Fluttur úr landi grunaður um að valda gassprengingu sem drap einn Jón Þór Stefánsson skrifar 15. janúar 2025 08:02 Landsréttur úrskurðaði um gæsluvarðhald í málinu. Vísir/Vilhelm Pólskur karlmaður var afhentur til Póllands frá Íslandi á grundvelli evrópskrar handtökuskipunar í vetur vegna meintra brota hans í heimalandinu. Hann er grunaður um að hafa valdið mannskæðri gassprengingu.
Í gæsluvarðhaldsúrskurði á hendur manninum frá nóvember síðastliðnum segir að maðurinn sé grunaður um almannahættubrot og eignaspjöll. Hann er talinn hafa, þann 7. nóvember 2017 , aftengt gasleiðslu svo gas lak, og svo borið eld að. Fyrir vikið varð gassprenging og eldsvoði þar sem einn lét lífið og fjöldi annarra var í hættu. Fram kemur að brot mannsins geti varðað allt að tólf ára fangelsi samkvæmt pólskum hegningarlögum. Maðurinn var handtekinn hér á landi vegna evrópskrar handtökuskipunar frá pólskum yfirvöldum. Það var mat ríkissaksóknara að nauðsynlegt væri að maðurinn yrði í haldi vegna meðferðar málsins. Hann var sagður eiga lítil tengsl við Íslands, og að hann hefði ekki fyllilega sinnt tilkynningarskyldu sinni. Þá segir að hann hafi frá því að málið kom upp mótmælt afhendingu til Póllands. Lögreglan taldi einnig mikilvægt að hann yrði í gæsluvarðhaldi. Það væri auðvelt fyrir eftirlýstan mann að leynast hér á landi og komast þannig undan afhendingu. Þá væri mikil hætta á því að hann myndi reyna að komast úr landi þar sem lítil landamæragæsla væru á innri landamærum Schengen-svæðisins.
Dómsmál Lögreglumál Pólland Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Fleiri fréttir Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Sjá meira