Fékk ekki að lækka afborganir því hún komst ekki í gegnum greiðslumat Bjarki Sigurðsson skrifar 29. júlí 2025 21:29 Allir stóru viðskiptabankarnir gera kröfu um greiðslumat ætli fólk að lækka mánaðarlegar afborganir. Vísir/Vilhelm Dæmi eru um að fólk í greiðsluerfiðleikum geti ekki lækkað afborganir af lánum þar sem það kemst ekki í gegnum greiðslumat. Formaður Neytendasamtakanna segir málið galið og vill breytingar.
Nýlega ræddi fréttastofa við unga konu sem vinnur á fjórum stöðum en stenst ekki greiðslumat fyrir íbúðarkaupum þar sem greiðslugeta hennar sé of lág. Mánaðarleg leigugreiðsla plús það sem hún leggur til hliðar nemur 380 þúsund krónum. Hins vegar er greiðslugetan eingöngu 240 þúsund krónur miðað við reglur Seðlabankans. Þurfti aukavinnu til að mega borga minna Í kjölfar umfjöllunarinnar ræddi fréttastofa við konu á fimmtugsaldri sem býr á höfuðborgarsvæðinu, en hún vill ekki koma fram undir nafni. Hún var búinn að komast inn á íbúðamarkaðinn og festi vexti áður en þeir hækkuðu gríðarlega á árunum 2021 til 2023. Þegar vextirnir áttu að losna fimm árum síðar sá hún ekki fram á að geta greitt af láninu þegar mánaðarlegar greiðslur áttu að hækka upp úr öllu valdi. Hún leitaði til bankans sem lánaði henni, Arion banka, og stefndi á að stækka verðtryggða hluta lánsins og minnka þann óverðtryggða til að lækka afborganir. Það tókst ekki, því hún stóðst ekki greiðslumat. Hún þénaði ekki nægilega mikið til að greiða minna af láninu. Hún neyddist til að fá sér aukavinnu og fá meira útborgað til að mega borga minna. Bankarnir líti framhjá lögum Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, segir málið stórfurðulegt. „Það er alveg skýrt að í lögum er ekkert sem krefur bankana um að framkvæma greiðslumat sé verið að endurfjármagna, eða að lánið sem tekið sé tekið til að greiða upp eldra lán, og sér í lagi svo greiðslurnar hækki ekki. Þarna sýnist mér vera annaðhvort vera reynt að bregða fæti fyrir lántakendur, eða þá að bankarnir líti á þetta sem einhverskonar tekjulind. Að koma fólki í greiðslumat þegar það er algjörlega óþarfi,“ segir Breki. Breki Karlsson er formaður Neytendasamtakanna.Vísir/Ívar Fannar Hljóti að vera mistök Breki vísar þarna í að það er sérstaklega tekið fram í lögum að bönkum sé heimilt að veita þeim sem vilja lækka afborganir vegna greiðsluerfiðleika undanþágu frá greiðslumati. Viðskiptabankarnir þrír gera samt allir kröfu um greiðslumat við að færa meira yfir í verðtryggt. „Maður trúir ekki öðru en að þetta hljóti að vera einhverskonar mistök. Einhverskonar yfirsýn sem bankarnir breyti og lagi strax,“ segir Breki.
Neytendur Húsnæðismál Fasteignamarkaður Arion banki Landsbankinn Íslandsbanki Fjármál heimilisins Fjármálafyrirtæki Mest lesið Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Löggan bankaði upp á á skírdag „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Gjaldskylda sett á við Egilshöll Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Sjá meira
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent