Skoðun

Aukin stuðningur við börn

Skúli Helgason skrifar
Meirihluti Samfylkingarinnar, Bjartrar framtíðar, VG og Pírata í skóla- og frístundaráði Reykjavíkurborgar hefur ráðist í aðgerðir til að auka stuðning við börn í svokölluðum fjölþættum vanda, en undir hann flokkast alvarlegur geðrænn vandi, hegðunarvandi og vímuefnavandi.

Skólastjórar hafa áætlað að í grunnskólum borgarinnar sem telja nærri fjórtán þúsund nemendur glími á þriðja hundruð barna við fjölþættan vanda, sem skólar eiga erfitt með að leysa. Þar af hefur verið áætlað að 30-40 ungmenni séu í vímuefnavanda. Skólar og starfsfólk sérfræðiþjónustu borgarinnar hafa um árabil veitt foreldrum og fagfólki í skólum ráðgjöf vegna hegðunarerfiðleika og annars fjölþætts vanda og í fyrra var fjölgað ráðgjöfum við Brúarskóla sem sérhæfir sig í þjónustu við umrædda nemendur og starfa þeir með grunnskólum í borginni við að leysa úr málum einstakra nemenda.

Aðgerðir meirihlutans nú fela í sér að sett verður á fót sérstakt viðbragðsteymi sem mun aðstoða skóla við að leysa úr einstökum málum og velja viðeigandi úrræði. Teymið mun líka hafa viðtækt umboð til að móta og þróa ný úrræði til að mæta vanda umræddra barna og mun sú vinna fara fram í nánu samstarfi við skólastjórnendur, foreldra og fagfólk undir stjórn ráðgjafasviðs Brúarskóla. Þeirri vinnu á að vera lokið fyrir 1. maí næstkomandi. Teymið mun leita samstarfs við Barnaverndarstofu sem hefur m.a. boðið foreldrum úrræði á borð við PMTO Foreldrafærni og svonefnda Fjölkerfameðferð (MST) en tekist hefur að draga verulega úr vímuefnanotkun, afbrotum og ofbeldishegðun þeirra 12-18 ára ungmenna sem fengið hafa þá meðferð.

Það er skylda okkar að bæta þjónustu við börn í fjölþættum vanda en jafnframt er mikilvægt að styrkja forvarnarstarf og bjóða foreldrum árangursrík úrræði sem hægt er að beita áður en vandinn verður illviðráðanlegur.

Mikill árangur hefur náðst á liðnum árum í að draga úr vímuefnaneyslu unglinga í borginni og má þakka það samstilltu átaki stjórnvalda, skóla, foreldra, forvarnaraðila, þjónustumiðstöðva í hverfum, íþróttafélaga, frístundamiðstöðva og fleiri. En nú er þörf á sams konar breiðfylkingu sem myndar stuðningsnet sem dugar fyrir börn sem eiga í alvarlegum fjölþættum vanda. Það verður mikilvægur prófsteinn á það hvort við stöndum undir nafni sem velferðarsamfélag.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×