Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Atli Ísleifsson skrifar 8. apríl 2025 07:52 Volodómír Selenskí forseti sagði í ávarpi í nótt að einn af hans æðstu hershöfðingjum hefði nú tilkynnt sér að úkraínskir hermenn séu með stöðu bæði í Belgorod og Kursk. EPA Volodómír Selenskí Úkraínuforseti hefur nú loks staðfest opinberlega að úkraínskir hermenn séu í Belgorod-héraði í Rússlandi.
Sagt er frá þessu á vef BBC. Belgorod-hérað er við landamæri Úkraínu og forsetinn segir að líkt og í Kursk-héraði í Rússlandi, þar sem Úkraínumenn hafa enn ákveðna varnarstöðu þrátt fyrir að hafa hörfað að mestu leyti, sé aðgerðum Úkraínumanna í Belgorod ætlað að verja Úkraínu og héröðin sem eiga landamæri að Rússlandi. Rússar sögðu í síðasta mánuði að Úkraínumenn hefðu reynt innrás inn í Belgorod en að henni hafi verið hrundið. Selenskí forseti sagði hinsvegar í ávarpi til þjóðar sinnar í nótt að einn af hans æðstu hershöfðingjum hefði nú tilkynnt sér að úkraínskir hermenn séu með stöðu bæði í Belgorod og Kursk. Talið er að þetta gagnist Úkraínumönnum á tvennan hátt, Rússar þurfi þá að beita hluta af liði sínu til að berjast við Úkraínumenn í Rússlandi og þurfa þá að hægja á sókn sinni í Donetsk en einnig gæti vígstaða í Rússlandi verið notuð við samningborðið, komi til boðaðra friðarviðræðna við Rússa sem Bandaríkjamenn hafa lagt áherslu á.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Hernaður Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Fleiri fréttir Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Sjá meira