Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Árni Sæberg skrifar 2. október 2026 11:37 Helgi Magnús Hermannsson. Skiptum er lokið á þrotabúi Veislunnar ehf., sem rak samnefnda veisluþjónustu á Seltjarnarnesi um árabil. Ekki ein einasta króna fékkst upp í kröfur, sem námu tæpum 216 milljónum króna. Ekki er langt síðan greint var frá mörg hundruð milljóna króna gjaldþrotum félaga í eigu Helga Magnúsar Hermannssonar, sem einnig átti Veisluna.
Í auglýsingu þess efnis í Lögbirtingablaðinu segir að með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur, uppkveðnum 14. maí 2025, hafi þrotabú Veislunnar verið tekið til gjaldþrotaskipta. Skiptum hafi verið lokið þann 30. september 2026, án þess að greiðslur fengjust upp í lýstar kröfur, sem hafi verið að fjárhæð 215.786.494 króna. Slóð gjaldþrota Eigandi Veislunnar, Helgi Magnús Hermannsson, hefur komið að rekstri fjölda veitingastaða í gegnum tíðina, oftast í félagi við Jóhannes Birgi Skúlason. Vísir fjallaði um gjaldþrot tveggja félaga sem voru í eigu þeirra í ágúst síðastliðnum. Annars vegar var um félagið OL Restaurant & Sportbar ehf. að ræða en lýstar kröfur í þrotabú þess námu 167 milljónum króna. Félagið rak kaffihúsið Adesso til fjölda ára í Smáralind og Sport & Grill um nokkurra ára skeið í sömu verslunarmiðstöð. Eigandi þeirra staða seldi þeim Helga og Jóhannesi félagið árið 2024 og þeir opnuðu TGI Fridays þar sem Sport & Grill hafði verið. Tvö í tengslum við Grillhúsið Hitt félag þeirra Helga og Jóhannesar sem skiptum lauk á nýverið var Búsendi ehf. Það hét áður Grillhúsið ehf. en þeir keyptu Grillhúsið árið 2024. Félagið rak þá samnefnda staði á Laugavegi og Sprengisandi í Reykjavík. Samkvæmt auglýsingu í Lögbirtingablaðinu námu kröfur í búið alls 208 milljónum króna, án þess að nokkuð fengist upp í þær. Framangreind gjaldþrot eru ekki þau einu sem tengjast viðskiptafélögunum. Skiptum á þrotabúi Tanksins ehf., sem hélt um tíma utan um eignarhald þeirra á TGI Fridays og Grillhúsinu, lauk í júní í fyrra. Þá fékkst ekkert upp í 277 milljóna kröfur.
Gjaldþrot Seltjarnarnes Mest lesið Warren Buffet: Raunverulegur árangur snýst um ástina Atvinnulíf Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Viðskipti erlent Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta Samstarf Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Viðskipti innlent Ragnar Jónasson til liðs við Logos Viðskipti innlent Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Atvinnulíf Ekki hægt að leiðast í vinnunni Viðskipti innlent Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Neytendur EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Sjá meira