Viðskipti
120 121 122 123 124 125 126 127 128 … 334 ›
Tvenn hjón: Vinna saman, ferðast saman og eru saman í frístundum Skjöldur Sigurjónsson rifjar upp skrautlega sögu verzlunarinnar Kormákur og Skjöldur en þeir reka líka saman Ölstofuna. Atvinnulíf 21.2.2023 13:02
Segir methagnað uppskeru af uppbyggingu virkjana Landsvirkjun skilaði fjörutíuogfimm milljarða króna hagnaði á síðastliðnu ári og leggur stjórn fyrirtækisins til að tuttugu milljarða króna arður verði greiddur í ríkissjóð, fimm milljörðum meira en fjárlög gera ráð fyrir. Forstjórinn segir þetta uppskeru virkjanauppbyggingar síðustu áratuga en endursamningar við stóriðju séu þó stærsti áhrifaþátturinn í góðri afkomu. Viðskipti innlent 21.2.2023 12:36
Í varnarham á opnum fundi Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri var í varnarham í morgun á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis um áhrif verðbólgu hér á landi, þar sem þingmenn spurðu hann spjörunum úr um aðgerðir Seðlabankans síðustu misseri. Viðskipti innlent 21.2.2023 11:39
Nýir stjórnendur hjá Nox Medical Íslenska tæknifyrirtækið Nox Medical hefur ráðið til sín fjóra nýja stjórnendur. Starfsmenn fyrirtækisins eru nú níutíu talsins og hefur þeim fjölgað um fjörutíu prósent á síðustu tveimur árum. Viðskipti innlent 21.2.2023 10:41
Adriana tekur við af Ásdísi Eir hjá Mannauði Adriana Karólína Pétursdóttir var kjörin formaður Mannauðs, félags mannauðsfólks á Íslandi. Hún tekur við starfinu af Ásdísi Eir Símonardóttur, mannauðsstjóra Lucinity, sem hefur verið formaður félagsins undanfarin þrjú ár. Viðskipti innlent 21.2.2023 10:26
Jónas Yngvi til Uniconta Jónas Yngvi Ásgrímsson hefur verið ráðinn til Uniconta Ísland. Jónas kemur til Uniconta frá DK hugbúnaði þar sem hann hefur starfað síðastliðin fjórtán ár. Hann kemur til með að leiða ráðgjöf, þjónustu og sölu til fagaðila og viðskiptavina félagsins. Viðskipti innlent 21.2.2023 08:26
Jón, Snorri Páll, Sylvía Kristín og Finnur hlutu stjórnunarverðlaun Fjórir einstaklingar hlutu Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi árið 2023 sem afhent voru við hátíðlega athöfn á Nauthól að viðstöddum forseta Íslands í gær. Viðskipti innlent 21.2.2023 07:38
Leggja til tuttugu milljarða arðgreiðslu Afkoma ársins var sú besta í sögu Landsvirkjunar. Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði, sem er sá mælikvarði sem við lítum helst til þegar afkoma fyrirtækisins er skoðuð, var 44,9 milljarðar króna og hækkaði um ríflega 72% á milli ára í bandaríkjadal talið. Þetta kemur fram í ársreikningi Landsvirkjunar. Viðskipti innlent 20.2.2023 15:51
Bein útsending: Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi 2022 Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi eru veitt árlega stjórnendum fyrirtækja sem þykja hafa skarað fram úr á sínu sviði. Verðlaunin verða afhent í beinni útsendingu klukkan 16 í dag. Viðskipti innlent 20.2.2023 15:31
Karítas frá Mogganum og til Landsbankans Karítas Ríkharðsdóttir hefur gengið til liðs við Landsbankann sem sérfræðingur í samskiptum. Viðskipti innlent 20.2.2023 13:47
Hjalti Þór og Benedikt til eignastýringar LV Hjalti Þór Skaftason og Benedikt Guðmundsson hafa verið ráðnir í eignastýringu Lífeyrissjóðs verzlunarmanna. Viðskipti innlent 20.2.2023 12:59
