Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - KA 3-1 | Tvö mörk frá Gibbs er Keflavík fór áfram Atli Arason skrifar 11. ágúst 2021 20:30 Keflavík hefur slegið út bæði KA og Breiðablik í bikarnum, Vísir/Hulda Margrét Keflavík er komið í 8-liða úrslit Mjólkurbikars karla í fótbolta eftir 3-1 sigur á KA á Nettóvellinum í Keflavík í kvöld. Keflavík hefur nú slegið út tvö lið í efri hluta Pepsi Max-deildarinnar í keppninni. Keflavík er komið í 8-liða úrslit Mjólkurbikars karla í fótbolta eftir 3-1 sigur á KA á Nettóvellinum í Keflavík í kvöld. Keflavík hefur nú slegið út tvö lið í efri hluta Pepsi Max-deildarinnar í keppninni. Fyrri hálfleikur var algjör eign Keflvíkinga sem sóttu mun meira og pressuðu gestina stíft. Þessir yfirburðir skiluðu sér í marki á 38. mínútu þegar Ástbjörn Þórðarson á hárnákvæma sendingu á Joey Gibbs sem tekur við boltanum með því að setja hann aðeins upp í loftið og svo þruma honum svo viðstöðulaust í hornið fjær og heimamenn komnir með verðskuldaða forystu sem þeir fóru með inn í hálfleikinn. Seinni hálfleikurinn gat ekki byrjað verr fyrir gestina. KA kemur þá boltanum í leik, spila honum til baka og Dusan Brkovic fær boltann í öftustu línu. Dusan ætlar að koma boltanum lengra til baka á Stubb í markinu en sending Dusan er allt of laus og Christian Volesky, framherji Keflavíkur, kemst inn í sendinguna og fer fram hjá Stubb til þess að setja boltann í autt netið. 2-0 fyrir Keflavík og ekki meira en 15 sekúndur liðnar af síðari hálfleik. Þetta seinna mark var algjör rothögg yfir KA. Gestirnir fengu nokkrar sóknir og tækifæri til að svara fyrir sig en það gekk ekki eftir. Á 72. mínútu fær Keflavík aukaspyrnu við miðlínu á vallarhelmingi KA. Ingimundur Aron tekur spyrnuna og spyrnir boltanum langt og hátt inn á vítateig KA þar sem Joey Gibbs rís manna hæst og kollspyrna hans syngur í netinu og leiknum nánast formlega lokið. Þegar 10 mínútur eru eftir þá hefst viðspyrna KA manna að einhverri alvöru, það byrjaði allt á marki Sebastiaan Brebels á 83. mínútu. Brebels tekur aukaspyrnu nálægt hornfána Keflavíkur, skot eða fyrirgjöf Brebels fer á milli tveggja manna varnarveggs Keflavíkur, af bakinu á Marley Blair og þaðan í netið. Þremur mínútum síðar skorar KA aftur en þá var Ásgeir Sigurgeirsson sem setti boltann í netið. Eftir stutt spjall dómarateymisins ákveða þeir að láta markið ekki standa og rangstaða dæmd á Ásgeir við mikinn ófögnuð gestanna en sennilega var þetta þó rétt ákvörðum hjá dómarateyminu. Nær komust gestirnir ekki og Keflavík fer þá áfram í 8-liða úrslit með 3-1 sigri á heimavelli. Af hverju vann Keflavík? Keflvíkingar virtust vera mun ákveðnari og einfaldlega langa meira í þetta en gestunum frá Akureyri. Heimamenn gáfu KA engan tíma á boltanum og pressuðu þá nánast útum allan völl sem skilaði sér einmitt í öðru marki Keflavíkur. Hverjir stóðu upp úr? Joey Gibbs heldur áfram að skora mörkin fyrir Keflavík. Bæði mörk hans í kvöld voru afar vel afgreidd og á hann stóran þátt í að Keflavík er komið áfram. Annar leikmaður sem stóð sig afar vel var Ástbjörn Þórðarson, en honum tókst að loka mjög vel á besta leikmann KA, Hallgrím Mar Steingrímsson sem var alls ekki líkur sjálfum sér í þessum leik. Hvað gerist næst? KA er úr leik en næsti leikur þeirra er í deildinni gegn Stjörnunni fyrir norðan á sunnudaginn. Keflavík er komið áfram í bikarnum en þeir fá að vita hver mótherji þeirra verður á morgun, eftir leik Víkings og KR, þegar dregið verður í 8-liða úrslitin. Næsti leikur Keflavíkur er hins vegar í deildinni gegn Val á Hlíðarenda næsta sunnudag. Arnar: „Við vorum okkur sjálfum til skammar“ Arnar var ekki glaður með sína menn.Vísir/Hulda Margrét Arnar Grétarsson, þjálfari KA, var mjög ósáttur við frammistöðu sinna manna í kvöld og þá sérstaklega í fyrri hálfleik. „Þetta eru gríðarleg vonbrigði. Við bara mættum ekki til leiks og Keflavík voru miklu betri en við í fyrri hálfleik. Þeir voru 1-0 yfir í hálfleik en það hefði hæglega geta verið tvö eða þrjú. Við vorum okkur sjálfum til skammar í fyrri hálfleik og svo gerum við mistök eftir 20 sekúndur í síðari hálfleik og lendum 2-0 undir þegar menn ætluðu að gíra sig upp og koma til baka. Þá verður þetta svolítið erfitt. Keflvíkingar voru bara góðir í dag og við vorum hrikalega slakir. Við reyndum eitthvað í seinni hálfleik en það var of lítið og of seint,“ sagði Arnar í viðtali við Vísi eftir leik. Aðspurður af því afhverju Akureyringar voru svona slappir í fyrri hálfleiknum var Arnar alveg gáttaður en gat þó þulið upp nokkrar kenningar. „Ég er að spyrja sjálfan mig af þessari spurningu, ég bara skil þetta ekki. Þetta er einhver skemmtilegasta keppnin, það á ekki að þurfa að mótivera menn. Það er geggjað veður, geggjaður völlur, flottar aðstæður til að spila fótbolta. Menn þurfa samt að vilja þetta, menn þurfa að hlaupa og berjast. Ef það er ekki til staðar, þá er alveg sama hvort þú getur eitthvað í fótbolta. Keflvíkingar eru flottir í fótbolta og þeir vildu þetta bara svo miklu meira. Miklu aggresívari og meira tilbúnir. Ég vildi að ég gæti komið með gott svar, við erum gáttaðir, við sem stöndum á bak við KA. Ég skil þetta ekki, þetta var skelfileg frammistaða í fyrri hálfleik og það smitaðist aðeins út í byrjun seinni hálfleiks og þá er alltaf erfitt að koma til baka. Mér fannst menn aðeins vera að reyna en það var bara of lítið og of seint,“ svaraði Arnar. Annað mark Keflavíkur var algjör gjöf af hálfu gestanna og kom það á versta tíma, strax í upphafi síðari hálfleiks. „Ef það hefði verið einhver annar leikmaður en Dusan Brkovic þá hefði maður sett spurningarmerki við þetta en hann er einhver mesti fagmaður sem ég hef kynnst. Það er nú bara þannig í fótbolta að menn gera mistök og þarna gerir hann mistök sem reyndust dýrkeypt og þeir refsa okkur fyrir það. Umfram allt var þetta skelfileg tímasetning þar sem seinni hálfleikurinn var nýbyrjaður og við komnir 2-0 undir eftir að hafa spilað hræðilegan fyrri hálfleik. Við ætluðum að reyna að koma til baka og þegar menn ætla að gíra sig upp í það þá er þetta ekki sú byrjun sem við þurftum á að halda. Mér fannst menn reyna en það vantaði bara svo mikið upp á. Ákvörðunartökur voru ekki góðar og gæði á bolta var virkilega slakt,“ sagði Arnar Grétarsson, þjálfari KA. Siggi Raggi: „Það er alltaf gott að leyfa sér að dreyma“ Sigurður Ragnar og hans menn í Keflavík hafa gert vel í bikarnum í sumar.Vísir/Hulda Margrét Sigurður Ragnar Eyjólfsson, annar af þjálfurum Keflavíkur var sigurreifur í lok leiks og ánægður að vera kominn áfram í næstu umferð. „Þetta var frábært sigur. Ótrúlega góð vinnsla í liðinu og barátta. Við pressuðum vel og gáfum KA mönnum engan frið í dag. Við skorum þrjú frábær mörk í dag og ég er mjög stoltur af liðinu og strákunum sem komu inn og fengu tækifæri í dag, þeir stóðu sig hrikalega vel í dag og þetta er mjög öflug liðsheild,“ sagði Sigurður Ragnar í viðtali eftir leik. „Uppleggið var bara að keyra á þá og ekki bera neina virðingu fyrir þeim. Við unnum Breiðablik hérna í bikarnum og við getum á góðum degi unnið öll þessi lið. Stundum eru þessi lið ofar í töflunni en við í deildinni með betri mannskap og allt það en ef maður hefur vilja, dugnað og trú á sjálfum sér þá getur maður áorkað ótrúlega hluti.“ Ástbjörn Þórðarson spilaði í hægri bakverðinum í kvöld og var hann sérstaklega þar til þess að reyna að stöðva Hallgrím Mar. „Við vissum að Hallgrímur er frábær leikmaður og við vildum setja Ása á hann. Ási pakkaði honum saman í dag, ég held það sé óhætt að segja það.“ Keflavík hefur nú bæði slegið út Breiðablik og KA í bikarnum og er aðeins tveimur sigurleikjum frá því að komast í úrslitaleikinn sjálfan. Eru Keflvíkingar farnir að leyfa sér að dreyma? „Það er alltaf gott að leyfa sér að dreyma en það er bara hver leikur fyrir sig. Við sjáum á morgun hvaða mótherja við fáum en við höfum ekki farið auðveldu leiðina hingað. Við erum tilbúnir að mæta hverjum sem er,“ sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson að lokum.
Fótbolti Íslenski boltinn Mjólkurbikarinn KA Keflavík ÍF Mest lesið Guðmundur Oddsson látinn Golf Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Fyrsti dagur MÍ: Öruggt hjá Sindra og fimmtán ára vann fjögur hundrað metra hlaupið Sport Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum Íslenski boltinn Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti „Búin að slá út ansi öflug lið“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar „Virkilega sáttur við framlag leikmannanna“ „Bárum of mikla virðingu fyrir þeim“ Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum „Búin að slá út ansi öflug lið“ Taugarnar þandar í endurkomusigri Njarðvíkur Tap í fyrsta leik Söru Bjarkar fyrir Hauka síðan 2008 Uppgjörið: Þróttur - ÍBV 1-0 | Þróttarar í bikarúrslit Hetja Þróttar: „Ákvað að hoppa og vona það besta“ Elfar Árni tryggði Völsungum mikilvægan sigur á Mærudögum Afturelding kaupir Kristin Frey frá Val „Nýtt verkefni og nýr leikur“ Tvö mörk á tveimur mínútum á elleftu stundu og Grótta bjargaði stigi Skoruðu fimm í Breiðholtinu og fóru upp í annað sætið Kaupa Conteh frá Stjörnunni „Ótrúlega spennandi sóknarmaður“ Spilaði á móti Þór um síðustu helgi og var síðan lánaður til Þórs Spilar gegnum meiðsli: „Verður örugglega svolítið vont“ Gegndrepa Jón Þór bíður sólarinnar „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Uppgjörið: Fylkir – Afturelding 3-4 (1-1) | Afturelding í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn Uppgjörið: FH – Stjarnan 7-3 | FH heldur toppsætinu Sögulegur leikur fyrir Mosfellinga Pressuóðir Ísraelar í Víkinni Sjáðu draumainnkomu Söntu í íslenska boltann Sjá meira