Hafa ekki unnið KR í deildinni í meira en 26 mánuði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. febrúar 2022 16:01 Stjörnumenn hafa verið að vinna marga góða sigra að undanförnu en hafa ekki unnið deildarleik á móti KR í meira en átta hundruð daga. Vísir/Bára Dröfn Stjarnan tekur á móti KR í stórleik kvöldsins í Subway-deild karla í körfubolta og það er óhætt að segja að heimamenn séu búnir að bíða lengi eftir sigri á Vesturbæingum. KR hefur unnið síðustu fjóra deildarleiki liðanna þar af átta stiga sigur í fyrri leik liðanna á þessu tímabili. KR vann þá 98-90 sigur þar sem Shawn Glover var með 33 stig og 15 fráköst og Þórir Þorbjarnarson bætti við 28 stigum, 15 fráköstum og 8 stoðsendingum. Vandamálið fyrir KR-inga er að Glover og Þórir eru ekki lengur með liðinu. Síðasti deildarsigur Stjörnunnar á KR var í Garðabænum 29. nóvember 2019. Síðan eru liðnir 26 mánuðir og 19 dagar. Stjörnumenn unnu leikinn reyndar með 43 stigum, 110-67, en hafa ekki unnið Vesturbæinga í deildinni síðan. Stjarnan vann bikarleik á móti KR í haust en það var ekki nóg til að losna undan takinu þegar liðin mættust í deildinni í nóvember síðastliðnum. Arnar Guðjónsson, þjálfari Stjörnumanna, var greinilega orðinn mjög pirraður á slöku gengi á móti KR því hann var rekinn út úr húsi í síðasta leik liðanna og endaði á því að vera dæmdur í eins leiks bann. Síðustu deildarleikir Stjörnunnar og KR: 12. nóvember 2021: KR vann átta stiga sigur í Vesturbænum (98-90) 6. maí 2021: KR vann 11 stiga sigur í Garðabænum (96-85) 11. febrúar 2021: KR vann níu stiga sigur í Vesturbænum (100-91) 6. mars 2020: KR vann tveggja stiga sigur í Vesturbænum (79-77) 29. nóvember 2019: Stjarnan vann 43 stiga sigur í Garðabænum (110-67) Leikur Stjörnunnar og KR verður sýndur beint á Stöð 2 Sport og hefst útsendingin klukkan 20.05. Á undan verður sýndur leikur ÍR og Vals og eftir munu Subway-Tilþrifin gera upp alla leiki kvöldsins. Subway-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Subway-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði. Subway-deild karla KR Stjarnan Mest lesið Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira
KR hefur unnið síðustu fjóra deildarleiki liðanna þar af átta stiga sigur í fyrri leik liðanna á þessu tímabili. KR vann þá 98-90 sigur þar sem Shawn Glover var með 33 stig og 15 fráköst og Þórir Þorbjarnarson bætti við 28 stigum, 15 fráköstum og 8 stoðsendingum. Vandamálið fyrir KR-inga er að Glover og Þórir eru ekki lengur með liðinu. Síðasti deildarsigur Stjörnunnar á KR var í Garðabænum 29. nóvember 2019. Síðan eru liðnir 26 mánuðir og 19 dagar. Stjörnumenn unnu leikinn reyndar með 43 stigum, 110-67, en hafa ekki unnið Vesturbæinga í deildinni síðan. Stjarnan vann bikarleik á móti KR í haust en það var ekki nóg til að losna undan takinu þegar liðin mættust í deildinni í nóvember síðastliðnum. Arnar Guðjónsson, þjálfari Stjörnumanna, var greinilega orðinn mjög pirraður á slöku gengi á móti KR því hann var rekinn út úr húsi í síðasta leik liðanna og endaði á því að vera dæmdur í eins leiks bann. Síðustu deildarleikir Stjörnunnar og KR: 12. nóvember 2021: KR vann átta stiga sigur í Vesturbænum (98-90) 6. maí 2021: KR vann 11 stiga sigur í Garðabænum (96-85) 11. febrúar 2021: KR vann níu stiga sigur í Vesturbænum (100-91) 6. mars 2020: KR vann tveggja stiga sigur í Vesturbænum (79-77) 29. nóvember 2019: Stjarnan vann 43 stiga sigur í Garðabænum (110-67) Leikur Stjörnunnar og KR verður sýndur beint á Stöð 2 Sport og hefst útsendingin klukkan 20.05. Á undan verður sýndur leikur ÍR og Vals og eftir munu Subway-Tilþrifin gera upp alla leiki kvöldsins. Subway-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Subway-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Síðustu deildarleikir Stjörnunnar og KR: 12. nóvember 2021: KR vann átta stiga sigur í Vesturbænum (98-90) 6. maí 2021: KR vann 11 stiga sigur í Garðabænum (96-85) 11. febrúar 2021: KR vann níu stiga sigur í Vesturbænum (100-91) 6. mars 2020: KR vann tveggja stiga sigur í Vesturbænum (79-77) 29. nóvember 2019: Stjarnan vann 43 stiga sigur í Garðabænum (110-67)
Subway-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Subway-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Subway-deild karla KR Stjarnan Mest lesið Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira