Kastaði hundi í lögreglumann Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 7. desember 2024 07:23 Mynd úr safni. Vísir/Vilhelm Ágreiningur milli mæðra fór svo að önnur kastaði litlum hundi sem hún hélt á í bringu lögreglumanns. Konan var töluvert ölvuð og var að lokum handtekin. Hundurinn reyndist ómeiddur eftir kastið.
Þá réðst einstaklingur á skjólstæðing gistiskýlis Reykjavíkurborgar með flösku eftir að síðarnefndi hafði slegið hann. Einstaklingnum hafði verið vísað út úr gistiskýlinu fyrr um kvöldið vegna æsings. Voru báðir aðilarnir vistaðir í fangaklefa. Í dagbók lögreglu á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að átta manns séu vistaðir í fangageymslu eftir nóttina. Sjö ökumenn voru þá stöðvaðir vegna ölvunaraksturs. Einn ökumaður sem var stöðvaður af lögreglu reyndist vera með mikið magn fíkniefna í bílnum ásamt peningum. Hann er grunaður um sölu fíkniefna og var vistaður í fangageymslu. Þá barst lögreglu tilkynning um mikla klórlykt á stigagangi fjölbýlishúss. Í íbúðinni var mikil ammoníaklykt og fundust vopn og mikið magn fíkniefna þar. Húsráðandi sagðist hafa verið að spreyja skordýraeitri til að drepa flugur. Hann var fluttur til frekari aðhlynningar. Tilkynnt var um líkamsárás á dyravörð í Hafnarfirði en árásarmaðurinn var ölvaður og andlega veikur. Lögreglan þekkti manninn vegna fyrri afskipta. Hann var vistaður í fangaklefa.
Lögreglan Lögreglumál Hundar Reykjavík Mest lesið Líþíumrafhlaða líkleg orsök eldsins Innlent Íslenskur farþegi í bílslysi þar sem barn lést Erlent Tveir létust þegar skip á leið til Íslands sigldi á Brooklyn-brúna Erlent Gegndarlaus áróður hafi tryggt gott gengi Ísraels Innlent Eins og að vera fangi í eigin líkama Innlent Hundur drapst af völdum hitaslags á höfuðborgarsvæðinu Innlent Gullfallegt fley Getty-kóngsins við Reykjavíkurhöfn Innlent Joe Biden með krabbamein Erlent Segja kristnar kirkjur ekki geta staðið hjá Innlent Grunaðir um að neyða pilt upp í bíl og gefa honum rafstuð Innlent Fleiri fréttir Saumandi hressar og skemmtilegar bútasaumskonur Hundur drapst af völdum hitaslags á höfuðborgarsvæðinu Besta maíveður í manna minnum og ungir ofurhugar Varað við bikblæðingum um land allt Líþíumrafhlaða líkleg orsök eldsins Gullfallegt fley Getty-kóngsins við Reykjavíkurhöfn Tilraun með ræktun hveitis á Íslandi gefur góð fyrirheit Grunaðir um að neyða pilt upp í bíl og gefa honum rafstuð Gegndarlaus áróður hafi tryggt gott gengi Ísraels Ekki hissa á góðu gengi Ísrael og innsetningarmessa páfans Segja kristnar kirkjur ekki geta staðið hjá Staðan í hagkerfinu og alþjóðamálin Eins og að vera fangi í eigin líkama Þrír réðust á ungan mann í Árbænum og flúðu á brott Þegar Þorvaldur í Síld og fisk varð örlagavaldur Loftleiða Framtíðar kvikmyndagerðarfólk í Sunnulækjarskóla á Selfossi Fölsuð ökuskírteini aldrei fleiri og aldrei verið eins fullkomin Laugdælingur og Hvergerðingur hlutskarpastir í Pangeu Fjölgun falsaðra skilríkja og úrslitakvöld Eurovision Hafa náð stjórn á sinueldi í sumarhúsabyggð Hryðjuverkamálið gæti haft verulega þýðingu Grunaður um að fá alls konar búnað frá fyrirtæki fyrir fíkniefnarækt „Það eru krakkar þarna núna sem eru bara í lífshættu” Styður tillögur að róttækum breytingum á byggingareftirliti Róttækar breytingar á byggingareftirliti og í beinni frá Basel Blöndulón fyllist sögulega snemma og staðan góð í lónum Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Svalt þokuloft ekki langt undan Ók fullur á nokkra kyrrstæða bíla Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Sjá meira