

Tvær tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í nýliðnum ágústmánuði þar sem 52 starfsmönnum var sagt upp störfum.
Hafsteinn Dan Kristjánsson, sem starfað hefur sem kennari við lagadeild Háskóla Íslands frá árinu 2009, hefur ákveðið að færa sig um set og kenna við lagadeild HR.
Ragnar Sigurður Kristjánsson hefur verið ráðinn sérfræðingur á hagfræðisviði Viðskiptaráðs.
Veitingastaðurinn Askur á Suðurlandsbraut, einn þekktasti veitingastaður landsins, hefur skipt um eigendur. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir brot Samskipa geta valdið miklu tjóni fyrir samfélagið, neytendur og atvinnulífið. Hann á von á enn hærri sektum í sambærilegum samkeppnismálum á næstu árum.
Samskip segir það hafa tekið Samkeppniseftirlitið þrettán ár að „teikna upp fullkomlega ranga mynd af rekstri Samskipa og ætluðu samráði við Eimskip“. Forstjórum fyrirtækjanna hafi ekki verið vel til vina.
Samkeppniseftirlit Íslands leggur til að stjórnvöld grípi til aðgerða til að efla samkeppni á flutningamarkaði með ýmsum aðgerðum. Er það sagt vera mikilvægt og þá meðal annars vegna hækkana á vöruverði síðustu mánuði.
Ein fyrstu viðbrögð forstjóra Samskipa við húsleit sem Samkeppniseftirlitið gerði árið 2013 voru að hafa samband við framkvæmdastjóra hjá Eimskipum. Samráð fyrirtækjanna sem Samskip sætir metsekt fyrir er sagt hafa gert þeim kleift að hlunnfara viðskiptavini sína. Forstjóri Eimskips lýsti hatri á forstjóra Samskipa en var með honum í vinahóp þar sem þeir spiluðu saman golf.
Sigurður Orri Kristjánsson, stjórnmálafræðingur, hefur verið ráðinn til starfa hjá Viðreisn sem verkefnastjóri samfélagsmiðla og viðburða. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum.
Barist er um flugmenn á heimsvísu og dæmi eru um að flugfélög þurfi að draga saman flugáætlanir þar sem ekki tekst manna áhafnir. Fjórtán flugmenn Play sögðu upp í gær eftir að hafa fengið atvinnutilboð hjá Icelandair.
Katrín Helga Hallgrímsdóttir hefur verið ráðin lögfræðingur Samorku. Greint er frá þessu í tilkynningu frá félaginu.
Samskip ætla sér að kæra rúmlega fjögurra milljarða króna sekt sem Samkeppniseftirlitið lagði á félagið í gær. Lögmaður Samskipa segir félagið vera sektað fyrir samsæriskenningar sem enginn fótur sé fyrir.
Baldvin Þorsteinsson, sonur Þorsteins Más Baldvinssonar, hefur verið kjörinn nýr stjórnarformaður Samherja. Hann segist hlakka til að starfa með föður sínum, sem er forstjóri fyrirtækisins, og öðru starfsfólki Samherja.
Sterkar vísbendingar eru um að ólöglegt samráð skipafélaganna Samskipa og Eimskipa hafi valdið fyrirtækjum í innflutningi og útflutningi stórfelldu tjóni, að mati Félags atvinnurekenda. Félagið hefur hvatt félagsmenn sína til þess að kanna hvort þau fái tjón sitt bætt frá félögunum.
Ingveldur Kristjánsdóttir hefur tekið við sem framkvæmdastjóri rekstrar (COO) hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Dineout.
Orkufyrirtækið HS Orka festi kaup á félagi sem á og reku tvær vatnsafslvirkjanir í Fjarðará í Seyðisfirði um mánaðamótin. Framleiðsla virkjananna verður notuð til þess að mæta álagstoppum almennra notenda að vetrarlagi.
Bjarni Heiðar Halldórsson hefur verið ráðinn í stöðu verkefnastjóra samfélags-og umhverfismála hjá Hagkaup. Hann hefur nú þegar hafið störf.
Fjöldi styrkhafa Asks - mannvirkjarannsóknasjóðs munu kynna verkefni sín á CIRCON ráðstefnu sem haldin er í tengslum við Iðnaðarsýninguna í í Laugardalshöll sem stendur yfir þessa dagana.
Auður Inga Einarsdóttir er nýr framkvæmdastjóri innviðalausna Advania. Hún hefur gegnt stöðu markaðsstjóra fyrirtækisins síðastliðin fjögur ár og þar áður sem forstöðumaður notendalausna.
Fjórtán af 125 flugmönnum flugfélagsins Play sögðu upp störfum í gær eftir að hafa fengið atvinnutilboð frá Icelandair.
Landsbankinn tilkynnti síðdegis í gær um hækkun á vöxtum hjá bankanum í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðlabankans og tekur ný vaxtatafla gildi í dag. Arion banki tilkynnti sömuleiðis um vaxtahækkanir í gær.
Samkeppniseftirlitið hefur sektað Samskip um 4,2 milljarða og telur fyrirtækið hafa með alvarlegum hætti brotið gegn samkeppnislögum með ólögmætu samraði við Eimskip. Samskip hafnar niðurstöðu eftirlitsins.
Einar Þórarinsson hefur verið í ráðinn í starf framkvæmdastjóra Ljósleiðarans. Einar hefur áður starfað hjá Sidekick Health, Advania og Vodafone. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Birgir Jónsson, forstjóri flugfélagsins Play, staðfestir að flugmönnum félagsins og flugstjórum hafi verið boðnar launahækkanir í gær. Samkvæmt Túrista.is eru hækkanirnar allt að 53 prósent.
Birgir Jónsson, forstjóri flugfélagsins Play, segir engan flugmann hafa sagt upp störfum nú fyrir mánaðamótin. Ef átján flugmenn myndu segja upp störfum á einu bretti yrði félagið að tilkynna það á markaði.
Róbert Aron Magnússon hefur verið ráðinn sem markaðs og verkefnastjóri Miðborgin – Reykjavík – Félagasamtök, nýs markaðsfélags miðborgarinnar sem var stofnað í mars síðastliðnum.
Arion banki hefur tilkynnt um hækkun vaxta á inn- og útlánum hjá bankanum í kjölfar stýrivaxtaákvörðunar Seðlabankans í síðustu viku. Breytingarnar taka gildi í dag.
Átján flugmenn Play sem voru á biðlista eftir störfum hjá Icelandair fengu símtal í gær þar sem þeim var boðið að hefja störf hjá félaginu. Þeir sem hyggjast þiggja boðið verða að segja upp hjá Play í dag.
Hagnaður fasteignafélagsins Regins jókst um rúm 66 prósent á milli ára en fyrstu sex mánuði ársins nemur hann um 6,1 milljarð króna, samanborið við 3,7 milljarða á sama tíma í fyrra.
Tap íslenska líftæknilyfjafélagsins Alvotech á fyrri helmingi þessa árs nemur 86,9 milljónum dollara, það samsvarar rúmum ellefu milljörðum í íslenskum krónum. Það er talsvert minna tap en á síðasta ári þegar tapið var 184,5 milljónir dollara. Þá voru sölutekjur félagsins næstum sexfalt meiri í ár en í fyrra.