Skoðun

Hvað eiga bílaumboðið Hekla og Hekluskógar sameiginlegt?

Staðfestur hefur verið merkilegur samstarfssamningur landbúnaðarráðuneytis, fjármálaráðuneytis, Landgræðslu ríkisins og Skógræktar ríkisins. Markmið þessa merkilega verkefnis er að nýta birkiskóga til að verjast náttúruhamförum, bæta landgæði og binda kolefni. Lögheimili þessa verkefnis er í Gunnarsholti. Það er vel við hæfi þar sem Landgræðslan er elsta stofnun sinnar tegundar í heiminum og þar hefur, eins og hjá Skógrækt ríkisins, verið lyft Grettistaki í landgræðslu og skógrækt. Í Gunnarsholti er afar fjölbreytt starfsemi, þar sem fara saman vísindalegar rannsóknir sem og afar sýnileg og áþreifanleg verkefni og er árangurinn ótrúlegur á þeim eitt hundrað árum sem stofnunin hefur starfað. Hekluskógaverkefnið er sjálfstætt verkefni með sjálfstæðan fjárhag og stjórn.

Hekluskógaverkefnið er stærsta verkefni sinnar tegundar í Evrópu. Verkefnið er því mjög metnaðarfullt og þar er m.a. verið að endurheimta hina fornu Hekluskóga. Stjórnvöld hafa heitið 500 milljónum króna til verkefnisins með jöfnum framlögum til ársins 2016. Einnig er gert ráð fyrir því að fyrirtæki og einstaklingar geti tekið þátt í þessu frábæra verkefni.

Bifreiðaumboðið Hekla og Hekluskógar hafa undirritað samstarfssamning þar sem Hekluskógar selja Heklu kolefniskvóta sem nemur þeirri CO2 mengun sem allir nýir Volkswagen-bílar sem Hekla hf. selur frá 17. maí sl. og á meðan samningurinn er í gildi. Í framhaldi af þessu samkomulagi geta kaupendur Volkswagen-bifreiða haldið áfram að kolefnisjafna með litlu framlagi til Hekluskóga. Hér er um nýtt og spennandi nýmæli að ræða þar sem fyrirtæki og einstaklingar geta beint og óbeint beitt sér í umhverfismálum. Starfsmenn bifreiðaumboðsins hafa þegar tekið til hendinni og gróðursett fjölda plantna í verkefninu.

Umhverfismál eru og verða í brennidepli í umræðu manna í millum. Það er bæði gott og eðlilegt. Allt of margir sitja á kaffihúsum og ræða spekingslega um umhverfismál í manngerðu umhverfi höfuðborgarinnar. Þeir taka hins vegar aldrei til hendinni með beinni þátttöku í umhverfismálum. Hér opnast nýjar víddir varðandi þátttöku almennings og nýir útivistarmöguleikar, verkefnið kemur til með að auka og auðga dýralíf og gróður og endurheimtir læki og tjarnir upp við Heklu. Kolviðarverkefnið og Hekluskógsverkefnið eru náskyld og stefnt er að auknu samstarfi þessara merkilegu verkefna landi og þjóð til sóma.

Höfundur er formaður Hekluskógaverkefnisins.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×