Og eftir stóðu tvö Stefán Ó. Jónsson skrifar 4. nóvember 2019 11:45 Björnsbakarí á Fálkagötu 18, meðan það starfaði. Við enda Smyrilsvegs má sjá glitta í eina af byggingum Háskóla Íslands, þaðan sem margir svangir stúdentar hafa streymt í bakaríið í gegnum árin. ja.is
Eftir áratugastarfsemi hefur bakaríinu á Fálkagötu 18 verið skellt í lás. Bakarísbúð Björnsbakarís heyrir sögunni til og munu stúdíóíbúðir koma í þess stað. Neyslubreytingar, samkeppni og samdráttur urðu banabiti bakarísins. Björnsbakarí lokaði tveimur af fimm verslunum sínum í upphafi árs 2017, verslunum sínum við Lönguhlíð og Dalbraut, vegna samdráttar. Eftir stóðu þrjú útibú; við Hringbraut, Austurströnd á Seltjarnarnesi og Fálkagötu. Síðastnefnda verslunin hefur verið vinsæll áningastaður háskólanema í gegnum árin enda skammt frá raungreinastofum Háskóla Íslands; Tæknigarði og VR I-III. Aðsókn háskólanema reyndist þó ekki meiri en svo að aðstandendur Björnsbakarís ákváðu að skella í lás á Fálkagötu í haust. Nýr eigandi hyggst breyta því í íbúðir og lýkur þar með næstum aldalangri verslunarsögu rýmsins við Fálkagötu 18. Lengi í gerjun Steinþór Jónsson, framkvæmdastjóri og eigandi Björnsbakarís, segir að það hafi í raun verið tvennt sem réð ákvörðuninni: Samdráttur og samkeppni. Björnsbakarí hafi fundið fyrir kólnun hagkerfisins síðustu misseri auk þess sem samkeppnishæfni íslenskra framleiðenda gagnvart stærri framleiðendum og innflutningi sé veik. „Við erum að berjast við það að á annan tug tonna af bakkelsi er flutt inn til landsins, alla daga ársins,“ segir Steinþór. Það sé erfitt fyrir litla framleiðendur að fóta sig í slíkum straumi. „Litlar verslanir eiga undir högg að sækja, þær eru farnar að draga saman seglin og fleiri bakarísverslanir munu loka eða sameinast. Það á eftir að gerast, það er yfirvofandi samdráttur í þessari grein.“ Verslun Björnsbakarís við Hringbraut er annað þeirra sem eftir standa. Hitt er á Seltjarnarnesi.fbl/vilhelm En hvernig meturðu stöðuna núna? Ætliði að reyna einhvern veginn að sækja fram eða er varnarstaða framundan?„Nei, við sækjum ekki fram. Við erum að reyna að fækka fólki eins og við getum og í raun og veru að reyna að verja það sem við höfum,“ segir Steinþór og vísar þar m.a. til þeirra tveggja útibúa sem Björnsbakarí rekur ennþá. „Annað verðum við bara að hætta með, það liggur alveg ljóst fyrir að það er ekki hægt að borga með starfseminni í dag. Það þýðir ekkert að gráta þetta, svona er bara staðan.“ Baráttan um brauðið Neyslubreyting hafi jafnframt haft sín áhrif að sögn Steinþórs. Á tímum þar sem annar hver maður virðist vera að sniðganga kolvetni; með aðstoð Atkins, LKL, Sigurjónslífsstílsins eða Keto, er augljóst að bakarí eiga undir högg að sækja, með allt sitt brauðmeti og bakkelsi. Steinþór telur brauðið þó haft fyrir rangri sök, sem bakarameistarar hafi reynt að leiðrétta. Neysla Íslendinga á brauði sé lítil í alþjóðlegum samanburði og hafi dregist nokkuð saman á undanförnum árum - á sama tíma og offita meðal Íslendinga eykst og nefnir hann í því samhengi umfjöllun Kompáss um fjölgun barna með offitu. Orsökin verði því ekki fundin ofan í brauðboxinu. „Það er greinilega eitthvað annað sem fólk ætti að hætta að borða. Við höfum reynt að benda á það undanfarin ár en fáum lítinn hljómgrunn. Brauð og kornmeti á að vera hluti af fæðu fólks,“ segir Steinþór en undirstrikar þó að allt er gott í hófi. „Fólk þarf kolvetni og fólk þarf trefjar, ekki síst fyrir heilastarfsemina.“
Neytendur Reykjavík Veitingastaðir Verslun Mest lesið Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Atvinnulíf Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Arion banki og Kvika blása af samrunann Viðskipti innlent Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Sjá meira