Hæstiréttur tekur deilur Vinnslustöðvarinnar og ríkisins fyrir Árni Sæberg skrifar 28. janúar 2025 11:45 Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson er framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar. Vinnslustöðin Hæstiréttur hefur fallist á að taka mál Vinnslustöðvarinnar á hendur ríkinu vegna makrílkvóta fyrir. Landsréttur dæmdi ríkið til að greiða Vinnslustöðinni alls 269 milljónir króna, helmingi minna en héraðsdómur hafði dæmt. Ríkið óskaði sömuleiðis eftir því að Hæstiréttur tæki mál Hugins, sem Vinnslustöðin á, fyrir en Landsréttur dæmdi ríkið til að greiða Hugin 329 milljónir króna.
Forsaga málsins er sú að sjö fyrirtæki kröfðust rúmlega tíu milljarða króna af íslenska ríkinu vegna aflaheimilda á makríl á árunum 2011 til 2018. Fimm af fyrirtækjunum sjö féllu frá málsókn sinni til að sýna samstöðu vegna kórónuveirufaraldursins. Eftir stóðu Vinnslustöðin og Huginn úr Vestmannaeyjum. Á meðan á málarekstrinum stóð keypti Vinnslustöðin Hugin. Landsréttur lækkaði bæturnar Í nóvember í fyrra staðfesti Landsréttur dóm héraðsdóms um að ríkið væri skaðabótaskylt vegna málsins. Landsréttur kvað þó á um lægri bætur en kveðið var á um í héraðsdómi til Vinnslustöðvarinnar. Þar voru þær samanlagt 515 milljónir til Vinnslustöðvarinnar en í Landsrétti námu þær 269,5 milljónum. Í dómi Landsréttar kom fram að kröfur Vinnslustöðvarinnar fyrir árin 2011 og 2012 hafi verið fyrndar en ríkinu væri gert að greiða bætur vegna áranna 2013 til 2018. Dómur Héraðsdóms um Hugin stóð óraskaður og var ríkinu gert að greiða Hugin um 329 milljónir í bætur með vöxtum. Samanlagt þyrfti ríkið því að greiða um 625,5 milljónir í bætur, ásamt vöxtum. Aðilar sammála um nauðsyn aðkomu Hæstaréttar Í ákvörðun Hæstaréttar um beiðnir bæði Vinnslustöðvarinnar og ríkisins um áfrýjunarleyfi segir að Vinnslustöðin hafi byggt á því að sú aðferð sem Landsréttur hafi notað til að ákveða bætur væri röng og með niðurstöðunni hefði verið virt að vettugi sérfræðileg niðurstaða dómkvaddra manna án þess að íslenska ríkið hefði leitast við að hnekkja forsendum matsgerðarinnar með yfirmati. Þá hafi Vinnslustöðin talið að niðurstaða Landsréttar um fyrningu bótakrafna vegna áranna 2011 og 2012 væri bersýnilega röng. Aðilar hafi gert sátt og í henni hafi tjónstímabilið verið tiltekið, það sé árin 2011 til 2014. Að lokum hafi Vinnslustöðin talið ákvörðun Landsréttar um vexti um hluta hinnar dæmdu kröfu bersýnilega ranga. Náðu ekki að nýta kvótann Íslenska ríkið hafi byggt á því að úrslit málsins hefði verulegt almennt gildi. Málið væri fordæmisgefandi um ýmsa grundvallarþætti við ákvörðun almenns fjártjóns, sönnunarbyrði og þýðingu matsgerðar þegar kostnaðarmat er með miklu óvissubili og bótakrefjandi hafi kosið að leggja ekki fram frumgögn ætluðu tjóni sínu til stuðnings. Jafnframt reyni á við hvaða aðstæður sé unnt að dæma bætur að álitum og hvaða kröfur eigi að gera til sönnunarfærslu þegar erfiðleikum er bundið að færa nákvæmar sönnur á tjón. Þá hafi ríkið talið að Landsréttur hafi ranglega byggt á því að óvissubil í matsgerð geti réttlætt að dæma bætur fyrir fiskveiðiár þegar ekki náðist að veiða og vinna heimilan afla. Landsréttur hefði vísað til þess að fyrirtæki leitist almennt við að fullnýta verðmæti sem þeim standi til boða og heimilt hefði verið að flytja allt að 15 prósent af úthlutuðum veiðiheimildum á milli ára. Sú niðurstaða væri bersýnilega röng enda hafi kröfugerð Vinnslustöðvarinnar verið sett þannig fram að krafist væri bóta ár fyrir ár. Hafi