Innlent

„Kannski betra að vera heima og lesa bók“

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Haraldur þurfti bæði að halda í húfuna og handriði út af roki.
Haraldur þurfti bæði að halda í húfuna og handriði út af roki.

Vonskuveður á öllu landinu er framundan í kortunum að sögn veðurfræðings. Veðrið í dag hafði mikil áhrif á flugumferð.

„Það má segja í meginatriðunum að það sé ein eða ein og hálf lægð á dag í kortunum eins langt og má sjá. Þetta verða tómir umhleypingar og þetta eru alvöru vetrarlægðir. Það er stormur í þeim öllum,“ segir Haraldur Ólafsson, veðurfræðingur.

Hlý sunnanátt sé á leiðinni sem gæti leitt til úrhellisrigningu.

„Á mánudag og miðvikudag verða líklega hressandi gusur með hlýindum, mjög hvössum vindi og úrhellisrigningu. Svona inn á milli að þá dúrar aðeins útsynning og éljagang.“

Versta veðrið verði líklega á Suður- og Vesturlandi.

„Það verður ekkert blíðskaparveður neins staðar á landinu,“ segir Haraldur. „Það er kannski betra að vera heima og lesa bók.“

Vésteinn Örn Pétursson, fréttamaður Stöðvar 2, fékk að finna fyrir úrhellisrigningu og roki þegar hann ræddi við Harald í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Umtalsverðar raskanir á flugi

Flestum flugferðum í dag var aflýst eftir hádegi. Flugvélarnar hafi því náð til Evrópu en sitja nú þar fastar.

„Við náðum að fljúga til hádegis í dag eftir stöðvuðum við flug. Það var orðið það hvasst víða á landinu og komið í rauninni slæm veðurskilyrði yfir landinu sjálfu, í rauninni ófært til þess að vera á flugi þannig að við stoppuðum flug og tökum stöðuna upp úr sama tíma um hádegi á morgun,“ segir Guðmundur Tómas Sigurðsson, flugrekstrarstjóri Icelandair.

Ferðaáætlanir margra röskuðust vegna aflýstra fluga.

„Þetta hefur áhrif á gríðarlegan fjölda, þetta eru hátt í tvö þúsund manns sem að verða fyrir áhrifum með einum eða öðrum hætti en þetta er í rauninni besta lausnin til að tryggja að fólk komist á sína áfangastaði frekar en að vera fast hérna í mögulegri gistingu hérna á Íslandi ef að verðrið færi á versta veg,“ segir Guðmundur.

Guðmundur segir að flugfélagið hafi ákveðin tæki og tól til að koma fólki á áfangastaði sína með öðrum leiðinum. Samt sem áður getur veðrið haft umtalsverðar raskanir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×