Klíníkin sótti 300 milljónir króna Árni Sæberg skrifar 2. október 2026 15:01 Kristján Jón Jónatansson, framkvæmdastjóri Klíníkurinnar. Vísir/Bjarni Klíníkin Ármúla lauk í september 300 milljóna króna hlutafjáraukningu og náðist þar með markmið aukningarinnar að fullu. Auk þess seldi félagið eigin hluti fyrir um 23 milljónir króna til 13 starfsmanna, sem eignuðust samtals tveggja prósenta hlut í félaginu. Fyrr á árinu bættust jafnframt níu starfandi læknar í hluthafahópinn.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að hlutafjáraukningin styrki fjárhagslegan grunn félagsins og skapi aukið svigrúm til frekari vaxtar. Fjármagnið verði meðal annars nýtt til að efla og stækka starfsemina en stefnt sé að því að taka tvær nýjar skurðstofur í notkun í byrjun árs 2027. Núverandi hluthafar hafi tekið þátt í aukningunni, en nýir eigendur hafi jafnframt bæst í hópinn með kaupum á eigin hlutum Klíníkurinnar. Alls séu eigendur félagsins nú 44, þar á meðal fjölmargir starfandi læknar og aðrir heilbrigðisstarfsmenn. Klíníkin hafi stækkað verulega á síðasta ári. Um mitt ár 2025 hafi félagið flutt í nýtt og stærra húsnæði að Ármúla 7–9. Rekstrartekjur Klíníkurinnar hafi numið um 2,7 milljörðum króna árið 2025 og aukist um 11,4 prósent frá fyrra ári. „Við erum afar ánægð með niðurstöðuna. Það er mikilvægt fyrir okkur að núverandi hluthafar sýni Klíníkinni traust og sérstaklega ánægjulegt að sjá starfsfólk fjárfesta sjálft í félaginu. Að baki Klíníkinni stendur nú breiður eigendahópur, þar á meðal fjölmargir starfsmenn og læknar, sem er tilbúinn að styðja við áframhaldandi uppbyggingu félagsins. Með tveimur nýjum skurðstofum aukum við afkastagetuna og verðum vel í stakk búin til að sinna fleiri aðgerðum í takt við eftirspurn og þörf. Það skiptir miklu máli að nýta þá miklu þekkingu og getu sem er til staðar í íslensku heilbrigðiskerfi og þannig gera fleiri sjúklingum kleift að fá þjónustu hér heima og fyrr,“ er haft eftir Kristjáni Jóni Jónatanssyni, framkvæmdastjóra Klíníkurinnar.
Heilbrigðismál Mest lesið Warren Buffet: Raunverulegur árangur snýst um ástina Atvinnulíf Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Viðskipti innlent Ragnar Jónasson til liðs við Logos Viðskipti innlent Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Atvinnulíf Ekki hægt að leiðast í vinnunni Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Neytendur Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Nýr forstjóri hjá Alfesca Viðskipti innlent Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Sjá meira