekki um stefnu og verður fyrirtækinu áfram stýrt af óhagnaðardrifinni stjórn.

Elon Musk, einn auðugasti maður heims, sem kom upprunalega að stofnun OpenAI og hefur nú stofnað sitt eigið gervigreindarfyrirtæki, hefur barist mjög gegn því að rekstri OpenAI verði breytt. Hann hefur meðal annars höfðað mál til að reyna að koma í veg fyrir breytingarnar.

Musk hefur ítrekað verið mjög gagnrýninn í garð Open AI og Sam Altman, forstjóra fyrirtækisins.

Sjá einnig: Enn deila Musk og Altman

Þegar forsvarsmönnum OpenAI varð ljóst að þeir þurftu mun meiri fjármuni en áður hafði verið talið var stofnað sérstakt dótturfélag sem gerði aðilum eins og Microsoft kleift að fjárfesta fúlgur fjár í þróun gervigreindar. Samkvæmt skilmálum þess félags gátu fjárfestar ekki grætt meira en hundraðfalt það sem þeir lögðu til félagsins en stjórnin hefði líka getað ákveðið að hagnaðurinn yrði enginn, reyndist það nauðsynlegt.

Nú vilja stjórnendur OpenAI finna einhverskonar milliveg sem á að gera fyrirtækinu kleift að standa við upprunalegt markmið þess að starfa í þágu mannkyns og gera því kleift að safna þeim miklu fjármunum sem þróun mállíkanna eins og ChatGPT þarfnast, samkvæmt frétt Washington Post.

Nákvæmlega hvernig það verður gert liggur ekki fyrir.

Wall Street Journal segir að í skilmálum einhverra þeirra sem fjárfest hafa í starfsemi OpenAI séu skilyrði um að fyrirtækinu yrði breytt í hagnaðardrifið fyrirtæki. Altman hefur þó sagt að þessi nýja ákvörðun um hverfa frá þeim áætlunum muni ekki hafa áhrif á aðgang að þrjátíu milljarða dala fjárfestingu SoftBank, sem hafði áðurnefnt skilyrði.


Tengdar fréttir

Neituðu að skrifa undir yfirlýsingu um gervigreind

Erindrekar og embættismenn frá Bretlandi og Bandaríkjunum neituðu að skrifa undir fjölþjóðlega yfirlýsingu um þróun gervigreindar. Yfirlýsingin, sem samin var á leiðtogafundi í París, snýst meðal annars um að heita opnu og siðferðilegu ferli við þróun gervigreindartækni.

Gruna að DeepSeek byggi á gögnum ChatGPT

Starfsmenn Microsoft og OpenAI rannsaka hvort að DeepSeek, kínversk gervigreind sem olli usla á mörkuðum vestanhafs í vikunni, byggi á gögnum ChatGPT, gervigreindar OpenAI. Kínverska gervigreindin er sögð standa jafnfætis ChatGPT en á að hafa verið mun ódýrari í þróun og notkun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×