Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 13. október 2026 20:18 Davis hyggst áfrýja málinu. Getty Duane „Keffe D“ Davis, fyrrverandi leiðtogi glæpagengis, hefur verið dæmdur í fjörutíu ára fangelsi fyrir að skipuleggja morðið á rapparanum Tupac Shakur árið 1996. Hann er sá fyrsti sem hlýtur dóm vegna morðsins.
Skotið var á Shakur úr bíl í Las Vegas 7. september 1996. Hann var 25 ára og einn áhrifamesti rappari heims þegar hann lést. Kviðdómur sakfelldi Davis í september samkvæmt umfjöllun breska ríkisútvarpsins en hann er sagður ætla að áfrýja málinu. Ákæruvaldið byggði málflutning sinn á því að Davis hefði skipulagt árásina og útvegað byssuna. Hann var áður leiðtogi South Side Compton Crips-glæpagengisins. Ræddi aðkomu sína í bók og fjölmiðlum Opinberar frásagnir Davis af morðinu voru meðal helstu sönnunargagna málsins. Hann hafði ítrekað viðurkennt að hafa verið í hvítum Cadillac-bíl sem skotið var úr á Shakur. Davis greindi lögreglu fyrst frá aðkomu sinni í yfirheyrslu árið 2008. Hún tengdist rannsókn á morðinu á rapparanum Christopher Wallace, betur þekktum sem Notorious B.I.G., sem var skotinn til bana nokkrum mánuðum eftir Shakur. Davis hafði þá gert samkomulag við yfirvöld um fríhelgi. Hann fjallaði síðar nánar um aðkomu sína í endurminningabókinni Compton Street Legend, sem kom út árið 2019, og í fjölmiðlaviðtölum. Samkvæmt umfjöllun breska ríkisútvarpsins féll sú vernd úr gildi vegna opinberra yfirlýsinga hans síðan. Dómari heimilaði að yfirheyrslan frá 2008 yrði notuð gegn honum við réttarhöldin. Hafi ýkt til að selja bækur Verjendur Davis héldu því fram að frásagnir hans væru uppspuni. Hann hefði ýkt aðkomu sína og gortað til að selja bækur og afla tekna. Ákæruvaldið sagði hins vegar að Davis hefði fyrirskipað skotárásina og útvegað byssuna sem systursonur hans, Orlando Anderson, hefði notað til að skjóta á Shakur.Anderson neitaði að hafa komið að morðinu. Hann lést í annarri skotárás árið 1998. Morðið á Shakur var eitt þekktasta óupplýsta morðmál Bandaríkjanna í þrjá áratugi og varð kveikja fjölmargra samsæriskenninga. Sakfelling Davis í síðasta mánuði var sú fyrsta í málinu.
Bandaríkin Erlend sakamál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira