Viðskipti innlent

Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð

Agnar Már Másson skrifar
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, á allan hlut í Útgerðarfélagi Reykjavíkur, sem hefur nú aukið hlut sinn í haftæknifyrirtækinu Rafnari.
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, á allan hlut í Útgerðarfélagi Reykjavíkur, sem hefur nú aukið hlut sinn í haftæknifyrirtækinu Rafnari. Samsett Mynd

Útgerðarfélag Reykjavíkur, sem er í eigu Guðmundar Kristjánssonar í Brim, skilaði þriggja milljarða króna hagnaði á fyrri árshelmingi. Guðmundur hefur einnig aukið eignarhlut sinn í OK eignarhaldsfélagi, sem á bátasmiðjuna Rafnar, úr 25,21 prósentum upp í 30,70 prósent fyrir rúmlega hálfan milljarð króna.

Viðskiptablaðið greindi fyrst frá en þetta kemur fram í árshelmingsuppgjöri Útgerðarfélags Reykjavíkur (ÚR) fyrir 1. janúar til 30. júní 2026 en ÚR er allt í eigu Guðmundar, sem er forstjóri Brims. ÚR fjárfesti fyrst í Rafnari árið 2021 og hefur aukið hlut sinn síðan þá.

Hann er þá orðinn sá einstaklingur sem á stærstan hlut í haftæknifyrirtækinu Rafnari, en systkinin Lilja Össurardóttir og Bjarni Össurarson Rafnar eiga hvort um sig 30,64 prósenta hlut í Rafnari í gegnum félagið Mallard ehf. Lilja og Bjarni eru börn Össurar Kristinssonar, stofnanda stoðtækjafyrirtækisins Össurar, en hann stofnaði Rafnar árið 2005.

Í uppgjörinu segir að ÚR hafi keypt aukinn hlut í OK fyrir 3,9 milljónir evra, sem nemur 549 milljónum króna.

Í gegnum ÚR á Guðmundur einnig 32,17 prósenta hlut í útgerðarfélaginu Brim, sem hann er gjarnan kenndur við, og einnig 40 prósenta hlut í Zym Ice, sem er móðurfélag íslenska sjávarlíftæknifyrirtækisins Unbroken.

Þrír miljarðar í hagnað eftir að hafa selt í Brim

Tekjur ÚR af sölu afurða til útflutnings á fyrri árshelmingi námu 45,3 milljónum evra (6,5 m.kr.) og jukust því um 5 milljónir evra (700 m.kr.) miðað við tímabilið í fyrra.

Hagnaður samkvæmt rekstrarreikningi samstæðunnar nam 21 milljón evra á tímabilinu (um 3 ma.kr.), sem er um nífalt meira en á sama tíma í fyrra.

Breytingin er sögð skýrast einkum af sölu á eignarhlut í Brim hf. að nafnverði 35 milljónir króna og auknum hlutdeildartekjum í Brim hf.

Þá segir í uppgjörinu að hagnaður Brims hafi aukist milli ára vegna góðrar loðnuvertíðar og hagstæðrar verðþróunar á bolfiskafurðum á alþjóðamörkuðum.

Eignir samstæðunnar í lok tímabilsins samkvæmt efnahagsreikningi námu 571,5 milljónum evra (80 ma. kr.) og skuldir námu 258,9 milljónum evra (36 ma. kr.). Bókfært eigið fé samstæðunnar nam 312,5 milljónum evra (44 ma. kr.) og var eiginfjárhlutfall samstæðunnar 54,7 prósent í lok tímabilsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×