Innlent

Vegalokanir víða og snjóflóða­hætta

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Hellisheiðinni var lokað að ganga fjögur í dag. Mynd úr safni.
Hellisheiðinni var lokað að ganga fjögur í dag. Mynd úr safni. Vísir/Vilhelm

Ýmsum vegum hefur verið lokað eða eru á óvissustigi vegna veðurs. Óvissustig vegna ofanflóðshættu er í gildi á sunnanverðum Vestfjörðum og sunnanverðum Austfjörðum.

„Nýlegur snjór er á Vestfjörðum og næsta sólarhring má búast við talsverðum leysingum, sérstaklega á sunnanverðum Vestfjörðum,“ segir í tilkynningu frá ofanflóðavakt Veðurstofu Íslands.

Vegunum um Raknadalshlíð og Súðavíkurhlíð á Vestfjörðum verður því lokað klukkan tíu í kvöld vegna snjóflóðahættunnar. Óvissustig tók gildi klukkan fjögur í dag.

Á sunnanverðum Austfjörðum má búast við rigningu og mikið hvassviðri. Vegna hitabreytinga og úrkomumagns eykst því hættan á blautum snjóflóðum og krapaflóðum. Óvissustig tekur gildi klukkan átta í kvöld.

Hellisheiðinni lokað og óvissustig víða

Hellisheiðinni var lokað að ganga fjögur í dag. Þrengslin eru enn opin en skafrenningur er á svæðinu og víða hvasst. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru sterkar vindhviður og mikil rigning í Þrengslunum. Að minnsta kosti fjórir bílar hafa farið út af veginum.

Krýsuvíkurvegur er einnig lokaður vegna veðurs.

Þá hefur einnig öllum vegum á norðanverðu Snæfellsnesi verið lokað og allir vegir á sunnanverðu Snæfellsnesi eru á óvissustigi. Vatnaleið er ófærð vegna veðurs ásamt Fróðárheiði. 

Á Vestfjörðum eru Kleifaheiði og Dynjandisheiði lokaðar ásamt fyrrnefndum lokunum Súðavíkurhlíðar og Raknadalshlíðar klukkan tíu. 

Öxnadalsheiði er á óvissustigi og getur því lokað með skömmum fyrirvara. Einnig er óvissustig á Möðrudalsöræfi

Þónokkrir vegir eru á óvissustigi og gæti verið lokað með skömmum fyrirvara. Þar á meðal er Brattabrekka, Holtavörðuheiði, Öxnadalsheiði og Mývatnsöræfi. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×