Viðskipti innlent

Ekki eftir neinu að slægjast í þrota­búi Slægingar

Árni Sæberg skrifar
Tilgangur félagsins var frysting sjávarafurða.
Tilgangur félagsins var frysting sjávarafurða. Vísir/Vilhelm

Skiptum er lokið á þrotabúi Slægingar ehf., án þess að nokkuð fengist upp í 168 milljóna króna kröfur.

Í auglýsingu þess efnis í Lögbirtingarblaðinu segir að félagið hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness, uppkveðnum 21. maí 2026. 

Skiptum hafi veirð lokið þann 28. ágúst 2026. Skiptum hafi verið lokið sem eignalausum án þess að greiðsla fengist upp í lýstar kröfur, auk áfallinna vaxta og kostnaðar eftir úrskurðardag gjaldþrotaskipta. Lýstar kröfur hafi numið 168 milljónum króna.

Samkvæmt fyrirtækjaskrá var tilgangur félagsins frysting fiskafurða, krabbadýra og lindýra. Heimilisfang þess var í Reykjanesbæ.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×