Skoðun

Breytingar í sam­ræmi við lög og breytt sam­fé­lag

Þórhildur Ólöf Helgadóttir skrifar

Íslandspóstur hefur náð góðum árangri í rekstri fyrirtækisins þrátt fyrir fjölbreyttar áskoranir undanfarin ár. Pósturinn hefur meðal annars þurft að takasta á við samfélagslegar breytingar á borð við samdrátt bréfasendinga og öra fjölgun pakkasendinga.

Fjölgun pakkasendinga, sem m.a. má rekja til aukinnar netverslunar, hefur veitt Íslandspósti tækifæri til að stíga hraðar inn á markaðinn með tæknivæðingu og þéttingu afgreiðslustaða. Þannig höfum við sett upp fleiri póstbox og pakkaport, sem bætir afgreiðslunet fyrirtækisins um allt land til muna, neytendum og netverslunum til hagsbóta. Nýting póstboxanna kemur til með að aukast enn frekar þegar bæði verður hægt að taka á móti og senda pakka í gegnum þau. Með því verður stigið nýtt skref í póstþjónustu á Íslandi.

Breytingar á lögum kalla á verðbreytingar

Ein af þeim áskorunum sem við hjá Íslandspósti höfum þurft að fást við er gagnrýni vegna breytinga á verðskrám, breytinga sem fyrirtækið hefur vel að merkja ekki fullt forræði á, heldur sem leiðir af fyrirmælum Alþingis. Í ársbyrjun 2020 tóku gildi lög sem kváðu á um að sama verðskrá skyldi vera fyrir póstsendingar, óháð því hvar á landinu sendandi og móttakandi væru staddir. Markmið laganna var að kostnaður neytenda við pakkasendingar yrði sá sami, óháð búsetu. Útfærsla þessa markmiðs fól í sér greiðsluþátttöku ríkissjóðs í sendingarkostnaði á strjálbýlli svæðum.

Greiðsluþátttaka ríkissjóðs mætti mikilli gagnrýni, m.a. af hálfu Íslandspósts. Alþingi brást við gagnrýninni og vatt kvæði sínu í kross með lagabreytingum sem tóku gildi í sumar. Í þeim var kveðið um að frá og með 1. nóvember 2021 yrði Póstinum einungis heimilt að bjóða sömu verðskrá um allt land fyrir bréf undir 51 g.

Þessi lagabreyting hefur í för að Íslandspóstur er knúinn til að setja nýja verðskrá fyrir pakkasendingar í samræmi við raunkostnað þeirra. Um næstu mánaðamót mun sendingarkostnaður því sums staðar lækka en víðast hvar á landsbyggðinni hækka.

Stjórnendur Íslandspósts geta ekki lagt mat á markmið Alþingis við gerð verðskrár fyrirtækisins. Verkefni okkar ráðast af þeim lagaramma sem fyrirtækið starfar og því að rekstur fyrirtæksins sé sjálfbær og í takti við þarfir viðskiptavina. Verðbreytingarnar taka mið af þessum þáttum.

Samdráttur í bréfasendingum hefur áhrif á fjölpóst

Íslandspóstur hefur undanfarin ár ekki aðeins þurft að bregðast við breytingum löggjafans heldur einnig unnið að lausnum þegar kemur að breyttri hegðun og þörfum neytenda. Á sama tíma og pakkasendingum hefur fjölgað hefur dregið mjög úr bréfasendingum. Fækkun þeirra hefur áhrif á aðra þætti rekstursins. Í gegnum tíðina hefur fjölpóstur fengið að fljóta með öðrum bréfasendingum. Viðbótarkostnaður vegna fjölpósts var óverulegur þar sem bréfin báru mestan hluta kostnaðarins. Með fækkun á bréfum hefur Pósturinn nú viðkomu á mun færri stöðum en áður. Fjölpóstur kallar hins vegar á að borið sé út í hverja lúgu og póstkassa og hefur kostnaður við dreifingu hans því vaxið. Ný verðskrá fyrir fjölpóst tekur mið að því.

Póstinum hefur með markvissri vinnu á undanförnum misserum tekist að tryggja góðan rekstur samhliða því að halda uppi öflugri þjónustu og rækja skyldur sínar sem alþjónustuveitandi póstþjónustu um land allt. Að því erum við stolt.

Höfundur er forstjóri Íslandspósts.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×