Rætur nýs markaðsstjóra Icewear liggja til Víkur í Mýrdal Elma Bjartmarsdóttir hefur verið ráðin nýr markaðsstjóri Icewear. Elma er viðskiptafræðingur með meistaragráðu í markaðsfræðum frá Háskólanum á Bifröst og viðurkenndur stafrænn markaðssérfræðingur frá Akademias. Viðskipti innlent 20.2.2023 12:01
Benedikt Orri hjá Meniga orðinn forstjóri Rafnars Benedikt Orri Einarsson hefur verið ráðinn forstjóri haftæknifyrirtækisins Rafnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rafnar sem vinnur að því að auka aðgengi að úthöfunum með þróun nýrra haftæknilausna. Benedikt var áður framkvæmdastjóri fjármála hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Meniga. Viðskipti innlent 20.2.2023 11:57
Ráðin sviðsstjóri sölu- og markaðssviðs hjá dk hugbúnaði Margrét Sveinbjörnsdóttir hefur tekið við sem sviðsstjóri sölu- og markaðssviðs hjá dk hugbúnaði. Viðskipti innlent 20.2.2023 10:16
Eva Margrét og Guðrún Lilja nýir meðeigendur hjá LEX Eva Margrét Ævarsdóttir og Guðrún Lilja Sigurðardóttir hafa bæst í hóp meðeigenda LEX lögmannsstofu. Viðskipti innlent 20.2.2023 09:41
Vinnuveitandinn býður starfsfólki upp á alls kyns námskeið og spennandi aukaverkefni Birgitta Sigurðardóttir er heldur betur að gera spennandi hluti í Danmörku. Þar sem hún sér um sölu-, markaðsmál og vörumerkjastjórn Innocent drykkjarins, fyrir Íslandsmarkað og Danmörku og vinnur í nafni fyrirtækisins einnig að góðgerðarstarfi í Afríku. Atvinnulíf 20.2.2023 07:00
Rukka fyrir áskrift á Facebook og Instagram Mark Zuckerberg, forstjóri Meta, tilkynnti í dag að fyrirtækið ætli að byrja að bjóða notendum upp á áskriftarþjónustu. Notendur sem borga fyrir Meta Verified munu fá aukna vernd, beinan aðgang að þjónustuveri Meta og aukna dreifingu á færslum þeirra. Viðskipti erlent 19.2.2023 23:06
Þarf að greiða um hálfan milljarð í skatt eftir rannsókn sem hófst með Panama-skjölunum Sigurður Gísli Björnsson, fyrrverandi eigandi og stjórnandi Sæmarks, þarf að greiða tæpan hálfan milljarð í tekjuskatt og útsvar, vegna áranna 2010-2016, í máli sem nefnt hefur verið sem eitt af umfangsmestu skattalagabrotum sem upp hafi komið hér á landi. Yfirskattanefnd telur ljóst að Sigurður Gísli hafi vantalið tekjur frá tveimur panamískum-félögum í hans eigu upp á rúmlega einn milljarð króna á umræddum árum. Mál hans er til rannsóknar hjá héraðssaksóknara. Viðskipti innlent 19.2.2023 12:00
Skýrslan leiði til úrbóta í veitingu leyfa til fiskeldis Ítrekaðar frestanir á leyfisveitingum fyrir fiskeldi í Ísafjarðardjúpi valda því að örlög laxaseiða fyrir á þriðja hundrað milljóna króna eru í uppnámi hjá Arctic Fish. Talsmaður fyrirtækisins vonast til að viðkomandi stofnanir taki mið af ábendingum Ríkisendurskoðunar, fari að lögum og gefi út leyfin. Viðskipti innlent 18.2.2023 22:44
„Við svona rússíbanahagkerfi verður ekki unað“ Formaður Neytendasamtakanna segir vaxtahækkanir viðskiptabankanna ekki koma á óvart, enda búi Íslendingar við fákeppni í neytendamálum á ýmsum sviðum. Hann kallar eftir aukinni samkeppni og segir sveiflur í hagkerfinu óviðunandi. Neytendur 18.2.2023 15:01
