Gummi Gumm gæti mætt á Hlíðarenda í lok ágústmánaðar Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 20. júlí 2020 23:00 Guðmundur Þórður Guðmundsson og lærisveinar hans hjá þýska félaginu Melsungen gætu mætt Val í nýrri Evrópukeppni sem fer af stað undir lok ágústmánaðar. Vísir/Andri Marinó
Evrópska handknattleikssambandið, EHF, gaf það út í dag að fyrsta umferð nýrrar Evrópudeildar sambandsins – karla megin - mun fara fram í lok ágústmánaðar. Þar verða 30 lið sem taka þátt og er Valur eitt þeirra. Þá fara níu lið beint í aðra umferð þar sem leikið verður um sæti í Evrópudeildinni. Nú þegar hafa tólf lið fengið sæti í keppninni og munu því 39 lið berjast um þau tólf sæti sem eftir eru. Valur er eina íslenska liðið sem tekur þátt í keppninni en þó nokkur Íslendingalið verða í pottinum þegar dregið verður. Þar má nefna Berringbro-Silkeborg, Skjern og Holstebro frá Danmörku. Lærisveinar Guðmunds Þórðar Guðmundssonar, landsliðsþjálfara Íslands, hjá Melsungen verða í pottinum en Arnar Freyr Arnarsson gekk nýverið í raðir félagsins. Kristianstad frá Svíþjóð verður einnig í pottinum en þar leika Ólafur Guðmundsson og Teitur Örn Einarsson. Raðað verður í styrkleikaflokka síðar í vikunni og dregið verður þann 28. júlí. FH og Afturelding taka einnig þátt í keppnum á vegum EFH en þau leika í Evrópubikarnum, keppni sem er einnig ný af nálinni. Kvenna megin taka Valur og KA/Þór svo þátt.
Handbolti Mest lesið Brjálaðist og gaf vellinum fokkmerki Golf Fulltrúar UEFA gengu út eftir að Infantino mætti seint Fótbolti Salah gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool Enski boltinn Erfitt að sofa eftir tvo sólarhringa á hlaupum Sport Óðs manns æði Arnars: „Ég ætla samt að gera þetta“ Fótbolti Sjáðu mörkin: Berglind í hefndarhug með fleiri en allt Valsliðið í sumar Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Úrslitaleikur FA Cup, risamót í golfi og sjóðheit lið í Bestu Sport Stjörnurnar fögnuðu og hátíð á götum New York eftir sigur á meisturunum Körfubolti Sætur sigur HK og Vilhelm bjargaði stigi fyrir ÍR Íslenski boltinn Eitt töfrabragð dugði gegn United í dýrmætum sigri Enski boltinn Fleiri fréttir Elvar í aðalhlutverki þegar Melsungen tók stórt skref í titilslagnum „Ég get ekki beðið“ Stærsti íþróttaviðburður sem fram hafi farið hér á landi Svona var blaðamannafundur Vals fyrir seinni úrslitaleikinn „Í lokin snýst þetta alltaf um okkur sjálfa“ Ótrúlegur Donni kom ekki í veg fyrir tap Aldís Ásta Svíþjóðarmeistari Íslendingar gerðu gæfumuninn í Íslendingaslögum Uppgjörið: Valur - Fram 33-37 | Bláir leiða úrslitaeinvígið EM-riðillinn: Ítalía, Pólland og Ungverjaland Patrekur verður svæðisfulltrúi Guðmundur Bragi frábær í stórsigri Jöfnuðu metin gegn Dortmund Allt opið hjá Degi sem kveður franska stórliðið Birtir gamla mynd af sér í Barcelona-treyju: „Stór draumur að rætast“ Varð að þegja yfir samningnum við Barcelona í margar vikur ÍBV sækir Jakob úr föllnu liði Gróttu Viktor Gísli búinn að semja við Barcelona Dóttir Lauge fæddist löngu fyrir tímann HSÍ ræður Roland Eradze sem markmannsþjálfara Strákarnir okkar í öðrum styrkleikaflokki Nýr forseti norska sambandsins spilaði hjá Þóri og Marit Breivik „Gerðum út um leikinn og ekki yfir miklu að kvarta“ Uppgjörið: Ísland - Georgía 33-21 | Fullt hús eftir stórsigur Ljóst hvaða þjóðir verða með Ísland á EM í handbolta Fínn leikur íslensku landsliðskvennanna dugði ekki Uppgjörið: Porrino - Valur 29-29 | Jafnt í fyrri leiknum „Maður veit alveg hver gulrótin er“ Aldís Ásta og félagar einum sigri frá sænska meistaratitlinum Alfreð reiður út í leikmenn sína Sjá meira