Spá 0,75 prósenta hækkun stýrivaxta Bjarki Sigurðsson skrifar 17. ágúst 2022 11:19 Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka. Vísir/Egill Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að stýrivextir hækki um 0,75 þann 24. ágúst næstkomandi þegar peningastefnunefnd Seðlabankans fundar. Stýrivextir fara þá í 5,5 prósent en vextirnir hafa ekki verið hærri síðan árið 2016.
Vextirnir voru síðast hækkaðir í júní og þá um eitt prósent. Mánuðinn þar á undan voru þeir einnig hækkaðir um eitt prósent og í febrúar á þessu ári hækkuðu þeir um 0,75 prósent. Greiningardeildin spáir því einnig að vextirnir muni hækka einu sinni enn á þessu ári eftir fundinn í næstu viku, og þá um 0,5 prósent. Því muni þeir standa í sex prósentum undir lok árs. „Vaxandi verðbólga, hækkandi verðbólguvæntingar og þenslumerki í hagkerfinu munu líklega ráða mestu um ákvörðun nefndarinnar. Stýrivextir verða líklega að minnsta kosti 6% í árslok en hægfara vaxtalækkunarferli gæti hafist eftir mitt næsta ár,“ segir í spá bankans sem birtist í dag. Í spánni segir að kaupmáttur launa hafi rýrnað frá áramótum og almenningur sé svartsýnni á horfu í efnahag og atvinnulífi en hann hefur verið frá miðju ári 2020. Þetta, ásamt öðru, er samkvæmt deildinni, líklegt til að slá umtalsvert á neyslugleði landsmanna á seinni helmingi árs. Hækkandi íbúðaverð skýrir talsverðan hluta verðbólgunnar samkvæmt spánni. Þegar mismunandi mælikvarðar á verðbólgu eru skoðaðir sé þó hægt að sjá að verðbólguþrýstingurinn er útbreiddur. „Til að mynda mældist verðbólga miðað við VNV án húsnæðis 7,5% í júlímánuði. Auk íbúðaverðsins hefur innflutt verðbólga aukist verulega og innlendur kostnaðarþrýstingur í framleiðslu, verslun og þjónustu er umtalsverður um þessar mundir,“ segir í spánni.
Íslenskir bankar Seðlabankinn Verðlag Fasteignamarkaður Fjármál heimilisins Neytendur Efnahagsmál Íslandsbanki Mest lesið Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Sjá meira