Engar eignir fundust í þrotabúi 24 miðla Skiptum er lokið á þrotabúi 24 miðla ehf., sem hélt um skamma hríð úti fréttavefnum 24 - þínar fréttir. Engar eignir fundust upp í ríflega níu milljóna króna kröfur. Viðskipti innlent 18.2.2023 14:04
Ekkert fékkst upp í 228 milljóna króna kröfur Skiptum er lokið á þrotabúi JL Holding ehf.. Lýstar kröfur í búið námu rétt tæplega 228 milljónum króna en ekkert fékkst upp í þær. Félagið var í eigu Margrétar Ásgeirsdóttur fjárfestis og var stofnað utan um hótelrekstur í JL-húsinu við Hringbraut. Viðskipti innlent 18.2.2023 12:35
Með tíu til fimmtán glugga opna í einu í Chrome og tólf Word skjöl Það er ekki nóg með að Ragnhildur Þórðardóttir, eða Ragga Nagli eins og við þekkjum hana, beri marga hatta á höfði: Er sálfræðingur í Kaupmannahöfn, pistlahöfundur, rithöfundur, fyrirlesari, hlaðvarpari og almennur heilsunöldrari að hennar sögn. Ragga viðurkennir að vera mjög kaótísk í skipulagi. Svo ekki sé meira sagt. Atvinnulíf 18.2.2023 10:01
Landsbankinn hækkar líka vexti Landsbankinn hefur ákveðið að hækka bæði út- og innlánavexti eftir 0,5 prósentustiga stýrivaktahækkun Seðlabankans. Hinir stóru viðskiptabankarnir tveir tilkynntu einnig vaxtahækkun í dag. Viðskipti innlent 17.2.2023 18:49
„Brjálæðislega dýr bjór“ bitni á ferðaþjónustunni og tekjulágum Enn og aftur hefur Íslandi tekist að bæta Evrópumetið í áfengissköttum. Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekanda gagnrýnir hækkunina harðlega. Hún bitni á ferðaþjónustunni og þeim sem hafa minnst á milli handanna. Neytendur 17.2.2023 15:41
Arion hækkar sömuleiðis vextina Arion banki hefur tilkynnt um hækkun inn- og útlánsvaxta í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðlabankans. Vaxtabreytingarnar taka gildi næstkomandi þriðjudag, 21. febrúar. Viðskipti innlent 17.2.2023 14:31
Allt að 366 prósenta munur í verðkönnun ASÍ Meiri munur var á verði milli matvöruverslana en áður í verðkönnun verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands (ASÍ) sem framkvæmd var í febrúar. Meðalverð var hæst í Iceland, að meðaltali 54% frá lægsta verði. Neytendur 17.2.2023 14:30
Sekt Fossa stendur vegna bónusa í búningi arðgreiðslna Fjármálafyrirtækið Fossar markaðir braut lög þegar fyrirtækið greiddi út of háa kaupauka til starfsmanna sinna og kallaði þá ranglega arðgreiðslur. Þetta er niðurstaða Fjármálaeftirlitsins, héraðsdóms og nú Landsréttar sem kvað upp dóm sinn í dag. Viðskipti innlent 17.2.2023 14:07
Hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkana Seðlabankans Íslandsbanki hefur tekið af skarið og hækkað vexti í samræmi við stýrivaxtahækkun Seðlabankans, sem var kynnt 8. febrúar síðastliðinn. Yfirdráttarvextir, breytilegir vextir óverðryggða húsnæðislána, breytilegir óverðtryggðir kjörvextir og fleiri tegundir vaxta hækka um 0,5 prósentustig í byrjun næstu viku. Neytendur 17.2.2023 11:23
Gæti stungið FTX-stjóra í steininn til að takmarka samskipti hans Dómari í máli Sams Bankman-Frieds, stofnanda rafmyntafyrirtækisins FTX, gaf í skyn að hann gæti sent hann í fangelsi til að koma í veg fyrir að hann eigi í frekari samskiptum sem yfirvöld geta ekki fylgst með. Saksóknarar telja ástæðu til að ætla að Bankman-Fried reyni að hafa áhrif á vitni. Viðskipti erlent 17.2.2023 09:06