Erlent

Breskir útgerðarmenn brjálaðir vegna Brexit

Samúel Karl Ólason skrifar
Um 24 flutningabílum var ekið um miðbæ London og þeim lagt við þingið og ráðuneyti.
Um 24 flutningabílum var ekið um miðbæ London og þeim lagt við þingið og ráðuneyti. AP/Alastair Grant

Forsvarsmenn skoskra skelfisksfyrirtækja mótmæltu aðstæðum á mörkuðum þeirra með því að leggja fjölda flutningabíla við þingið í London og ráðuneyti. Þeir segja úrgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu, og skilyrði sem því fylgja vera að kæfa fyrirtækin og kalla eftir breytingum.

Eins og staðan sé núna fylgi því of mikil skriffinska að flytja sjávarafurðir til Evrópu að Bretar geti ekki selt ferskan fisk þangað. Vegna tollaskoðana og annarskonar eftirlit hefur hægt á útflutningi Breta.

Ástandið er svo slæmt, samkvæmt frétt Sky News, að kaupendur á meginlandinu hafa neitað að taka við afla frá Bretlandi vegna ástands hans. Á það sérstaklega við skelfisk þar sem hann liggur fyrr við skemmdum.

Boris Johnson, forsætisráðherra, hefur heitið því að koma fyrirtækjunum til aðstoðar.

Forsvarsmenn sjávarútvegs Bretlands og samfélaga sem hafa reitt á þann iðnað, voru meðal helstu stuðningsmanna Brexit og þá á þeim grundvelli að það myndi tryggja Bretum aftur full yfirráð yfir því hverjir veiða innan lögsögu ríkisins.

Hlutfall ESB af heildarkvóta Breta mun lækka um fjórðung á næstu fimm árum og að þeim tíma loknum verður samið á nýjan leik.

Nú er staðan hins vegar önnur og útgerðarmenn segja stöðuna hræðilega. Fiskurinn þeirra verði ónýtur áður en þeir geti selt hann. Einn skoskur útgerðarmaður hótaði því nýverið að sturta ónýtum afla sínum á þröskulda stjórnmálamanna.

Rúmlega tuttugu flutningabílum var ekið um miðbæ London og mátti sjá merkingar á þeim um að Brexit væri að valda usla og að ríkisstjórnin væri vanhæf og hún væri að rústa skelfiskiðnaði Bretlands.


Tengdar fréttir

Taka skinku­sam­lokur af bíl­stjórum eftir Brexit

Vegna nýs viðskiptasamnings Evrópusambandsins og Bretlands eftir Brexit er innflutningur einstaklinga á ýmsum vörum óheimill, til dæmis þeim sem innihalda kjöt eða mjólkurvörur. Þessum reglum hafa bílstjórar sem ferðast á milli fengið að finna fyrir.

Bretar form­lega gengnir úr Evrópu­sam­bandinu

Bretland hefur formlega segið skilið við Evrópusambandið en Bretar yfirgáfu innri markað sambandsins og tollabandalagið klukkan ellefu í gærkvöldi. Þetta markar nýtt tímabil í sögu Bretlands en það hefur verið aðili að Evrópusambandinu, og þar áður Evrópubandalaginu, frá 1. janúar 1973.

Copy/Paste í Brexit-díl: Nýr samningur, úreltur texti

Grunur leikur á að kaflar í nýjum samningi Bretlands og Evrópusambandsins hafi verið teknir í heilu lagi úr gömlum lögum eða samningum, þar sem í þeim má finna tilvísanir í úrelta tækni á borð við Netscape Communicator og 1024-bita RSA dulkóðun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×