Að vera léttvægur fundinn Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar 18. janúar 2025 18:33 Ég er miðaldra kona, öryrkja og úr lágstétt, komin af verkafólki, þetta eru allt áhættuþættir þegar kemur að því að fá læknisþjónustu. Allir vita að konur eru bara móðursjúkar (Mæli með Móðursýkiskastið á Heimildinni https://heimildin.is/thaettir/modursykiskastid/) og gera allt of mikið úr veikindum sínum og ekki lagast það að verða miðaldra öryrki ja maður getur bara gleymt því í raun. Læknar hlæja að manni, gera lítið úr veikindum manns og hunsa mann og maður upplifir að maður sé fyrir og bara ruglaður. Þetta hefur kostað mannslíf. Nokkur „skemmtileg" dæmi Það hringdi í mig læknir og tjáði mér, „við vitum ekki hvað er að þér en erum nokkuð vissir um að það drepur þig ekki." Ég fékk lyf og leiðbeiningar um inntöku á glasinu var „takist hálftíma fyrir verki." Ég þurfti að endurnýja örorkuna mína fyrir mörgum árum, læknirinn mælti með 50% örorku því það væri ekkert líf fyrir þrítuga konu að sitja heima alla dag, þó það sé kannski rétt þá læknaði það mig ekki, ég varð samt að bíta á jaxlinn og vinna hálfan daginn í tvö ár uns ég fékk þessu breytt aftur. 2018 sagði ég lækni frá vandamáli sem hefði verið að hrjá mig um skeið, hún brást hlæjandi við og spurði, með orðunum hvernig getur það gerst, ég komst svo að því síðar þegar ég þorði að nefna þetta við annan læknir að þetta væri ekkert til að hlæja að og hefði betur verið rannsakað betur þá og væri líklega tengt þessu sem er að hrjá mig núna. Eitt ruglið var að læknir, sem ég var búin að bíða eftir tíma hjá í 15 daga svo hann gæti tilvísaði mér áfram gleymdi að senda tilvísunina af stað... ég komst að því fyrir tilviljun, svo ég þurfti að bíða eftir öðrum tíma í nokkra daga hjá öðrum lækni svo hægt væri að klára þetta, þetta var bráðatilfelli! Heilbrigðisstarfsmaður hringdi að bjóða mér tíma í rannsókn ég gat fengið tíma 28 Apríl, ég missti út úr mér, ég lifi það ekki af að bíða svo lengi, henni varð á að hlæja.... svo ég sagði henni að mér væri alvara, ég væri í forgang vegna bráðatilfellis og minn læknir hefði talað um 13 Mars .... þegar hún skoðaði málið sá hún að þetta var bara skráð inn á spjall á innri vef starfsmanna en tíminn aldrei skráður.......... Annar læknir ætlaði að hringja strax þegar hann kæmi úr fríi, það var í ágúst 2023 Ég fór til heimilislæknis í enda árs og ætlaði hann að kanna nokkra hluti fyrir mig, ég les svo á fréttamiðlum að hann er hættur og engir læknar á staðnum, hvað með mig og mín veikindi? er öllum sama þó ég sé búinn að vera með hausverk síðan í ágúst vegna lyfja en hann ætlaði að skoða hvaða önnur lyf sem ég gæti fengið? eða að ég sé enn með verki og hreyfiskerðingu síðan ég braut úlnliðinn fyrir ári, hann sendi mig í myndgreiningu en hvað ef engin fylgir því eftir eða veit af því þá gerist varla neitt, eina leiðin er að bíða eftir öðrum tíma í nokkra mánuði. Ég þurfti að leita á bráðamóttökuna núna í byrjun janúar því það small eitthvað í öxlinni á mér, læknirinn vildi senda mig í myndrannsókn og sagði mér að láta heimilislæknirinn fylgja því eftir, ég tjáði henni að ég byggi á Hvolsvelli og þar væru engir læknar, svo mælti hún með