vísað til máls sem ætti ekki við Að lokum hafi ríkið talið tilvísun Landsréttar til dóms Hæstaréttar frá árinu 2016 ranga. Í því máli hefði verið tekist á um skilyrði til höfðunar viðurkenningarmáls samkvæmt lögum um meðferð einkamála og hefði það því einungis snúið að því hvort leiddar hefðu verið nægar líkur fyrir tjóni. Dómurinn hefði því ekki fordæmisgildi í þessu máli enda hefði íslenska ríkið síðar verið sýknað af bótakröfum með dómi réttarins í öðru máli. Niðurstaða Hæstaréttar var sú að að virtum gögnum málsins verði að líta svo á að dómur í því geti haft fordæmisgildi meðal annars um sönnunarfærslu og ákvörðun fjártjóns. Beiðni um áfrýjunarleyfi væri því samþykkt. Huginn vildi una við dóm Landsréttar Í annarri ákvörðun um áfrýjunarleyfisbeiðni segir að ríkið hafi óskað eftir því að Hæstiréttur tæki mál Hugins á hendur ríkinu fyrir. Sem áður segir hefur Vinnslustöðin keypt Hugin og Hugin voru dæmdar 329 milljónir króna í bætur í Landsrétti. Í ákvörðuninni segir að Huginn hafi lagst gegn beiðni ríkisins. Ríkið hafi vísað til þess að úrslit málsins hefðu verulegt almennt gildi. Málið væri fordæmisgefandi um ýmsa grundvallarþætti við ákvörðun almenns fjártjóns og sönnunarbyrði. Ríkið hafi vísað til sömu málsástæðna og raktar eru hér að ofan. Niðurstaða Hæstaréttar var sú að að virtum gögnum málsins verði að líta svo á að dómur í því geti haft fordæmisgildi meðal annars um sönnunarfærslu og ákvörðun fjártjóns. Beiðni um áfrýjunarleyfi væri því samþykkt.
Sjávarútvegur Dómsmál Vestmannaeyjar Mest lesið Snjallvinna er ekki það sama og fjarvinna eða hybrid Atvinnulíf Sætur borgarbíll þar til kíkt er í skottið Samstarf Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga slitið Viðskipti innlent Bílanaust flytur í sérhannaðar höfuðstöðvar að Álfabakka 4 Samstarf Trump hækkar tolla á öll lönd Viðskipti erlent Íþróttaálfurinn reynir við Íslandsmet á fjölskylduhátíð BL Samstarf Eins og gæludýr sem borðar og borðar en fitnar ekki neitt Atvinnulíf Bestu íslensku vörumerkin 2025 heiðruð í Hörpu Viðskipti innlent Gefur fermingamyndinni 10 í einkunn Atvinnulíf „Við reiknum með því að bandarísk stjórnvöld séu með plan B“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga slitið „Við reiknum með því að bandarísk stjórnvöld séu með plan B“ Engin viðvarandi markaðssetning frá 2023 Bestu íslensku vörumerkin 2025 heiðruð í Hörpu Allt á uppleið á Grundartanga Nova kaupir Ofar Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Ólafsson gin aftur í eigu Íslendinga Hagnaður af grunnrekstri nam 36 milljörðum Sölvi genginn til liðs við KAPP Líklegra en áður að nýjar íbúðir seljist undir ásettu verði Lindex-höllin verður Kappahl-höllin og ný verslun opnuð 21. mars Arkitektar og verkfræðingar vænta samdráttar á íbúðamarkaði Prófessor slær á áhyggjuraddir 74 prósent íbúða seldist á undirverði í desember Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið Opinberir starfsmenn eigi rétt á sjöfalt fleiri veikindadögum Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Hæstiréttur gefur ÁTVR á baukinn Kristín í Komið gott fær sér dagvinnu Skiptastjóri Play þarf að víkja Innkalla brúna rúllutertu Taka Amaroq af markaði í Kanada Ríkið niðurgreiddi losun Icelandair um rúmar 400 milljónir Deilt um kjör Wolt-sendla Síminn tekur upp nýtt nafn og hagnast um 1,6 milljarða Ólafur Björnsson ráðinn fjármálastjóri Inchcape á Íslandi Loka Duck & Rose á sunnudaginn „Vel skipulögð herferð“ gegn ETS-losunarkerfinu Þóra og Eva sameinaðar á ný í Efstaleitinu Sjá meira