Heim í hlýjuna en alls ekki á heimleið Elvar Már Friðriksson fagnar því að komast heim í hlýjuna á Íslandi eftir sérlega kaldan vetur í Póllandi. Orðrómar um að hann snúi alfarið heim í haust eru á sandi byggðir. Körfubolti 27.2.2026 08:00
Yrði glaður að fá Ísland í ESB: Atkvæðagreiðsla á næstu mánuðum Forsætisráðherra Póllands talaði ítrekað fyrir því að Ísland myndi ganga í Evrópusambandið á sameiginlegum blaðamannafundi hans með Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra Íslands. Hún ítrekaði að ákvörðun um áframhaldandi viðræður við ESB ættu eftir að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hún tók fram að atkvæðagreiðslan verði á næstu mánuðum. Innlent 25.2.2026 18:11
Fékk Prins Póló: „Pabbi þetta er fyrir þig“ Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra Íslands, fundaði í dag með Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands. Í lok fundarins gaf hann henni Prins Póló, sem kemur frá Póllandi. Innlent 25.2.2026 17:16
Úkraínskir útsendarar Rússa sagðir að baki skemmdarverkunum Forsætisráðherra Póllands segir að tveir Úkraínumenn sem starfa fyrir rússnesku leyniþjónustuna hafi framið skemmdarverk á lestarteinum um helgina. Annar þeirra hafi þegar hlotið dóm fyrir skemmdarverk í heimalandi sínu. Erlent 18. nóvember 2025 15:00
Telja að lestarteinar hafi verið sprengdir viljandi í Póllandi Pólsk stjórnvöld fullyrða að vísvitandi skemmdarverk hafi átt sér stað um helgina þegar sprenging eyðilagði lestarteina sem tengja Varsjá og Lublin. Engan sakaði í sprengingunni. Erlent 17. nóvember 2025 10:06
Leiðtogi AfD segir Rússa ekki ógna Þýskalandi en varar við Pólverjum Tino Chrupalla, annar af æðstu leiðtogum flokksins Valkostur fyrir Þýskaland eða AfD, segir Þýskalandi ekki stafa nokkur ógn af Rússlandi Vladimírs Pútín. Það sama segir hann þó ekki um Pólland. Churpalla telur að Þýskalandi gæti stafað ógn af Póllandi. Erlent 13. nóvember 2025 10:09
Ósammála lækni og greiðir fyrir aðgerðina sjálfur Tomasz Bereza er ósáttur við það að Sjúkratryggingar Íslands taki ekki þátt í að greiða aðgerð sem hann ætlar að fara í vegna rofs á hljóðhilmu og heilahimnubólgu fyrir um þremur árum. Háls-, nef- og eyrnalæknir á Íslandi er ekki sannfærður um að aðgerðin geri gagn og vill ekki framkvæma aðgerðina. Tomasz ætlar því til Póllands og greiðir fyrir aðgerðina sjálfur. Innlent 10. nóvember 2025 09:13
Réttað yfir konu sem sagðist vera Madeleine McCann Réttað er yfir pólskri konu sem heldur því fram að hún sé Madeleine McCann. Hún var handtekin í febrúar og er ákærð fyrir umsáturseinelti gegn foreldrum McCann. Konan hefur mætt heim til hjónanna og hringt ítrekað í þau í þeirri von að þau trúi að hún sé týnda dóttir þeirra. Erlent 27. október 2025 16:43
Tveggja barna foreldrar verða undanþegnir tekjuskatti Karol Nawrocki, forseti Póllands, hefur skrifað undir lög sem gera tveggja barna foreldra undir ákveðnu frítekjumarki undanþegna tekjuskatti. Markmiðið er að stemma stigu við sögulegri lægð í fæðingartíðni og örva pólska hagkerfið. Erlent 19. október 2025 11:08
Dróna- og skuggastríð í Evrópu: Hvað gengur Rússum til og hvað getur NATO gert? Tilkynningum um rússneska dróna eða rússneskar herþotur inn í lofthelgi eða á loftvarnarsvæðum ríkja Atlantshafsbandalagsins hefur náð nýjum hæðum í þessum mánuði. Þetta hefur varpað ljósi á holur í vörnum NATO og í senn vakið spurningar um hvað ráðamönnum í Rússlandi standi til. Erlent 27. september 2025 16:01
Fyrstur til að skíða niður Everest án súrefnis Andrzej Bargiel, 37 ára Pólverji, varð í vikunni fyrsti maður sögunnar til að skíða niður Everest, hæsta fjall heims, án súrefnistanks. Lífið 26. september 2025 07:41
Troðfyllti stangirnar af amfetamínbasa 35 ára pólskur karlmaður, Wojciech Pawelczyk, hefur verið dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir innflutning á 5,2 lítrum af amfetamínbasa frá Póllandi til Íslands. Efnið var falið í barnakoju, þó að maðurinn væri barnlaus. Innlent 23. september 2025 13:52
