Lífið

Lisa Marie Presley er látin

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Lisa Marie Presley lést í gærkvöldi.
Lisa Marie Presley lést í gærkvöldi. Getty

Lisa Marie Presley, söngkona og eina dóttir Elvis og Priscillu Presley, er látin. Hún var 54 ára. Presley var flutt á sjúkrahús í gær eftir að hafa farið í hjartastopp. Móðir hennar, 77 ára, staðfesti andlát Presley í gærkvöldi.

„Það er með harm í hjarta sem ég deili þeim fréttum með ykkur að fallega dóttir mín, Lisa Marie, hefur yfirgefið okkur,“ sagði Priscilla Presley í yfirlýsingu. Hún sagði dóttur sína hafa verið ástríðufulla, sterka og ástríka og bað um frið til handa fjölskyldunni til að fást við sorgina.

Það var slúðursíðan TMZ sem greindi fyrst frá því í gær að Lisa Marie hefði verið flutt á sjúkrahús eftir að hafa farið í hjartastopp á heimili sínu í Calabasas í Kaliforníu. Í kjölfarið biðlaði Priscilla aðdáendur hennar um að biðja fyrir henni.

Aðeins tveir sólahringar eru liðnir frá því að Lisa Marie og Priscilla mættu saman á Golden Globe verðalaunahátíðina, þar sem leikarinn Austin Butler hlaut verðlaun fyrir hlutverk sitt sem Elvis í samnefndri kvikmynd.

Presley fæddist í Memphis Tennessee árið 1968 en flutti með móður sinni til Los Angeles þegar foreldrar hennar skildu. Þegar Elvis dó árið 1977 erfði Lisa Marie eignir hans ásamt afa sínum og ömmu en varð eini erfingi föður síns 25 ára, að þeim látnum.

Dánarbúið var á sínum tíma metið á 100 milljónir dala en hún seldi meirihluta eignanna til Industrial media árið 2005, fyrir utan Graceland.

Presley giftist fjórum sinnum; fyrst tónlistarmanninum Danny Keough, sem hún eignaðist með börnin Riley og Benjamin. Riley er þekkt leikkona en Benjamin svipti sig lífi árið 2020, aðeins 27 ára gamall. Presley sagði á sínum tíma að hún væri eyðilögð eftir fráfall sonar síns.

Skömmu eftir skilnaðinn við Keough giftist Presley tónlistarmanninum Michael Jackson en það hjónband varði í 18 mánuði. Presley sagðist seinna hafa trúað á sakleysi Jackson, sem hafði verið sakaður um barnaníð, og hafa viljað bjarga honum.

Presley giftist leikaranum Nicolas Cage í ágúst 2002 en Cage sótti um skilnað í nóvember sama ár. Árið 2006 gekk hún svo í hjónband með gítarleikaranum Michael Lockwood og eignaðist með honum tvíburana Harper og Finley. Presley og Lockwood voru gift í tíu ár, áður en hún sótti um skilnað.

Presley var ávallt opinská varðandi baráttu sína við ópíóðafíkn, sem hún glímdi við eftir fæðingu tvíburanna. Hún tilheyrði Vísindakirkjunni í tvo áratugi en er sögð hafa gengið úr henni árið 2014.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.