Innlent

Hæsti­réttur segir eignafærsluna milli kyn­slóða lög­mæta

Árni Sæberg skrifar
Lífeyrissjóður Verslunarmanna fór með málið beint í Hæstarétt.
Lífeyrissjóður Verslunarmanna fór með málið beint í Hæstarétt. Vísir/Vilhelm

Hæstiréttur hefur skorið á hnútinn í deilu Lífeyrissjóðs Verslunarmanna og sjóðfélaga vegna eignafærslu milli kynslóða, með mismikilli lækkun mánaðarlegra greiðslna eftir aldri. Eignafærslan er lögmæt.

Niðurstaðan var kveðin upp í Hæstarétti klukkan 14 en dómurinn hefur ekki verið birtur og því liggja forsendur hans ekki fyrir.

Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp þann 30. nóvember var fallist á kröfur stefnanda sem er sjóðfélagi í sameignardeild LV þar sem krafist var ógildingar á tilteknu ákvæði samþykktabreytinga sem tóku gildi um þarsíðastliðin áramót.

Breytingarnar fólu í sér að áunnin réttindi sjóðfélaga í sameignardeild voru umreiknuð þannig að mánaðarlegar greiðslur lækkuðu mismikið eftir aldri.

Lífeyrissjóðir brugðust við öldrun þjóðarinnar

Breytingarnar fólust í að sjóðurinn var að sögn LV að bregðast við nýjum dánar- og eftirlifendatöflum þar sem gert er ráð fyrir að sérhver árgangur lifi lengur en árgangurinn á undan. Sjóðurinn taldi sér skylt að taka mið af þessu og lækkaði áunnin réttindi sjóðfélaga mismikið eftir aldri. Þannig var greiðslum dreift yfir lengra tímabil hjá yngri kynslóðum en þeim eldri því sjóðurinn gerir ráð fyrir að þær yngri lifi lengur en þær eldri.

Aðrir lífeyrissjóðir sem gerðu sambærilegar breytingar eru Gildi lífeyrissjóður, Almenni lífeyrissjóðurinn, Eftirlaunasjóður atvinnuflugmanna, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins í A-deild og SL lífeyrissjóður.

Fengu að sleppa Landsrétti

Lífeyrissjóður Verslunarmanna óskaði eftir leyfi til þess að fá að skjóta málinu beint til Hæstaréttar án viðkomu í Landsrétti.

Í ákvörðun Hæstaréttar, sem tekin var í febrúar þessa árs, sagði að að virtum gögnum málsins yrði að líta svo á að dómur í því gæti haft fordæmisgildi, almenna þýðingu fyrir beitingu réttarreglna og verulega samfélagslega þýðingu að öðru leyti. Þá væru ekki fyrir hendi í málinu þær aðstæður sem komið gætu í veg fyrir að leyfi til að áfrýjunar beint til Hæstaréttar yrði veitt á grundvelli laga um meðferð einkamála.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×