Rússa-sérfræðingi Hvíta hússins vísað á dyr Samúel Karl Ólason skrifar 20. janúar 2020 11:33 Maðurinn, sem heitir Andrew Peek, tók við starfinu í Þjóðaröryggisráði Hvíta hússins í nóvember. Vísir/Getty
Sérfræðingi ríkisstjórnar Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, í málefnum Rússlands var fylgt út úr Hvíta húsinu af öryggisvörðum um helgina. Hann hefur verið settur í formlegt leyfi á meðan rannsókn, sem tengist öryggismálum. fer fram. Maðurinn, sem heitir Andrew Peek, tók við starfinu í Þjóðaröryggisráði Hvíta hússins í nóvember. Báðir forverar hans sem höfðu verið í starfinu í forsetatrið Trump, þau Tim Morrison og Fiona Hill, báru vitni í rannsókn fulltrúadeildar Bandaríkjaþings á meintum embættisbrotum Trump. Mikil velta hefur verið á embættismönnum í þessari stöðu en Peek, Morrison og Hill hefur verið ætlað að taka stóran þátt í að mynda opinbera stefnu ríkisstjórnarinnar gagnvart Rússlandi. Í yfirlýsingu til AP fréttaveitunnar segja forsvarsmenn Þjóðaröryggisráðsins að engar upplýsingar verði veittar um málið þar sem það flokkist undir mannauðsmál. Peek hefur sjálfur ekki viljað tjá sig um málið. Peek átti að fara með Trump á fund Alþjóðaefnahagsráðsins í Davos í Sviss (World Economic Forum) í þessari viku. Hann starfaði áður hjá Utanríkisráðuneytinu og fjallaði sérstaklega um málefni Mið-Austurlanda. Þar áður var hann í hernum og þjónaði í Afganistan.
Bandaríkin Donald Trump Rússland Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Óveður gengur yfir landið Innlent Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Erlent Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Innlent Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Fleiri fréttir „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sjá meira