að ég hefði samband við sérfræðilæknirinn sem ég er hjá og segði honum hvað hefði gerst, ég sagði henni að ekki væri hægt að hringja í hann, hún hélt nú samt að hann vildi vita af þessu, en hann er einn af þessum Óínáanlegu, ég pantaði símatíma það eru komnar 2 vikur síðan. En öryrkjar þekkja þetta vel að vera aftast í röðinni og gleymast ótengt kyni og aldri, það sama má segja um þá sem lifa við fátækramörk og ekki geta farið í rannsóknir og pantað tíma hjá hvaða lækni sem er. Það þarf að verða viðhorfsbreyting hjá læknastéttinni gagnvart konum, öryrkjum og láglaunafólki við eigum ekki og getum ekki alltaf beðið, við megum líka eiga okkur mannsæmandi líf minni áhyggjur og verki. Hvernig væri að veita meiri pening í heilbrigðiskerfið svo allir geti fengið viðunandi þjónustu óháð kyni og fjárhag? Og bæta kjör þeirra lægst launuðustu því án okkar getið þið ekki sinnt ykkar störfum, það þarf að þrífa, passa börn, annast aldraða og sjúka og elda mat, án verkafólks myndi fátt gerast í þjóðfélaginu. Hættum að mismuna fólki við erum öll mikilvæg. Ómissandi fólk - Magnús Eiríksson https://www.youtube.com/watch?v=2qgMF6_Xf-o Höfundur hefur verki með þessu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Guðmunda G. Guðmundsdóttir Heilbrigðismál Mest lesið Halldór 18.01.2025 Halldór Upplýsingaóreiða og rannsóknir á mettaðri fitu Hópur lækna Skoðun Er heimurinn á leið til helvítis? Árni Sigurðsson Skoðun 13,5 milljónir Sigurður Freyr Sigurðarson Skoðun Blað brotið í húsnæðismálum: VR Blær afhendir sínar fyrstu íbúðir Halla Gunnarsdóttir,Ragnar Þór Ingólfsson Skoðun Fögnum vopnahléi og krefjumst varanlegs friðar Svandís Svavarsdóttir,Guðmundur Ingi Guðbrandsson Skoðun Hvammsvirkjun og meintur orkuskortur Ólafur Páll Jónsson Skoðun Vinnum í lausnum Edda Sif Pind Aradóttir Skoðun Kóngar vímuefnaheimsins Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Hvað með það þótt sérfræðingar að sunnan fari í verkfall? Silja Bára Ómarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvammsvirkjun og meintur orkuskortur Ólafur Páll Jónsson skrifar Skoðun 13,5 milljónir Sigurður Freyr Sigurðarson skrifar Skoðun Að vera léttvægur fundinn Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fögnum vopnahléi og krefjumst varanlegs friðar Svandís Svavarsdóttir,Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Skoðun Er heimurinn á leið til helvítis? Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Vinnum í lausnum Edda Sif Pind Aradóttir skrifar Skoðun Blað brotið í húsnæðismálum: VR Blær afhendir sínar fyrstu íbúðir Halla Gunnarsdóttir,Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Frelsi til sölu Anton Guðmundsson skrifar Skoðun Loftmengun yfir áramótin og mikilvægi inniloftsgæða allt árið Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir,Árna Benediktsdóttir skrifar Skoðun Leikskólakerfið á krossgötum: Gæði eða hraði? Svava Björg Mörk skrifar Skoðun Hvað með það þótt sérfræðingar að sunnan fari í verkfall? Silja Bára Ómarsdóttir skrifar Skoðun Svar við „Upplýsingaóreiða og rannsóknir á mettaðri fitu“ Rajan Parrikar skrifar Skoðun Dýr eiga skilið samúð og umhyggju Anna Berg Samúelsdóttir skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða