Fella einnig niður reikigjöld á frelsisnotendur Kjartan Kjartansson skrifar 14. júní 2017 14:24 Reikigjöld á farsíma verða felld niður í Evrópu á morgun. Vísir/EPA
Reikigjöld sem viðskiptavinir Símans og Vodafone hafa greitt þegar þeir virkja svonefnd frelsisnúmer sín erlendis verða felld niður eins og á aðra viðskiptavini þeirra. Sömu lögmál um notkun frelsisnúmera erlendis gilda áfram hjá fyrirtækjunum. Reglugerð Evrópusambandsins sem bannar fjarskiptafyrirtækjum að rukka viðskiptavini sína um svonefnd reikigjöld af símtölum, smáskilaboðum og netnotkun þegar þeir eru erlendis tekur gildi á morgun. Íslensku fjarskiptafyrirtækin munu því fella gjöldin niður hjá viðskiptavinum sínum á morgun.Sjá einnig: Reikigjöld ættu að falla niður hjá íslensku símafyrirtækjunum á fimmtudag Sumir viðskiptavina fyrirtækjanna eru hins vegar ekki í beinni áskrift heldur kaupa fyrirframgreidda inneign fyrir svonefnd frelsisnúmer. Þær inneignir hafa ekki virkað erlendis hjá Símanum. Svanlaug Einarsdóttir, vörustjóri farsíma hjá Símanum, segir að þeir sem eru með frelsisnúmer og fara erlendis hafi getað láti umbreyta númerinu í áskriftarnúmer á meðan í svokölluðu Frelsi í útlöndum. Þá greiði þeir fyrir notkun sína sérstaklega á meðan þeir eru erlendis. Reikigjöld sem hafa lagst ofan á þau gjöld falli nú niður og innanlandsverð gildi héðan í frá. Á vefsíðu Vodafone kemur fram að inneignir með inniföldum mínútum, SMS-um og gagnamagni gildi bæði á Íslandi og innan Evrópusambandsríkja. Sé keypt inneign fyrir fasta upphæð kosti notkun í Evrópusambandslöndunum það sama og heima. Þannig geti frelsisnotendur notað síma sína eins heima og erlendis.Upplýsingar um afnám reikigjalda á vefsíðu SímansUpplýsingar um afnám reikigjalda á vefsíðu VodafoneNý verðskrá Nova eftir afnám reikigjaldaUpplýsingar á vefsíðu Hringdu um afnám reikigjalda
Mest lesið Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Viðskipti innlent Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Viðskipti erlent Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Viðskipti innlent Breytingar á fyrsta farrými Neytendur Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Viðskipti innlent Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Viðskipti innlent Skordýr í dillinu Viðskipti innlent Hreyfing: Ekki lengur þörf á að greiða tugi þúsunda yfir mánuðinn Atvinnulíf Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Sjá meira