Byggjum orkuöryggi á staðreyndum Hörður Arnarson skrifar 3. janúar 2024 07:30 Sterkar vísbendingar eru um að orkuöryggi almenna markaðarins verði ógnað á árunum 2024-2026. Því upplýsti Landsvirkjun stjórnvöld um stöðuna síðastliðið haust og kallaði eftir því að þau létu greina hana. Íslendingum er að fjölga og það er hagvöxtur í landinu. Orkuþörfin á almenna markaðnum vex því um 2-3% á ári. Nú bregður hins vegar svo við að pantanir á orku í byrjun árs 2024 eru tífalt meiri, eða sem nemur 25% vexti. Landsvirkjun hefur undanfarinn áratug bent stjórnvöldum á að tryggja þurfi orkuöryggi almenna markaðarins. Hann situr ekki við sama borð og stórnotendur sem tryggt hafa sér raforku með langtímasamningum. Með lögum nr. 71/2021 um breytingu á raforkulögum nr. 65/2003 var bætt við ákvæðum um raforkuöryggi, sem síðar yrði útfært í reglugerð. Í gangi er vönduð vinna af hálfu stjórnvalda við útfærslu á reglugerðinni með aðkomu erlendra ráðgjafa og víðtæks samráðs við hagsmunaaðila. Minna framboð? Við höfum bent stjórnvöldum á mikilvægi þess að átta sig á því hvort raforkuframleiðendur væru að draga úr framboði af raforku til almenna markaðarins. Ef svo væri þyrftu stjórnvöld að skoða að heimila Landsvirkjun að forgangsraða raforkusölu til að draga úr líkum á leka á milli markaða. Þegar rætt er um leka á milli markaða er átt við að orka sem hefur til þessa verið fyrir almenna markaðinn muni mögulega ekki vera í boði á næsta ári því hún hafi verið seld annað. Þá er ekki eingöngu verið að tala um hvert orkan sem hin fyrirtækin kaupa af Landsvirkjun, fer, heldur líka hvernig aðrir raforkuframleiðendur þjónusta markaðinn. Eru þeir mögulega að draga úr framboði? Orkufyrirtæki þjóðarinnar mun á árinu 2024 forgangsraða almenna markaðnum eins og við höfum gert frá stofnun fyrirtækisins. Við erum reiðubúin að afhenda sama magn og árið 2023 og til viðbótar stóran hluta af þeim vænta vexti sem verður á markaðnum. Ef aðrir orkuframleiðendur eru tilbúnir að sinna almenna markaðnum á sama hátt, þá er orkuöryggið tryggt. Engin lagaskylda að forgangsraða almenningi Í yfirlýsingum stjórnenda HS Orku og ON um lagafrumvarp sem ætlað er að tryggja hag heimilanna fjalla þeir hvergi um hvort fyrirtækin hafi verið að draga úr framboði fyrir almenna markaðinn eða hyggist gera það, eingöngu að sú orka sem þau munu kaupa af Landsvirkjun muni öll fara inn á almenna markaðinn! Það er þó mikilvægt að hafa það í huga að það er enn ekkert í lögum sem skyldar orkuframleiðendur til að forgangsraða almenna markaðnum. Það geta verið ýmsar viðskiptalegar ástæður fyrir því að fyrirtækin ákveði að draga úr framboði inn á almenna markaðinn. Markaðshlutdeild fyrirtækisins í smásölu raforku hafi minnkað. Ný sölufyrirtæki sem ekki hafa eigin raforkuvinnslu, hafa stóraukið markaðshlutdeild sína með því að bjóða 25-30% lægra verð. Samdráttur í raforkuframleiðslu hjá fyrirtækinu. T.d. vegna ofnýtingar á auðlind eða skorts á viðhaldi. Stórnotendur bjóða þeim hærra verð. Í fullseldu raforkukerfi eins og nú er skapast hins vegar vandamál ef aðilar af þessum ástæðum eða öðrum ákveða að draga úr framboði inn á almenna markaðinn. Upphaflega frumvarpinu sem atvinnuveganefnd fjallaði um fyrir jól er ætlað að skapa möguleika til að takast á við þá stöðu ef hún kæmi upp. Hlutdeild LV á almenna markaðnum Hlutdeild Landsvirkjunar á almenna markaðnum stjórnast alfarið af öðrum orkufyrirtækjum enda erum við ekki með eigið sölufyrirtæki eins og allir hinir orkuframleiðendurnir. Við seljum eftir verðskrá sem er birt öllum viðskiptavinum. HS Orka og ON forgangsraða sinni eigin orkuvinnslu og kaupa það sem upp á vantar af Landsvirkjun. Ef þau vilja selja til annarra sölufyrirtækja er þeim í lófa lagið að bjóða hagstæðara verð en Landsvirkjun og auka þannig markaðshlutdeild