og rannsóknir á mettaðri fitu Hópur lækna skrifar Skoðun Gervigreind og markþjálfun: Samvinna eða samkeppni? Ásta Guðrún Guðbrandsdóttir skrifar Skoðun Bjarni Ben í þátíð Guðmundur Einarsson skrifar Skoðun Ísland og stórveldin Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Brjóstakrabbamein – náum enn meiri árangri með stóraukinni þátttöku í skimun Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Ósvífin olíugjöld kynda undir verðbólgu Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Eru skattar og gjöld verðmætasköpun? Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hvað er græni veggurinn að reyna að segja okkur? Bjarki Gunnar Halldórsson skrifar Skoðun Sorg barna - Sektarkennd og samviskubit Matthildur Bjarnadóttir skrifar Skoðun Í leikskóla er gaman – þegar það má mæta Valentina Tinganelli,Eyjólfur Sigurjónsson,Elísabet Erlendsdóttir,Sigrún Torfadóttir,Daniel Karlsson,Særún Ósk Böðvarsdóttir,Anna Margrét Arthúrsdóttir,,Una Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Ísland verði Noregur á sterum: Sannleikurinn er lyginni líkastur- náttúruauðlindir fást gefins Björn Ólafsson skrifar Skoðun Hvers vegna hafa Svíar ekki tekið upp evruna? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Górillur í postulínsbúð – Nýfrjálshyggjuklíkan tekur völdin Guðröður Atli Jónsson skrifar Skoðun Leikskólakerfið: Samfélagsgildi fram yfir hagnað Svava Björg Mörk skrifar Skoðun Hagræðing í ríkisrekstri: Heilræði fyrir nýja ríkisstjórn Ómar H. Kristmundsson skrifar Skoðun Mikilvægi stöðutöku á stafrænni hæfni fyrir íslensk ferðaþjónustufyrirtæki Ólína Laxdal,Sólveig Nikulásdóttir skrifar Skoðun Ögn um Vigdísarþætti Hallgrímur Helgi Helgason skrifar Sjá meira
Blað brotið í húsnæðismálum: VR Blær afhendir sínar fyrstu íbúðir Halla Gunnarsdóttir,Ragnar Þór Ingólfsson Skoðun
Fögnum vopnahléi og krefjumst varanlegs friðar Svandís Svavarsdóttir,Guðmundur Ingi Guðbrandsson Skoðun
Skoðun Fögnum vopnahléi og krefjumst varanlegs friðar Svandís Svavarsdóttir,Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar
Skoðun Blað brotið í húsnæðismálum: VR Blær afhendir sínar fyrstu íbúðir Halla Gunnarsdóttir,Ragnar Þór Ingólfsson skrifar
Skoðun Loftmengun yfir áramótin og mikilvægi inniloftsgæða allt árið Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir,Árna Benediktsdóttir skrifar
Skoðun Brjóstakrabbamein – náum enn meiri árangri með stóraukinni þátttöku í skimun Halla Þorvaldsdóttir skrifar
Skoðun Í leikskóla er gaman – þegar það má mæta Valentina Tinganelli,Eyjólfur Sigurjónsson,Elísabet Erlendsdóttir,Sigrún Torfadóttir,Daniel Karlsson,Særún Ósk Böðvarsdóttir,Anna Margrét Arthúrsdóttir,,Una Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Ísland verði Noregur á sterum: Sannleikurinn er lyginni líkastur- náttúruauðlindir fást gefins Björn Ólafsson skrifar
Skoðun Mikilvægi stöðutöku á stafrænni hæfni fyrir íslensk ferðaþjónustufyrirtæki Ólína Laxdal,Sólveig Nikulásdóttir skrifar
Blað brotið í húsnæðismálum: VR Blær afhendir sínar fyrstu íbúðir Halla Gunnarsdóttir,Ragnar Þór Ingólfsson Skoðun
Fögnum vopnahléi og krefjumst varanlegs friðar Svandís Svavarsdóttir,Guðmundur Ingi Guðbrandsson Skoðun