Arnar Freyr í liði ársins í Svíþjóð Tómas Þór Þórðarson skrifar 21. maí 2019 14:30 Arnar Freyr Arnarsson fer til GOG í sumar. Getty/Carsten Harz
Arnar Freyr Arnarsson, línumaður íslenska landsliðsins í handbolta, var valinn í lið ársins í sænsku úrvalsdeildinni sem tilkynnt var í dag. Arnar Freyr skoraði 71 mark í 32 leikjum fyrir stórlið Kristianstad sem mistókst að vinna Svíþjóðarmeistaratitilinn fimmta árið í röð en liðinu var sópað í sumarfrí í undanúrslitum gegn Alingsås. Línumaðurinn stóri og stæðilegi úr Safamýrinni var að spila sína síðustu leiktíð fyrir Kristianstad en hann heldur í sumar til GOG í Danmörku þar sem hann verður samherji Óðins Þórs Ríkharðssonar og Viktors Gísla Hallgrímssonar en sá síðarnefndi er á leið í atvinnumennskuna frá Fram. Arnar Freyr gekk í raðir Kristianstad frá Fram sumarið 2016 og hefur verið fastamaður í liðinu allar götur síðan. Hann vann Svíþjóðarmeistaratitilinn árið 2017 og 2018 og þá hefur hann spilað fjölmarga leiki fyrir liðið í Meistaradeildinni. Hann er eini Íslendingurinn í úrvalsliðinu en Ólafur Guðmundsson, stórskytta Kristianstad, og markvörðurinn Ágúst Elí Björgvinsson hafa einnig staðið sig vel á tímabilinu. Ágúst Elí og félagar í Sävehof eru 1-0 yfir í úrslitaeinvíginu gegn Alingsås en liðin mætast öðru sinni á heimavelli Sävehof í kvöld.
Handbolti Mest lesið Segir hegðun Brynjars Karls „ekkert annað en ofbeldi“ Körfubolti Fórnaði sér fyrir strákaliðið Sport Súrustu töpin í sögu strákanna okkar Handbolti Hamilton klessti Ferrari-inn á fyrsta degi Formúla 1 City mun mæta Real eða Bayern í umspilinu Fótbolti „Fokking aumingjar“ Körfubolti Þórir ætlar að hlusta á hjartað en ekki strax Handbolti Hákon kom að marki í stórsigri og Lille tryggði sig beint áfram Fótbolti Félagaskiptaglugginn: Hvaða eftirsótti framherji færir sig um set? Fótbolti Liverpool tapaði í Hollandi hélt þó toppsætinu Fótbolti Fleiri fréttir Súrustu töpin í sögu strákanna okkar Þórir ætlar að hlusta á hjartað en ekki strax Lærisveinar Alfreðs úr leik eftir framlengdan leik Anton tekur við kvennaliði Vals Danir flugu inn í undanúrslitin Dagur fyrstur Íslendinga til að fara með karlalið í undanúrslit á HM Hágrét af sorg þegar hann tók við viðurkenningunni Ósáttur bæjarstjóri gaf öllum frí til að styðja sveina Dags Báðu Dag að sýna tilfinningar: „Ég er glaður“ Sigurmark frá miðju og Dagur mætir Frökkum Sturluð endurkoma og Dagur í undanúrslit Strákarnir hans Arons kvöddu með sigri Segir að Viktor Gísli sé einn af þremur bestu markvörðum heims „Við getum bara verið fúlir“ Aðeins tvær þjóðir spiluðu hægar en Ísland á HM Fyrsta liðið sem situr eftir með átta stig Endaði með fjörutíu prósent markvörslu á HM Hefur verulegar áhyggjur af Hauki: „Þetta er eins og Fóstbræðraskets“ Viktor Gísli besti maður Íslands á HM HM í dag: Ferðalok og síðasti sundspretturinn Vill sjá breytingar á landsliðinu: „Aðeins að poppa þetta upp“ HSÍ planaði heimför fyrir Argentínuleikinn: „Finnst það frekar taktlaust“ Myndasyrpa frá súrsæta sigrinum á Argentínu Skýrsla Henrys: Endurtekið efni enn eitt árið Uppgjörið: Króatía - Slóvenía 29-26 | Dagur stýrði Króötum til sigurs og sendi strákana okkar heim Egyptaland í átta liða úrslit eftir bras í byrjun Guðmundur hefur trú á Slóveníu Fyrirliðinn leyfir sér ekki að vona: „Ég held að við séum bara búnir“ Eina tapið svíður enn: „Við vorum „outcoachaðir“ á öllum sviðum“ Einkunnir Strákanna okkar á móti Argentínu: Við eigum einn besta markvörð í heimi Sjá meira