Erlent

Óttast að töl­fræði um far­aldurinn verði notuð í pólitískum til­gangi eftir ný til­mæli til sjúkra­húsa

Sylvía Hall skrifar
Óánægja virðist vera með störf Anthony Fauci, eins helsta smitvarnarsérfræðings ríkisstjórnarinnar, meðal Trump og ríkisstjórnar hans.
Óánægja virðist vera með störf Anthony Fauci, eins helsta smitvarnarsérfræðings ríkisstjórnarinnar, meðal Trump og ríkisstjórnar hans. Vísir/Getty

Sjúkrahús munu nú senda tölfræði um kórónuveirusjúklinga og ástand á sjúkrahúsum til stjórnvalda í stað þess að hún verði send beint til sóttvarnarstofnunar Bandaríkjanna. Þetta kemur fram á vef CNN sem hefur fengið það staðfest frá heilbrigðisráðuneyti landsins.

New York Times greindi fyrst frá málinu þar sem sérfræðingar lýstu yfir áhyggjum af því að þetta myndi leiða til þess að gögnum yrði haldið frá almenningi eða þau notuð í pólitískum tilgangi. Með þessari ákvörðun mun heilbrigðisráðuneytið fá daglegar skýrslur um sjúklinga frá sjúkrahúsum, tölfræði um fjölda rúma og öndunarvéla sem eru ekki í notkun og aðrar upplýsingar sem gefa yfirsýn yfir alvarleika faraldursins vestanhafs.

Mikið hefur gengið á innan Hvíta hússins undanfarna daga í tengslum við kórónuveirufaraldurinn, sem virðist vera í stöðugum vexti í Bandaríkjunum. Hvergi hafa jafn margir greinst með veiruna og hafa hátt í 140 þúsund látist.

Óánægja virðist vera með störf Anthony Fauci meðal Trump og ríkisstjórnar hans. Fauci, sem er einn helsti smitvarnasérfræðingur ríkisstjórnarinnar, hefur verið gagnrýndur harðlega af mörgum innan Hvíta hússins og sendu embættismenn fjölmiðlum vestanhafs skjal með upplýsingum sem var ætlað að rýra trúverðugleika hans undir nafnleynd.

Í leiðbeiningum sem sendar voru til sjúkrahúsa í Bandaríkjunum kemur skýrt fram að frá og með deginum í dag eigi sjúkrahús ekki að senda upplýsingar um Covid-19 til sóttvarnarstofnunarinnar, sem hefur hingað til fengið upplýsingar frá yfir 25 þúsund sjúkrahúsum landsins. Þess í stað verða þær sendar í gagnagrunn sem er ekki aðgengilegur almenningi, sem er talið geta haft neikvæð áhrif á þá störf heilbrigðisstarfsfólks og annarra sem nýta slíkar upplýsingar til rannsókna.

Um það bil 3,5 milljónir hafa greinst með kórónuveiruna í Bandaríkjunum og líkt og áður sagði hafa tæplega 140 þúsund látist af völdum hennar. Mörg ríki hafa gripið til þeirra ráða að herða aðgerðir á ný eða fresta frekari afléttingum um óákveðinn tíma.


Tengdar fréttir

Bandarískt bóluefni tilbúið fyrir lokaprófanir

Fyrsta bóluefnið sem gerðar voru tilraunir með í Bandaríkjunum hafði þau áhrif á ónæmiskerfið sem vísindamenn höfðu vonast eftir og er bóluefnið tilbúið til lokaprófanna. Það eru því þrjú möguleg bóluefni sem eru lengst komin í þróuninni.

Sóttvarnastofnun endurskoðar tilmæli eftir óánægju Trump

Leiðbeiningar sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna varðandi opnun skóla í kórónuveirufaraldrinum verða endurskoðaðar eftir að Donald Trump forseti gagnrýndi þær fyrir að vera of strangar í dag. Forsetinn hótaði jafnframt að stöðva fjárveitingar til skóla sem vilja ekki opna að fullu í haust.

Smit á uppleið í 37 ríkjum Bandaríkjanna

Nýjum kórónuveirusmitum fer fjölgandi í 37 af 50 ríkjum Bandaríkjanna síðustu tvær vikurnar, miðað við fjórtán daga tímabil snemma í júní, að því er greining Reuters leiðir í ljós.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×