Segir Pólverja ekki muna hika við að skjóta „hluti“ niður Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, segir að hermenn og flugmenn ríkisins muni ekki hika við að skjóta niður hluti sem eru óvelkomnir í lofthelgi Póllands og taldir eru ógna öryggi fólks. Hann sagði þó einnig að stigið yrði varlega til jarðar í óskýrum aðstæðum. Erlent 22. september 2025 16:23
Eistar óska eftir samráði NATO eftir að Rússar rufu lofthelgi þeirra Eistar hafa óskað eftir því að virkja 4. grein Atlantshafssáttmálans sem kveður á um að ríki geti óskað eftir því að bandalagsríkin ráði ráðum sínum ef eitthvert þeirra telur öryggi sínu ógnað. Eista segja Rússa hafa flogið þremur herþotum inni í flughelgi sína í gær. Þeim var að enda fylgt út af ítölskum flugmönnum F-35 þota á vegum Atlantshafsbandalagsins Erlent 20. september 2025 07:50
Sviptu hulunni af skósveinum GRU sem sendu sprengjur í flugvélar Saksóknarar í Litháen segjast hafa svipt hulunni af hópi manna tengdum Rússlandi sem skipulagt hafi og framkvæmt íkveikjuárásir víðsvegar um Evrópu. Einhverjir mannanna hafa verið handteknir en þeir eru meðal annars grunaðir um að senda eldsprengjur um borð í flugvélar DHL á vegum Leyniþjónustu rússneska hersins (GRU). Erlent 18. september 2025 14:09
NATO og Rússland „augljóslega“ í stríði Atlantshafsbandalagið og Rússland eiga „augljóslega“ í stríði. Þetta sagði Dmitrí Peskóv, talsmaður Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, við blaðamenn í Moskvu í morgun. Stuðningur margra ríkja NATO við Úkraínu jafngilti að bandalagið væri í raun og veru stríð við Rússland. Það væri augljóst að stríðsástand ríkti. Erlent 15. september 2025 15:46
Vill drónavarnir á Íslandi Sérfræðingur í öryggis- og varnarmálum segir atburði síðustu daga sýna að íslensk stjórnvöld þurfi að skoða að setja upp drónaloftvarnir. Rússar flugu drónum tvisvar inn fyrir lofthelgi NATO-ríkja í síðustu viku. Innlent 14. september 2025 21:00
Rússnesk flygildi rufu lofthelgi NATO Rússnesk fylgildi rufu lofthelgi Rúmeníu í dag. Þau fóru að sögn úkraínskra stjórnvalda um það bil tíu kílómetra inn fyrir landamæri Rúmeníu og voru þar í um fimmtíu mínútur. Erlent 13. september 2025 19:44
NATO eflir varnir í austri Atlantshafsbandalagið hyggst efla varnir sínar í austurhluta Evrópu eftir að 21 rússnesku flygildi var flogið inn í lofthelgi Póllands. Erlent 12. september 2025 18:08
Rándýrar herþotur og flugskeyti gegn ódýrum drónum Úkraínumenn hafa um árabil varist svo gott sem daglegum árásum Rússa með sjálfsprengidróna og eldflaugar. Til þessa notast þeir marglaga varnir en þróun þessara varna hefur að miklu leyti gengið út á að draga eins og hægt er úr kostnaði við varnirnar en drónarnir eru tiltölulega ódýrir í framleiðslu og flugskeyti í loftvarnarkerfi og herþotur eru það alls ekki. Erlent 11. september 2025 18:53
Neyðarfundur verði boðaður í Öryggisráði SÞ Boðað verður til neyðarfundar í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, að beiðni Pólverja, aðgerða Rússa innan pólskar lofthelgi. Enn stendur yfir rannsókn vegna rússnesku drónanna sem sendir voru inn fyrir pólska lofthelgi í fyrrinótt, en nokkrir þeirra voru skotnir niður. Erlent 11. september 2025 09:42
Segir gott að brugðist var við með valdi og NATO þurfi að sýna styrk Utanríkisráðuneytið fylgist náið með stöðunni í Póllandi í kjölfar atburða næturinnar og hvetur Íslendinga í Póllandi sem kunni að þurfa á aðstoð að halda að samband við borgaraþjónustuna. Formaður utanríkismálanefndar Alþingis segir gott að brugðist hafi verið við með valdi þegar rússneskir drónar voru skotnir niður í pólskri lofthelgi í nótt. Innlent 10. september 2025 12:25
Hugsanlega verið að reyna á einingu NATO-ríkja Pólverjar hafa ekki verið nær stríði frá seinni heimstyrjöld segir forsætisráðherra landsins eftir að rússneskir drónar voru skotnir niður í lofthelgi þeirra í nótt. Sérfræðingur í öryggis- og varnarmálum segir mögulegt að Rússar séu að láta reyna á staðfestu og einungu innan Atlantshafsbandalandsins. Innlent 10. september 2025 11:58
Pólland ekki verið nær stríði frá því í seinni heimsstyrjöldinni Forsætisráðherra Póllands segir að landið hafi ekki verið nær því að lenda í opnum stríðsátökum frá því í síðari heimsstyrjöldinni eftir að rússneskir drónar voru skotnir niður þar í nótt. Rússar hafi farið yfir strikið. Erlent 10. september 2025 11:24