Skoðun

Hvernig kennara viljum við?

Kolbrún Þorbjörg Pálsdóttir skrifar

Hver árstími hefur sínar venjur, töfra og takt. Nú hefst starf grunn- og framhaldsskóla um land allt og haustbyrjun tekur við í leikskólum landsins. Áætla má að um 4.000 börn sæki leikskóla, um 46 þúsund nemar grunnskóla og um 23 þúsund nemar framhaldsskóla. Það skiptir okkur öll máli að skólastarf gangi vel, að börn og ungmenni njóti sín í námi og leik og að hlúð sé að velferð þeirra og þroska. Við vitum öll hve miklu máli góðir kennarar skipta og eigum flest minningar um kennara sem hafa snert hjörtu okkar og mótað okkur sem manneskjur. Við viljum öll styðja við þetta mikilvæga leiðtogahlutverk kennara og vera bandamenn þeirra í því óendanlega mikilvæga verkefni sem menntun barna er.

Menntafléttan liðast um landið

Haustið 2021 hófst verkefni á vegum stjórnvalda, háskóla og Kennarasambands Íslands sem ber heitið Menntafléttan – námssamfélag í skóla- og frístundastarfi. Verkefnið felur í sér framboð á opnum og aðgengilegum námskeiðum fyrir kennara og annað fagfólk í skóla- og frístundastarfi. Námskeiðin eru byggð á rannsóknum á því hvaða skilyrði og stuðningur þarf að vera til staðar fyrir þróun kennara í starfi. Þær rannsóknir segja okkur ítrekað að starfsþróun er farsæl og árangursrík þegar hún er sameiginlegt verkefni margra á sama vinnustað, frekar en einstaklingsverkefni hvers og eins. Þátttakendur eru leiðtogar á sínum vinnustað og koma á samvinnu um þróun starfshátta og kennslu. Námskeiðin er hagnýt og skapa vettvang fyrir samstarf og samtal þvert á skóla, stofnanir og landsvæði.

Mikil þátttaka

Að þróun hvers námskeiðs koma kennarar, fræðimenn og sérfræðingar sem byggja á nýjustu rannsóknum en einnig deiglunni sem er til staðar í menntakerfi okkar. Sjá má fjölbreytt framboð á vefsíðunni menntamidja.is. Við erum stolt af því að í kennarahópi Menntafléttunnar eru framúrskarandi, reynslumiklir kennarar frá um 25 skólum víða um land. Við sem stöndum að verkefninu erum í skýjunum með frábærar móttökur, en vorið 2022 höfðu rúmlega 500 leiðtogar lokið námskeiðum Menntafléttu og nú þegar hafa um 1.100 þátttakendur skráð sig til leiks veturinn 2022-2023. Það er ljóst að kennarar landsins taka þessari tegund starfsþróunar fagnandi og skráningin varpar ljósi á þann óþrjótandi áhuga og neista sem kennarar búa yfir.

Margföldum áhrifin saman

Stuðningur stjórnvalda við Menntafléttuna hefur sannað sig svo um munar. Næsta vetur munu 50% leikskóla eiga þátttakendur í Menntafléttu, 72% framhaldsskóla og 78% grunnskóla. Auk þess hafa þátttakendur frá bókasöfnum, félagsmiðstöðvum, skólaskrifstofum, heilsugæslu, frístundaheimilum og sérfræðingar frá félagasamtökum skráð sig í Menntafléttuna, enda er menntun barna og ungmenna samstarfsverkefni margra ólíkra fagstétta. Miðað við árangur verkefnisins hingað til má auðveldlega ímynda sér hver margfeldisáhrif Menntafléttu geta orðið, ef við höldum áfram að tryggja vandað framboð námskeiða. Mikilvægt er að tryggja fjármögnun Menntafléttu næstu árin því starfsþróun kennara og starfsfólks í menntakerfinu er viðvarandi verkefni, ekki átak. Fyrir hönd aðstandenda Menntafléttunnar skora ég á stjórnvöld að fjárfesta í kennurum landsins og tryggja framtíð Menntafléttu.

Höfundur er forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands og sat í undirbúnings- og stýrihópi Menntafléttu 2020 til 2021.




Skoðun

Skoðun

21 blár

Jón Pétur Zimsen skrifar

Sjá meira


×