Síðasti eigandi Nyhedsavisen er gjaldþrota 13. janúar 2009 12:43
Morten Lund, síðasti eigandi Nyhedsavisen í Danmörku, var lýstur gjaldþrota við Sjó- og kaupréttinn í Kaupmannahöfn í dag. Þeir Svenn Dam stjórnarformaður Nyhedsavisen og Morten Nissen Nielsen forstjóri útgáfunnar stefndu Morten Lund fyrir réttinn þar sem þeir töldu að Lund bæri persónulega ábyrgð á vangoldnum launum þeirra eftir að Nyhedsavisen fór í þrot. Samtals var um 10 milljónir danskra kr. að ræða eða um 220 milljónir kr.. Lund reyndi hvað hann gat til að komast hjá réttarhaldinu í dag, m.a. með því að biðja þá tvo opinberlega afsökunar á mistökum sínum. Það dugði ekki til og rétturinn dæmdi Lund persónulega gjaldþrota. "Þetta er eins og að einhver hafi stolið skikkju Superman," segir Lund í samtali við Jyllands-Posten um málið. "Mér er brugðið og ég hef ekki áhuga á að ræða málið." Morten Nissen Nielsen segir að það sé aldrei gleðiefni að horfa á einhvern verða gjaldþrota og hann veit ekki hvort hann fái kröfu sína nokkurn tíman greidda.
Mest lesið Sjónvarpsstöðin Sýn verður í opinni dagskrá Viðskipti innlent Tillaga Vilhjálms felld með nánast öllum atkvæðum Viðskipti innlent Samruni fyrirtækja: „Það sem ekki þarf að vera leyndarmál er ekki leyndarmál“ Atvinnulíf Nokkurra ára leit að kaupanda eigna í Helguvík lokið Viðskipti innlent SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Viðskipti erlent Einungis áfengi í boði hjá Heimkaupum Viðskipti innlent Vill lýsa yfir vantrausti á stjórnarmann vegna sautján ára tölvubréfs Viðskipti innlent Rafbílasala tekur við sér en nær enn ekki fyrri hæðum Viðskipti innlent Fjórir sérfræðingar skoða möguleika Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf Fleiri fréttir SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira
Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf
Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf