Segir búið að „dauðadæma Vefjuna“ vegna ummæla Reynis Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 10. maí 2021 15:00 Reynir Bergmann hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir ummæli sín um mál Sölva Tryggvasonar. Vísir Sólveig Ýr Sigurjónsdóttir, annar eigandi veitingastaðarins Vefjunnar, segir fólk búið að dauðadæma fyrirtækið vegna ummæla sem Reynir Bergmann, hinn eigandi Vefjunnar og barnsfaðir hennar, lét falla fyrir helgi um mál Sölva Tryggvasonar fjölmiðlamanns. „
Í þessu þjóðfélagi er gjörsamlega búið að dauðadæma okkur og fyrirtækið okkar á heimasíðum okkar og í persónulegum skilaboðum og eigum við þetta bara alls ekki skilið!! Þetta er bara ALLTOF langt gengið og bið ég ykkur vinsamlegast um að hugsa ykkur tvisvar um áður en þið farið að bulla um slíkt,“ skrifar Sólveig í hringrásarfærslu á Instagram. Vefjan er í eigu Reynis Bergmanns og Sólveigar Ýrar Sigurjónsdóttur.Vísir/Vilhelm Mál Sölva hefur verið mikið til umfjöllunar undanfarna daga en hann hefur verið kærður til lögreglu af tveimur konum sem segja hann hafa beitt sig ofbeldi. Reynir Bergmann, annar eigandi Vefjunnar og áhrifavaldur, birti á fimmtudag myndband á Instagram þar sem hann sagðist vera með Sölva í liði. „RB er team f***ing Sölvi Tryggva. Mellur og vændiskonur fokkið ykkur,“ sagði Reynir í myndbandinu. Reynir var harðlega gagnrýndur fyrir ummæli sín á samfélagsmiðlum. Í kjölfarið birti Reynir annað myndband á Instagram þar sem hann sagðist hlutlaus þar til sekt væri sönnuð. Fólk eins og Reynir Bergmann er ástæða þess að metoo baráttan stendur í stað. Hvernig er þessi maður ennþá með platform? Hvernig getur fólk tekið manninn alvarlega? Margt sem ég skil ekki— Viktoría Tea (@viktoriateaa) May 7, 2021 Reynir varð þekktur á Snapchat meðal annars fyrir að tala tæpitungulaust um hluti og stuða fólk. Ýmis ummæli hans hafa ratað í fjölmiðla. Til dæmis kynferðisleg ummæli sem hann lét falla í 12:00 þætti hjá nemendum Verzlunarskóla Íslands sem urðu til þess að þátturinn fór ekki í birtingu. Þá hefur hann auglýst tilboð fyrir dverga á Vefjunni og boðað tilboð fyrir homma og lesbíur sömuleiðis. Þá vakti mikla athygli þegar Reynir sat fyrir svörum í kvikmyndaþættinum Sjáðu á Stöð 2 og ræddi uppáhaldskvikmyndir sínar. Segir fólk ljúga um matareitranir til að skemma fyrir fyrirtækinu Sólveig segir í færslu sem hún birti á hringrás sinni á Instagram að hún sé búin að sitja á sér undanfarna daga vegna ummæla um veitingastaðinn þeirra Reynis. Hún sé sár og reið út í fólk sem hafi logið upp á fyrirtækið. „Við erum búin að vinna hörðum höndum fyrir þetta fyrirtæki og þetta hefur virkilega mikil áhrif á okkur og einnig börnin okkar. Þetta umtal með að við séum að styðja ofbeldi eða nauðganir er bara ÚTÍ HÖTT,“ skrifar Sólveig. Sólveig segir umfjöllun síðustu daga hafa lagst þungt á sig.Instagram „Ég get ekki einu sinni sett mig í spor þolenda og mun aldrei í mínu lífi styðja slíkan viðbjóð!!! Og það að fólk sé að ljúga að því að það sé að fá matareitranir hjá okkur (til að skemma fyrir okkur) sem ég hef bara aldrei heyrt um fyrr hvorki í samskiptum á okkar miðlum né á tölvupóstum,“ skrifar Sólveig. Hún segist vita vel að Reynir sé hvatvís en að hann hafi tekið orð sín til baka. „Hann nefnir einnig að ekki sé hægt að dæma manneskju fyrr en það liggi fyrir dómur eins og eðlilegt er þegar að svona viðkvæmt mál kemur upp, enda hafði hann bara ekki hugmynd um neitt annað,“ skrifar Sólveig. „Við erum búin að fá alls konar sögusagnir um þennan mann eftir að allt þetta gerðist sem VIÐ VISSUM BARA ALLS EKKI og vonum við innilega að á því verði tekið að sjálfsögðu.“
