Í Vestmannaeyjum tók ÍBV á móti Fram en Eyjakonur hafa verið að ná vopnum sínum í síðustu leikjum og unnu meðal annars góðan sigur á Haukum í síðustu umferð.
Eftir jafnar upphafsmínútur áttu Eyjakonur góðan endasprett í fyrri hálfleik og fóru með 16-11 forystu inn í hálfleikinn. Í síðari hálfleiknum náðu Framkonur að minnka muninn í eitt mark en tóku aldrei skrefið og jöfnuðu metin.
ÍBV náði upp forystu á nýjan leik og vann að lokum 26-23 sigur. Birna Berg Haraldsdóttir átti stórleik hjá ÍBV og skoraði 10 mörk og Amelía Einarsdóttir skoraði 6 mörk. Marta Wawrzykowska var frábær í markinu með 45% markvörslu. Hjá Fram var Lena Margrét Valdimarsdóttir markahæst með 5 mörk.
KA/Þór enn á lífi í fallbaráttunni
Á Akureyri mættust tvö neðstu lið deildarinnar KA/Þór og Afturelding. Það var mikið undir því sigur Aftureldingar þýddi að KA/Þór væri fallið.
Akureyringar lengdu hins vegar líftíma sinn í Olís-deildinni með góðum sigri. Eftir ágæta byrjun Mosfellinga náðu KA/Þór konur frumkvæðinu og leiddu 12-10 í hálfleik. Í síðari hálfleik tók KA/Þór svo algjörlega yfir leikinn. Liðið jók forystuna jafnt og þétt og vann að lokum átta marka sigur. lokatölur 26-18.
Isabella Fraga var markahæst hjá KA/Þór með 8 mörk en þær Sylvía Björt Blöndal og Anna Katrín Bjarkadóttir skoruðu 4 mörk fyrir Aftureldingu. Matea Lonac og Saga Sif Gísladóttir vörðu báðar vel fyrir sín lið.
Eftir sigurinn er KA/Þór aðeins einu stigi á eftir Aftureldingu í deildinni en neðsta lið deildarinnar fellur niður í 1. deild. Í lokaumferðinni tekur KA/Þór á móti Fram og Afturelding mætir Val.
Stjarnan í úrslitakeppnina
Þá tryggði Stjarnan sér síðasta sætið í úrslitakeppninni eftir góðan sigur á ÍR á útivelli. Garðbæingar voru 15-10 yfir eftir fyrri hálfleikinn og voru með tögl og haldir allan síðari hálfleikinn.
Lokatölur 28-23 og Stjarnan því öruggt í 6. sæti deildarinnar sem er það síðasta sem gefur sæti í úrslitakeppninni. Þar mun liðið mæta Haukum eða Fram í fyrstu umferð úrslitakeppninnar en ÍR mætir ÍBV.
Sara Dögg Hjaltadóttir skoraði 9 mörk fyrir ÍR og þær Embla Steindórsdóttir og Eva Björk Davíðsdóttir skoruðu 7 fyrir Stjörnuna. Darija Zecevic var með 40% vörslu í marki Stjörnunnar en Hildur Öder Einarsdóttir varði sjö skot í marki ÍR.