„Þannig jólin komu snemma hjá mér“ Jón Ísak Ragnarsson skrifar 22. desember 2024 17:00 Hanna Katrín Friðriksson er atvinnuvegaráðherra, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra og Ásthildur Lóa Þórsdóttir mennta- og barnamálaráðherra. Vísir/viktor Ráðherrar nýrrar ríkisstjórnar fengu lyklana að ráðuneytum sínum afhenta í dag frá forverum sínum. Mikið var um blendnar tilfinningar og velfarnaðaróskir. Jólin komu snemma hjá Þorbjörgu Sigríði dómsmálaráðherra, Hanna Katrín finnur fyrir mikilli ábyrgð og Ásthildur Lóa ætlar að kenna börnum að lesa.
Hanna Katrín tók við lyklunum að atvinnuvegaráðuneytinu frá Bjarna Benediktssyni, sem var matvælaráðherra í fráfarandi starfsstjórn. Hún segir að tilfinningin að taka við ráðuneytinu sé góð. Hún finni fyrir mikilli ábyrgð. „Þetta er risaverkefni, hér liggja undir grunnatvinnuvegir þjóðarinnar sem skipta miklu máli ekki bara sem efnahagslegar stoðir heldur líka menningarlegar stoðir í samfélaginu okkar,“ segir hún. Bjarni Benediktsson afhenti Hönnu Birnu Friðriksson lyklana að atvinnuvegaráðuneytinu, sem áður hét matvælaráðuneytið.Vísir/Viktor „Þannig ég mun leggja mig alla fram. Mun verja fyrstu dögum, og vikum, ef til vill mánuðum í að setja mig vel inn í mál. Það er margt að gera og ég mun hlaupa hratt.“ Atvinnuvegaráðuneytið er nýtt ráðuneyti sem áður var matvælaráðuneyti, en undir það heyra málefni landbúnaðar, sjávarútvegs, iðnaðar, viðskipta, neytendamála og ferðamála. Jólin koma snemma hjá dómsmálaráðherra Guðrún Hafsteinsdóttir afhenti Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur lyklana að dómsmálaráðuneytinu, eða öllu heldur plastspjaldið sem notað er sem lykil. Svo gaf hún Þorbjörgu táknrænan lykil. Þorbjörg kvaðst mjög glöð að vera komin í ráðuneytið. „Þetta er sérstök tilfinning að koma hérna inn og kveðja ráðherra sem ég hef auðvitað unnið með á alþing og hérna þakkað henni auðvitað fyrir sín störf. En ég er voða glöð og ég er björt þennan dag og hlakka mikið til framhaldsins að fá að takast á við þá málaflokka sem hér eru,“ segir Þorbjörg. Hún segir að dómsmálaráðuneytið sé það ráðuneyti sem hún hefði helst óskað sér að setjast í, ef til þess kæmi að hún fengi til þess traust. Guðrún afhendir Þorbjörgu táknrænan lykil.Vísir/viktor „Þannig jólin koma snemma hjá mér,“ segir hún. Í hennar huga er um að ræða ráðuneyti öryggis og réttlætis, og hún ætlar að verða málsvari þeirra gilda. „Þeir málaflokkar sem ég tel að sé brýnast að horfa til núna eru málaflokkar sem að snerta öryggisþáttinn. Við sjáum að það eru að verða breytingar á íslensku samfélagi. Alvarlegum afbrotum fer fjölgandi, morðum fer fjölgandi, skipulögð glæpastarfsemi hefur náð að festa rætur hér í samfélaginu. Síðan myndi ég segja sem kona að það sem við erum að upplifa og sjá varðandi alvarlegt ofbeldi gagnvart konum séu þau verkefni sem þarf að horfa fast á og taka alvarlegum og föstum tökum.“ Tilfinningin yfirþyrmandi en hlý Ásthildur Lóa nýr mennta- og barnamálaráðherra segir að tilfinningin að taka við ráðuneytinu sé yfirþyrmandi, en hlý og góð. Ásmundur Einar Daðason afhenti lyklana að ráðuneytinu. Ásmundur Einar Daðason og Ásthildur Lóa Þórsdóttir.Vísir/viktor Fyrsta verk hjá henni verður að setjast niður með ráðuneytisstjóranum og fara yfir helstu mál. „En það sem stendur upp úr er að takast á við læsi barna og svo íslenskukennslu fyrir innflytjendur, bæði fullorðna og börn,“ segir hún.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Innlent Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Erlent Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Erlent „Þú veist að ég er sú sem að passar best hérna inn“ Innlent „Ég fæ ekki séð hvaða rugl þetta er“ Innlent „Kurr í greininni í dag um að þetta skuli hvort tveggja vera á matseðlinum“ Innlent Segir Helga Magnús óhæfan til að gegna embættinu Innlent Fyrsti læknirinn í heilbrigðisráðuneytinu Innlent „Ég veit að þér mun sömuleiðis líða vel hér“ Innlent Yfirgaf jólatónleika í sjúkrabíl Innlent Fleiri fréttir „Heimsins furðulegasti fiskur“ afhentur í fjármálaráðuneytinu 107 ára gömul og dansar eins og unglamb Kirkjutröppurnar opnaðar að nýju og hiti í hverju þrepi Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Umferðartafir vegna bílveltu á Mýrum Lyklaskipti og afmæli elsta Íslendingsins Segir Helga Magnús óhæfan til að gegna embættinu „Þannig að jólin komu snemma hjá mér“ „Ég fæ ekki séð hvaða rugl þetta er“ Fyrsti læknirinn í heilbrigðisráðuneytinu Það bráðvantar börn á leikskólann á Hvanneyri „Þú veist að ég er sú sem að passar best hérna inn“ „Ein allra besta jólagjöfin“ „Ég veit að þér mun sömuleiðis líða vel hér“ Skortur á sjúkragæslu á viðburðum hafi áhrif á neyðarþjónustu Eftirliti á viðburðum ábótavant og skynsemi í orkumálum Vegir víða hálir á morgun og blint á fjallvegum Stjórnarleiðtogar sitja fyrir svörum á Sprengisandi „Afskaplega róleg“ nótt hjá lögreglumönnum Þakklæti, auðmýkt, rok og söngur ríkisstjórnarinnar „Kurr í greininni í dag um að þetta skuli hvort tveggja vera á matseðlinum“ Breytingar á ráðuneytum taka ekki gildi fyrr en í mars Mest skreytta jólahúsið í Hveragerði Yfirgaf jólatónleika í sjúkrabíl Ný ríkisstjórn Íslands: „Við erum orðnar vinkonur“ Allt um nýja ríkisstjórn Íslands í kvöldfréttum Krónan muni veikjast og allir halda að sér höndum Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB eigi síðar en 2027 „Mjög þunn súpa, lítið í henni“ Ætla að fjölga lögreglumönnum verulega Sjá meira