MeToo Mál Sölva Tryggvasonar Veitingastaðir Reykjavík Árborg Tengdar fréttir Saga Ýrr segir sig frá máli Sölva Tryggvasonar Saga Ýrr Jónsdóttir hefur sagt sig frá máli Sölva Tryggvasonar fjölmiðlamanns, sem hefur verið kærður fyrir líkamsárás og kynferðisbrot. Lögmaðurinn segir sig frá málinu vegna hagsmunaárekstrar, sem hún segist hafa frétt fyrst af á fimmtudaginn. 10. maí 2021 11:23 „Mikil mistök“ að hafa snúist til varnar fyrir Sölva Tónlistarmaðurinn Jónas Sigurðsson segir að hann hafi gert mistök þegar hann brást til varnar Sölva Tryggvasyni fjölmiðlamanni, eftir að Sölvi hafði gefið það út á netinu að hann væri saklaus af ásökunum um ofbeldi. 9. maí 2021 10:32 Lögmaður Sölva segir málið komið í réttan farveg „Það er auðvitað komið fram núna að það séu komnar kærur og það er auðvitað bara rétti farvegurinn. Þar getur hann tekið til varna,“ segir Saga Ýrr Jónsdóttir, lögmaður Sölva Tryggvasonar fjölmiðlamanns. 6. maí 2021 09:21 Mest lesið „Við erum meira að segja hætt að hlusta í tölvupóstum“ Atvinnulíf Ná sátt og geta haldið kjaraviðræðum áfram Viðskipti innlent Lykilfólk úr Vélfagi stofnar nýtt sjávarútvegstæknifyrirtæki Viðskipti innlent Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Viðskipti erlent Landsbankinn greiðir 34,9 milljarða í arð til hluthafa Viðskipti innlent Stofnandi Bláa lónsins nú formaður stjórnar Viðskipti innlent Íbúðum til sölu fjölgar verulega frá áramótum Viðskipti innlent Tónabíó opnar á ný Viðskipti innlent Ný sátt gerð og Míla sektuð um 200 milljónir Viðskipti innlent Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnandi Bláa lónsins nú formaður stjórnar Lykilfólk úr Vélfagi stofnar nýtt sjávarútvegstæknifyrirtæki Ná sátt og geta haldið kjaraviðræðum áfram Ný sátt gerð og Míla sektuð um 200 milljónir Lítið fékkst upp í 217 milljóna kröfur í bú Kvikmyndaskólans Landsbankinn greiðir 34,9 milljarða í arð til hluthafa Íbúðum til sölu fjölgar verulega frá áramótum Tónabíó opnar á ný Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Vextir hafi sannarlega lækkað en framboðið sé breytt Launahækkanir muni valda meiri stýrivaxtahækkunum Tekur ekki undir fullyrðingar um plat Klofningur nefndarinnar helstu tíðindin og verkalýðnum hótað „Kristrún, það er ljótt að plata“ Stjórnendur svartsýnni en þeir hafa verið frá 2020 Bein útsending: Sitja fyrir svörum vegna vaxtahækkunar Ráðinn sviðsstjóri fyrirtækjasviðs Olís Hækka stýrivexti Genis á Siglufirði í söluferli: Ekki forsendur fyrir vexti á Íslandi Telja útboð á heilsurækt í Eyjum sniðið að World Class Spáir hækkun stýrivaxta í fyrramálið Skiptastjóri Play kærir úrskurð um vanhæfi Spá óbreyttum stýrivöxtum Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Íris ráðin til SI Þúsundir hringja í Skattinn „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Fara fram á lögbann á Isavia Sjá meira
Saga Ýrr segir sig frá máli Sölva Tryggvasonar Saga Ýrr Jónsdóttir hefur sagt sig frá máli Sölva Tryggvasonar fjölmiðlamanns, sem hefur verið kærður fyrir líkamsárás og kynferðisbrot. Lögmaðurinn segir sig frá málinu vegna hagsmunaárekstrar, sem hún segist hafa frétt fyrst af á fimmtudaginn. 10. maí 2021 11:23
„Mikil mistök“ að hafa snúist til varnar fyrir Sölva Tónlistarmaðurinn Jónas Sigurðsson segir að hann hafi gert mistök þegar hann brást til varnar Sölva Tryggvasyni fjölmiðlamanni, eftir að Sölvi hafði gefið það út á netinu að hann væri saklaus af ásökunum um ofbeldi. 9. maí 2021 10:32
Lögmaður Sölva segir málið komið í réttan farveg „Það er auðvitað komið fram núna að það séu komnar kærur og það er auðvitað bara rétti farvegurinn. Þar getur hann tekið til varna,“ segir Saga Ýrr Jónsdóttir, lögmaður Sölva Tryggvasonar fjölmiðlamanns. 6. maí 2021 09:21