Upplýst ákvörðun eða ekki
Illugi er furðu lostinn, sparar hvergi upphrópunarmerkin en hann sem aðrir beina reiði sinni einkum að Steingrími J. Sigfússyni, forseta þingsins. „Lýsingin kostaði 22 milljónir! Lýsing - um miðjan dag í júlí!! Ég vona að Steingrímur fái flotta orðu fyrir hvað hann stóð glæsilega að þessu.“Björn Leví Gunnarsson þingmaður vitnar í svör við fyrirspurninni um sundurliðaðan kostnað þar sem segir að kostnaður hafi verið nokkuð umfram áætlun, einkum vegna þess að tekin var ákvörðun um að hafa lýsingu og hljóð af bestu gæðum þar sem atburðurinn var í beinni útsendingu.

Jóna Fanney Friðriksdóttir framkvæmdastjóri er furðu lostin. „Hátíðahöldin fóru 100% fram úr kostnaðaráætlun. Og lýsing kostar 22 mkr í júlímánuði...?! Heima hjá mér var bjart 24/7 í júlí. Ok, lýsing sennilega vegna sjónvarpssendingar - en hefur einhver áhuga á horfa á örfáar hræður og þjóðin fjarverandi? Eitthvað svo plebbalegt allt. En þeir verst settu fá sér bara kökur því lítið er um brauð hjá þeim daglega. Ég yrði látin fjúka úr vinnu með að fara 100% yfir áætlaðan kostnað. HVER BER ÁBYRGÐ HÉR?“
Fáir mættu á sjálfshátíðina
Nokkrir pistlahöfundar hafa látið málið til sín taka. Snæbjörn Brynjarsson, varaþingmaður Pírata gengur svo langt að telja að Steingrímur J. Sigfússon forseti Alþingis, eigi að segja af sér vegna málsins:„Hann nýtur ekki trausts lengur og værum við í einhverju hinna Norðurlandanna, Svíþjóð eða Noregs t.d. þyrfti ég ekki einu sinni að skrifa það, hann væri einfaldlega búinn að því. Fólk getur auðvitað endalaust þrætt um fundargerðir afmælisnefnda og þvælt málinu fram og til baka, en það breytir ekki þeirri staðreynd að forseti alþingis er hæstlaunaðasti meðlimur þingsins af því hann ber höfuðábyrgð á störfum þess. Og Steingrímur ber höfuðábyrgð á fundinum.“
Karl Th. Birgisson ritstjóri beinir einnig spjótum sínum að Steingrími og skrifar smá um „óværu“ og telur þingið fullkomlega firrt. Karl er ómyrkur í máli:

„Hvers vegna? Hvað í ósköpunum við þennan fund og raunar langflesta aðra viðburði til að „fagna“ afmæli fullveldisins hefði átt að vekja athygli fólks? Og það svo mjög, að það gerði sér ferð á Þingvelli af spenningi? Getur Steingrímur eða formaður hátíðarnefndarinnar, Einar K. Guðfinnsson (jebbs), nefnt okkur svo sem hálfa ástæðu?“
Takið ábyrgð vesalingar
Egill Helgason sjónvarpsmaður er einnig með kjálka niðrá höku. Hann skrifar pistil þar sem hann nefnir tvö dæmi um óvandaða stjórnsýslu, meðal annars þetta: „Maður spyr – hvernig er hægt að gera svo vonda áætlun, að kostnaður við frekar litla samkomu næstum tvöfaldis. Og það hlýtur líka að flökra að manni að aðstandendum þessa sé alveg sama, þeir kæri sig kollótta,“ skrifar Egill og bætir við: „Hvernig er þá framganga þeirra þegar meira er í húfi?“
Að lýsa upp skugga Píu
Og ýmsir reyna að hafa málið í flimtingum, væntanlega minnugir orða Becketts að eina leiðin til að komast af í hinum tilgangslausa heimi er húmorinn. Eiríkur Rögnvaldsson íslenskufræðingur segist nú skilja kostnaðinn: „Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, gagnrýndi þingmennina harðlega og sendi út fréttatilkynningu þar sem hann harmaði að heimsókn Piu Kjærsgaard hefði verið „notuð til að varpa skugga á hátíðarhöldin“.“
Það sturlaðasta sem ég hef heyrt
Nanna Rögnvaldsdóttir rithöfundur er undrandi: „Vill einhver útskýra fyrir mér hvernig er yfir höfuð hægt að eyða 22 milljónum í lýsingu fyrir fund sem haldinn er um miðjan dag utandyra í júlímánuði? (Plús 4,5 millur fyrir raflagnir, þær eru ekki inni í þessu.) Ég horfði á hluta af þessu og man bara ekkert eftir einhverri ofurskjannabirtu, það get ég svarið.“Og Pétur Már Ólafsson útgefandi spyr: „Hver lýsti eiginlega Þingvallafundinum? Þetta er líklega dýrasta lýsing Íslandssögunnar!“
Hannes Friðbjörnsson blaða- og tónlistarmaður hefur spilað á ófáum tónleikunum og þekkir því vel til, maður sviðs og söngva. Honum blöskrar: „22 millur í lýsingu utandyra um mitt sumar. Ég veit sitthvað um svona framkvæmdir og þetta er það sturlaðasta sem ég hef heyrt“
Uppskrúfuð vitleysa
Þannig gengur dælan á Facebook. Fólki er brugðið, fólk nær vart upp í nef sér af einskærri hneykslan yfir þessu sem það kallar stjórnlaust bruðl og ábyrgðarleysi.Þráinn Bertelsson, fyrrverandi þingmaður og rithöfundur, hefur þetta um málið að segja:
„Svona fína fólks fínirí á kostnað þeirra sem ekki eru boðnir, merkilegheit og djúp alvara hafa allavega á lýðveldistímanum þótt afar menningarleg þótt svona uppskrúfuð vitleysa sé farin að pirra marga.
Eflaust var Steingrímur potturinn og pannan í þessari hallærislegu tilgerð, en hann er bara forseti Alþingis og ríkisstjórnin og sá meirihluti sem hana styður er að sjálfsögðu jafn ábyrgur fyrir þessu og Steingrímur.Þetta er sama fólkið og hefur fengið vopnaða lögreglu til að hræða almenning frá því að koma til að kíkja á tilgerð fína fólksins við þingsetningu.“
Að útiloka dagsbirtuna
Á Twitter láta menn svo ekki sitt eftir liggja og hæðast að tiltækinu. Hrafn Jónsson, kvikmyndagerðarmaður með meiru, birtir mynd af Piu Kjærsgaard og tengir lýsinguna henni líkt og Eiríkur Rögnvaldsson: „Sjáið þennan grimma danska svip? Þessar djúpu hrukkur sem bara áratugir af hreinni fyrirlitningu geta skafið? Hvernig Íslenska þingið fellur í skugga þarna fyrir aftan? Listaverk. Þetta er það sem 22 milljónir í sviðslýsingu um hábjartan dag kaupa.“
Og Bragi Valdimar Skúlason lætur ekki sitt eftir liggja: „Alþingi. Dagskrá: Útilokun dagsbirtu hvað sem það kostar.“
Og þannig má lengi áfram nefna dæmi um furðu lostna skattgreiðendur sem tjá sig á samfélagsmiðlum. Netið logar, eins og þar stendur.