sína. Samkeppnisstaða Landsvirkjunar á almenna markaðnum styrkist ekki verði lögin að veruleika eins og framkvæmdastjóri ON hefur ranglega fullyrt. Við höfum enga beina hagsmuni af því að frumvarpið eins og það var upphaflega verði samþykkt - en styðjum það eindregið vegna almannahagsmuna. Landsvirkjun getur eins og áður staðið við allar skuldbindingar sínar um afhendingu forgangsorku og stutt áfram við almenna markaðinn, hvort sem lögin verða sett eða ekki. Fyrirtækið er mjög varkárt í sínum samningum og selur aldrei meira en hægt er að standa við með góðu móti, líka í slæmum vatnsárum eins og núna. Hverjir græða á frumvarpinu og hverjir tapa? Undanfarin ár hefur Landsvirkjun séð almenna markaðnum fyrir um helmingi orkunnar og fyrirsjáanlegt er að sú hlutdeild vaxi hratt. Gallinn er sá að það er ekki hægt að selja orku sem er ekki til. Ef aðrir draga sig hratt út af almenna markaðnum er útilokað að Landsvirkjun geti bætt það upp jafnóðum. Orka er ekki hilluvara sem hægt er að sækja á lagerinn. Ef lög sem heimila forgangsröðun orku í þágu heimilanna verða ekki að veruleika og ef sú staða kæmi upp að eftirspurn væri meiri en Landsvirkjun gæti mætt vegna þess að önnur orkufyrirtæki hafa dregið úr sínu framboði, þá myndi fyrirtækið óska eftir tilboðum í þá raforku sem væri í boði og selja hæstbjóðanda, í samræmi við samkeppnislög. Ljóst er að þá munu ekki öll sölufyrirtæki með takmarkaða eigin framleiðslu fá næga orku – og verð til almennings mun hækka. Þeir sem bæta stöðu sína verði lögin sett eru fyrst og fremst heimilin og fyrirtæki í landinu önnur en nýir stórnotendur. Einnig sölufyrirtækin sem hafa takmarkaða eigin framleiðslu en þau hafa verið að stórauka markaðshlutdeild sína á síðustu árum. Þetta eru fyrirtæki eins og Straumlind, Atlantsorka, Orkusalan, N1 og fleiri slík á smásölumarkaði, sem selja beint til almennings. Staða núverandi stórnotenda breytist ekki með lögunum enda er hún tryggð með langtímasamningum. Byggjum á staðreyndum Með fyrirhuguðum lögum er hins vegar þrengt að sölufyrirtækjum sem mögulega semja við stórnotendur án þess að auka orkuframleiðslu sína. Þau geta ekki gengið að því vísu að auka orkukaup sín frá Landsvirkjun. Þau þyrftu þá líklega að beita skerðingarákvæðum í samningum sínum við stórnotendur þangað til þau hefðu aukið sína orkuvinnslu eða sagt upp samningum við þá notendur. Mikilvægt er að Orkustofnun gefist ráðrúm til að greina framboð og eftirspurn á almenna markaðnum þannig að það dragi úr þeirri upplýsingaóreiðu sem hefur því miður einkennt umræðuna síðustu vikurnar. Ef við byggjum hana á staðreyndum og gögnum, með almannahagsmuni í fyrirrúmi, verður vonandi hægt að ná lendingu sem flestir geta unað við og almenningur þarf þá ekki að hafa áhyggjur af því að fá ekki orku – eða þurfa að greiða margfalt verð fyrir hana eins og dæmin sanna víða erlendis. Höfundur er forstjóri Landsvirkjunar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hörður Arnarson Landsvirkjun Orkumál Orkuskipti Mest lesið Frá nauðungarsölum til 5 milljarða í arð á ári Jón Ferdínand Estherarson,Guðný Benediktsdóttir,Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Hvað gerist ef meirihlutinn segir „já“ í sumar? Jón Pétur Zimsen Skoðun Halldór 14.03.2026 Agnar Már Másson Halldór Er óheppni hjúkrunarfræðingurinn raunverulega óheppinn? Eggert Sigurbergsson Skoðun Það er gott að hafa „góðar tengingar“ í Kópavogi. 2 af 4. Theodóra S. Þorsteinsdóttir Skoðun Er skólafólk ómarktækt? Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Enn og aftur, Alma Möller Arnar Helgi Lárusson Skoðun Hjúkrunarfræðingurinn sem skuldar meira, græðir helling og vill kíkja í pakka Haraldur Ólafsson Skoðun Handjárn eða heilbrigð tengsl Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ábyrgðarleysi í fiskeldi undir formerkjum uppbyggingar Björn Gunnar Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Fengu hvorugt varanlegar undanþágur Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Samþjöppun auðs og hindranir fyrir ungt fólk á Íslandi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er óheppni hjúkrunarfræðingurinn raunverulega óheppinn? Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Það er gott að hafa „góðar tengingar“ í Kópavogi. 2 af 4. Theodóra S. Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Handjárn eða heilbrigð tengsl Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Er skólafólk ómarktækt? Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Frá nauðungarsölum til 5 milljarða í arð á ári Jón Ferdínand Estherarson,Guðný Benediktsdóttir,Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Ábyrgðarleysi í fiskeldi undir formerkjum uppbyggingar Björn Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvað gerist ef meirihlutinn segir „já“ í sumar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Kerfið er brotið af því þú þolir það þannig Anna Bergþórsdóttir skrifar Skoðun Til leiðtoga í stjórnmálum og stjórnsýslu: Málefni barna og ungmenna Þóra Björg Jónsdóttir skrifar Skoðun Skerðing í Kópavogi Stefán Vilbergsson skrifar Skoðun Sigurvíma Trump Hannes Örn Blandon skrifar Skoðun Hesturinn í umferðinni Ólafur Gestur Arnalds skrifar Skoðun Hvað er eldsneytið þitt? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Er ESB „hnignunarbandalag“? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Heppni hjúkrunarfræðingurinn sem á að græða helling Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Davíð kvaddur Ámundi Loftsson skrifar Skoðun Hvað gerðist með „sérlausn“ Írlands? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Kennsla í skugga skráninga Sóldís Birta Reynisdóttir skrifar Skoðun Hvað hefur oddviti Framsóknar í Kópavogi að fela? Theodóra Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Loftslagspólitík sem gagnast bændum Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Þorgerður Katrín treystir ekki þjóðinni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Kaþólska kirkjan og uppbygging íslensks heilbrigðiskerfis Árni Már Jensson skrifar Skoðun Kópavogsleiðin er merkilegt fyrirbæri Tinna Gunnur Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ófrjósemi og andleg líðan Ástdís Pálsdóttir Bang skrifar Skoðun Til hamingju, Kópavogsbúar – þið eigið von á góðu! Elísabet Sveinsdóttir skrifar Skoðun Við erum að taka hlutverkin frá eldra fólki Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Að byggja upp samfélagslegt umboð í afskekktum samfélögum: Hvernig ábyrgt fiskeldi styrkir Vestfirðina Daníel Jakobsson skrifar Skoðun Hvernig verjum við Ísland? Finnur Beck skrifar Sjá meira
Frá nauðungarsölum til 5 milljarða í arð á ári Jón Ferdínand Estherarson,Guðný Benediktsdóttir,Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun
Hjúkrunarfræðingurinn sem skuldar meira, græðir helling og vill kíkja í pakka Haraldur Ólafsson Skoðun
Skoðun Það er gott að hafa „góðar tengingar“ í Kópavogi. 2 af 4. Theodóra S. Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Frá nauðungarsölum til 5 milljarða í arð á ári Jón Ferdínand Estherarson,Guðný Benediktsdóttir,Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Til leiðtoga í stjórnmálum og stjórnsýslu: Málefni barna og ungmenna Þóra Björg Jónsdóttir skrifar
Skoðun Að byggja upp samfélagslegt umboð í afskekktum samfélögum: Hvernig ábyrgt fiskeldi styrkir Vestfirðina Daníel Jakobsson skrifar
Frá nauðungarsölum til 5 milljarða í arð á ári Jón Ferdínand Estherarson,Guðný Benediktsdóttir,Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun
Hjúkrunarfræðingurinn sem skuldar meira, græðir helling og vill kíkja í pakka Haraldur Ólafsson Skoðun