Varð meistari á vinnustaðnum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. júní 2014 05:45 Inga Rúnar Kristinsson vantar lítið upp á að komast á EM U-23 ára næsta sumar. vísir/daníel „
Þetta var tær snilld. Það hafði varla verið góður dagur í vor en svo komu tveir frábærir þegar mótið fór fram,“ sagði tugþrautarkappinn Ingi Rúnar Kristinsson í Breiðabliki um veðurblíðuna í Kópavogi um helgina en þar fór Norðurlandamótið í fjölþraut fram. Ingi Rúnar bar sigur úr býtum í flokki 20-22 ára og náði þriðja besta árangri Íslendings frá upphafi í þeim aldursflokki. Aðeins Örn Clausen og Einar Daði Lárusson hafa gert betur. „Góða veðrið gerði gæfumuninn. Það hjálpar til að halda manni heitum og svo er maður bara betur upplagður,“ bætti Ingi Rúnar við, en hann fékk 7.156 stig fyrir þrautina sína um helgina. Alls náði hann að bæta sig í þremur greinum og sinn besta árangur í þraut um 201 stig. Miklu máli skiptir þó að hann vann þó nokkra persónulega sigra eftir meiðslabaráttu síðustu ára.Fyrsta bæting í fjögur ár „Fram að sautján ára aldri hafði ég verið nokkurn veginn alveg laus við meiðsli en þá meiddist ég á olnboga sem gerði mér erfitt fyrir í spjótkastinu. Ég gat núna um helgina loksins beitt mér almennilega í spjótinu og bætti mig í greininni í fyrsta sinn í fjögur ár,“ sagði hinn 21 árs gamli Ingi Rúnar sem kastaði 49,99 metra. „Svo hef ég líka verið með svokallað stökkvarahné en náði að stökkva á þeim fæti í fyrsta sinn í tvö ár. Ég tók þátt í tveimur þrautum í fyrra og hástökkið mitt í betri þrautinni var 1,77 metrar en nú fór ég yfir 1,91. Það er heilmikill munur og færði mér meira en 100 stig,“ útskýrir hann. Hann bætti sig einnig í kúluvarpi og langstökki og var hvað ánægðastur með árangurinn í síðarnefndu greininni. „Ég bætti mig um 32 cm og komst yfir sjö metra í fyrsta skipti. Það hafði verið draumur hjá mér í langan tíma og frábært að ná því loksins.“Hársbreidd frá EM-lágmarki Ingi Rúnar var þó ekki alveg laus við meiðslin um helgina en hann segir að honum hafi gengið mun betur í stökk- og kastgreinum en hlaupagreinunum. „Ég hef verið meiddur aftan í læri og því hefur hlaupaþjálfunin verið aðeins á eftir hinum greinunum. Ég get skrifað vandræðagang í grindahlaupinu um helgina á klaufaskap en í 1.500 metra hlaupinu fékk ég krampa aftan í lærin þegar tveir hringir voru eftir og ég ætlaði að taka af skarið,“ segir Ingi Rúnar. „1.500 m hlaup hefur ávallt verið nokkuð sterk grein hjá mér en ég ákvað að beita mér ekki af fullum krafti á endasprettinum til að hlífa mér við frekari meiðslum. Ég vildi ekki taka neina áhættu,“ segir Ingi Rúnar og bætir við að krampinn hafi líklega gert það að verkum að hann rétt svo missti af lágmarkinu fyrir EM U-23 ára sem fer fram næsta sumar. „Ég varð af rúmlega 100 stigum í 1.500 m hlaupinu og endaði aðeins 44 stigum frá lágmarkinu sem er 7.200 stig. Ég ákvað samt að svekkja mig ekki á því og vera fremur ánægður með gullið og góða bætingu í þrautinni,“ segir hann.Starfar á keppnisvellinum Ingi Rúnar er Kópavogsbúi og var því á heimavelli á Kópavogsvellinum um helgina. Reyndar hefur hann starfað á vellinum síðastliðin fjögur sumur og vann til að mynda að því að undirbúa völlinn fyrir mótið sem hann svo sigraði í. „Það var svolítið skrítið að sinna sínum eigin undirbúningi fyrir keppnina og að undirbúa völlinn á sama tíma. Yfirleitt reynir maður að vinna minna vikuna fyrir keppni og ég átti von á að það yrði erfitt í mínu tilfelli, en sem betur fer fór það allt saman vel.“ Hann hefur sett stefnuna hátt og segir það háleitt markmið hjá sér að komast yfir 7.500 stig í sumar. „En það væri líka gott að komast þó að minnsta kosti yfir 7.200 stig og ná lágmarkinu,“ segir hann. „Næsta mót er Evrópubikarkeppnin fyrstu helgina í júlí og þar náði ég minni bestu þraut í fyrra.“ Stóri draumurinn er svo að komast á Ólympíuleika eins og hjá svo mörgu frjálsíþróttafólki. „Ég hef mjög lengi stefnt að því að keppa á leikunum 2016. Það hefur svo fjarlægst mér síðustu ár eftir öll mín meiðsli þar sem ég hef ekki náð þeim árangri sem ég hefði viljað. En ef ég kemst í 7.400-7.500 stig í sumar verð ég nokkuð jákvæður á nýjan leik. Ég stefni fyrst um sinn á að halda mínu striki og vera meiðslafrír. Það er öllu öðru mikilvægara.“
Frjálsar íþróttir Mest lesið Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Fleiri fréttir Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 93-97 | Grindavík á toppnum með fullt hús stiga Sigurganga Hauka heldur áfram Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Áhugaverð ummæli Teits hafa hrist upp í hlutunum Verður líkamleg og andleg barátta Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Tímabilinu lokið hjá Viktori Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu Finnar neita að spila við Rússland á HM Haukur um slæma stöðu Löwen: „Góður tími til að snúa þessu við“ LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Líkir Dallas Cowboys við ræningjana tvo í Home Alone Sjá meira