Handbolti

Læri­sveinar Al­freðs úr leik eftir fram­lengdan leik

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Alfreð yppir öxlum.
Alfreð yppir öxlum. EPA-EFE/Stian Lysberg Solum

Portúgal lagði Þýskaland – lærisveina Alfreðs Gíslasonar - með eins marks mun eftir framlengdan leik í 8-liða úrslitum heimsmeistaramóts karla í handbolta, lokatölur 31-30.

Portúgal byrjaði leik kvöldsins mun betur og var 5-1 yfir þegar tæpar tíu mínútur voru liðnar. Eftir að hafa náð að minnka muninn niður í tvö mörk var hann kominn aftur upp í fjögur þegar fyrri hálfleikur rann sitt skeið, staðan 13-9.

Eitthvað hefur Alfreð sagt í hálfleik því Þjóðverjar byrjuðu síðari hálfleik af krafti. Um miðbik hans skoruðu þeir fjögur mörk í röð og fóru þar með úr því að vera tveimur mörkum undir í að vera tveimur mörkum yfir.

Leikurinn var í járnum það sem eftir lifði leiks og tókst Portúgal að knýja fram framlengingu með marki Pedro Portela þegar 25 sekúndur voru til leiksloka. Staðan 26-26 og því þurfti að framlengja.

Framlengingin var nokkuð sveiflukennd en á endanum var það Martim Costa sem skoraði það sem reyndist sigurmarkið, lokatölur 31-30.

Victor Iturriza Alvarez í leik kvöldsins.EPA-EFE/Stian Lysberg Solum

Francisco Mota da Costa var markahæstur hjá Portúgal með átta mörk og fjórar stoðsendingar. Þar á eftir kom Victor Iturriza með sjö mörk. Hjá Þýskalandi var Lukas Zerbe markahæstur með níu mörk.

Portúgal mætir Danmörku, ríkjandi heimsmeisturum, í undanúrslitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×